31.03.1949
Sameinað þing: 60. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 229 í D-deild Alþingistíðinda. (4520)

177. mál, þátttaka Íslands í Norður-Atlantshafssamningi

Menntmrh. (Eysteinn Jónsson):

Herra forseti. Hv. þm. G-K. talaði hér áðan um málflutning nokkurra manna, er hann nafngreindi, og þar á meðal Pálma Hannessonar rektors. Hér verður að gera mikinn greinarmun á framkomu manna. Og það er svo um Pálma Hannesson, að þótt hann hafi gagnrýnt hugmyndina um þátttöku okkar í Atlantshafsbandalaginu, þá hefur hann aldrei lagt neitt það til þessara mála, er leggja mætti út á þann veg, að hann væri samþykkur þeim vinnubrögðum, sem hér voru við höfð í gær.

Kommúnistarnir hér eru nú mjög taugaóstyrkir. En öll þeirra vonzka stafar af ámátlegri minnimáttarkennd út af því, að þeir komu hér engu fram í gær. Þeir eru sturlaðir af því, að friðsamir borgarar skyldu koma á Austurvöll, því að þá kom í ljós undir þúsundir votta hið þokkalega athæfi þeirra, og með því var dregið úr þreki árásarlýðsins. Þetta var ámátlegur ósigur fyrir kommúnista og ekki að furða, þótt þeir séu reiðir. Og það verður aldrei of mikil áherzla á það lögð, hvílík háðung þessir atburðir voru fyrir þá.

Ég vil láta í ljós aðdáun mína á framkomu lögreglunnar, sem stóð undir grjótkasti klukkutímum saman fyrir framan alþingishúsið aðgerðalaus til þess að forðast stórvandræði. Og það er óhætt að fullyrða, að lýðræði hefði ekki verið framkvæmt stórslysalaust hér á Íslandi í gær án þess, að hennar hefði notið við.

Hv. 8. þm. Reykv. sagði hér áðan, að ég hefði sagt, að æsingafundurinn í gær hefði verið kallaður saman af skríl. Ég sagði, að það hefði verið kallaður saman skríll. Og hann þarf ekki að halda, að þeir, sem fundinn sóttu, hafi allir verið vinnandi fólk. Hann er að reyna að koma skrílsheitinu á verkamenn, því að ekki er hægt að gera vinnandi fólki á Íslandi meiri svívirðu en þá að drótta að því, að það hafi staðið hér grenjandi og grýtt þinghúsið. Það voru útsendarar kommúnista, sem það gerðu, og ekki fyrst og fremst Dagsbrúnarmenn.