31.03.1949
Sameinað þing: 60. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 220 í D-deild Alþingistíðinda. (4508)
177. mál, þátttaka Íslands í Norður-Atlantshafssamningi
Forsrh. (Stefán Jóh. Stefánsson):
Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð. — Ég geri ráð fyrir, að hv. þm. hafi blöskrað, þegar hv. 2. þm. Reykv. var að tala um taugaveiklun þm. Ég veit, að hv. þm. hafa veitt því athygli undanfarna daga, að hafi nokkur þm. verið taugaveiklaður á Alþingi Íslendinga, þá er það hv. 2. þm. Reykv., eins og hann hefur verið undanfarna daga, með því orðbragði og látbragði, sem hann hefur viðhaft hér á þingi. Það er gamla aðferðin, sem þekkt er frá Rússlandi og þekkt frá Göbbels, að tala um, að það sé verið að gera árásir á íslenzka löggjafarþingið og þess rétt, að hann skuli tala um slíkt, sem er einmitt forustumaður þeirra árása, sem hafa verið gerðar á íslenzka löggjafarþingið undanfarna daga, að hann skuli vera að taka sér þessi orð í munn. Það er nákvæmlega það sama og þegar þessi flokkur er að tala um það lýðræði, sem þeir dásama. Við þekkjum þá mynd og þá framkvæmd lýðræðisins. Og að þeir skuli vera að tala um föðurlandsást, þessir menn, sem fyrst og fremst eiga sitt föðurland utan síns eigin lands. Það eru furðuleg brjóstheilindi.
Það er verið að tala um það af hv. 2. þm. Reykv. og, mér skilst, einnig af félögum hans hér á þingi, að það hafi verið undirbúin árás á alþingishúsið af lýðræðisflokkunum og formönnum þeirra, þegar þeir óskuðu þess, að friðsamir borgarar söfnuðust saman við alþingishúsíð til að tryggja, að Alþingi hefði vinnufrið til að afgr. þetta mál, samtímis því sem upp æstur kommúnistalýður kemur vaðandi að þinghúsinu, útbúinn til þeirra verka, sem nú sjást í framkvæmd. Það þarf annaðhvort mikið blygðunarleysi eða mikla ofsatrú eða fávizku til að halda fram þessari kenningu hér eftir það, sem skeð hefur undanfarna daga.
Ég vil að lokum beina því til hæstv. forseta, að gjarna vil ég, að þm. kommúnista mættu segja hér nokkur orð á eftir mér. Það er ekki mín ósk að hefta þeirra málfrelsi. En ég bið þingheim að athuga, hvað þeir nú eru að segja og hvað þeir áður hafa sagt, og einnig verk þeirra, sem tala hér á alþingishúsinu.