31.03.1949
Sameinað þing: 60. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 233 í D-deild Alþingistíðinda. (4525)
177. mál, þátttaka Íslands í Norður-Atlantshafssamningi
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. Ég heyri það, að hæstv. menntmrh. er búinn að ákveða hlutverk sitt, þegar ómildari tökum á að taka á verkalýðshreyfingunni, sbr. Göbbels hinn þýzka. Tilgangur þeirra er svipaður. — Hæstv. fjmrh. vék sér að mér sérstaklega. En hann ætti í staðinn að reyna að uppræta spillinguna hjá hinum ráðherrunum. — Hv. þm. N-Ísf. minntist á, að litla stúlkan, sem löðrungaði hæstv. forsrh., muni eigi verða munuð. Ja, mikið má vera, ef Stefán hinn digri verður ekki munaður. Má vera, að hún gleymist, ef hinir, sem dýpst eru sokknir, verða ekki munaðir. Það er áreiðanlega ný söguöld í aðsigi á Íslandi. Við skulum vona, að það verði eigi mannvíg úr þessu. — Þá talaði hv. þm. G-K. Heldur hann, sem talar um harðari hendur, að við séum búnir að gleyma? Þekkir hann hv. 3. landsk., — hvað var gert við hann í Bolungavík forðum daga? Man hann, þegar handtaka átti foringja verkalýðsins í Keflavík? En verkalýðshreyfingin á Íslandi er orðin of sterk, og það er hið eina, sem hindrar ofbeldi við hana. Hv. þm. G-K. talaði um, að kallað hefði verið á þjóðina, og hann talaði um fylgistap. — Hv. þm. N-Ísf. talaði um bleyður, níðinga og ragmenni. Ég vil gefa þessum mönnum tækifæri til að sanna þessi ummæli. Ég skal gjarna með öðrum stofna til þess, að fjöldinn verði kallaður saman. Ég vil stuðla að því, að lýðræðið verði framkvæmt á Íslandi. Stjskr. vor kennir tvær aðferðir til þess að ná lýðræði : þjóðaratkvgr, og kosningar til Alþ. Hv. alþm. hafa svipt kjósendur sína siðferðilegum rétti til atkvgr. Annar rétturinn er eftir, sem íslenzkir kjósendur geta fengið, en hann er almennar kosningar. Ef stjórnarflokkarnir trúa því, að með baráttu sinni á móti landráðunum hafi Sósfl. tapað fylgi hjá þjóðinni, þá er hægastur vandinn að ganga úr skugga um það. Ég skora á hæstv. ríkisstj. að rjúfa þing þegar í stað, til þess að lofa fólkinu að láta skoðun sína í ljós. Ef hún þorir það ekki, þá eru stuðningsmenn hæstv. ríkisstj. jafnhræddir við það og stjskr.