31.03.1949
Sameinað þing: 60. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 232 í D-deild Alþingistíðinda. (4524)

177. mál, þátttaka Íslands í Norður-Atlantshafssamningi

Gylfi Þ. Gíslason:

Herra forseti. Ég stend upp til að bera af mér þungar, já, mjög þungar sakir. Hv. þm. G-K. sagði í ræðu sinni, að ég hefði verið að æsa til ofbeldis. Hann nefndi og Einar Ól. Sveinsson prófessor, Pálma Hannesson rektor, Klemenz Tryggvason hagfræðing o. fl., sem allir hefðu staðið að slíku athæfi. Ég skal taka það fram, að ég hef mestu viðurstyggð á atburðum þeim, sem gerðust hér fyrir utan þinghúsið í gær, en einnig atburðunum innan veggja þess, þ. e. umræðunum, sérstaklega þó í gærmorgun. En ég andmæli því eindregið, að ég, eða aðrir menn ásamt mér, hafi átt hinn minnsta þátt í óeirðunum. Ég veit eigi til þess, að orð mín hafi getað gefið tilefni til ólátanna utan eða innan þinghússins. En hv. þm. G-K. notar tækifærið nú til að láta dólgslega. Hann er þó illa að sér í þingsíðum. Hann veit ekki einu sinni um rétt þingheiti á hv. alþingismönnum og ávarpar hv. 8. þm. Reykv. í stað mín, sem er 4. þm. Reykv., og telur það móðgun við hann að blanda honum saman við mig. Þessi hv. þm. er hortugur hér í þingsölunum. Ég hygg, að alþingistíðindin geti borið þess vitni, að ég sé eigi stórorður. Þau sýna, að ég hef ekki talið ómaksins vert að svara í sömu mynt, þótt ráðizt væri að mér með fruntaskap. En þó verð ég að segja, að mér ofbýður að verða að hlusta á, að ég hafi æst til óeirða með ókvæðisorðum, og slíkum aðdróttunum mótmæli ég mjög eindregið.