18.05.1949
Sameinað þing: 76. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 239 í D-deild Alþingistíðinda. (4545)

211. mál, launabætur til opinberra starfsmanna

Flm. (Sigurjón Á. Ólafsson):

Herra forseti. Eins og hv. þm. er kunnugt, voru fluttar hér við afgreiðslu fjárlaganna 2 brtt. um, að Alþ. yrði við ósk Bandalags starfsmanna ríkis og bæja um launauppbót, en hvorug þessi brtt. fékk náð fyrir augum hv. þm. og voru felldar. Við, sem að þessari till. stöndum, lítum svo á, að ekki megi slíta Alþ. nú án þess að mæta þessum óskum að nokkru leyti, að vísu erum við með lægri upphæð, en áður var krafizt. Önnur till., sem borin var fram við afgreiðslu fjárl., var um 25% hækkun. Hún var felld. Hin fór fram á, að starfsmennirnir fengju 16–17% launauppbót. Hún var einnig felld. Sú till., sem hér um ræðir, fer fram á, að óskum bandalagsins verði mætt með 8% launahækkun, og er þá miðað við, að 25% hækkun hefði numið 12½ millj., og er þá miðað við, að launagreiðslur til þessa fólks nemi alls um 50 millj. kr., og ætti það að vera nærri lagi. Það er öllum hv. þm. kunnugt, að bandalagið fór fram á launahækkun að afloknu þingi sínu og sýndi með útreikningum, að þeir höfðu orðið aftur úr öðrum stéttum þjóðfélagsins í þessum efnum. Ég skal ekki fullyrða, hvort þessi útreikningur er réttur, en held, að þurfi mikinn útreikning til að komast að hinu sanna. En þó að þeir kæmust að því, að launauppbótin þyrfti að vera 36%, gátu þeir fallizt á að slá af kröfum sínum, þannig að þeir fengju 25% hækkun á laun. Þeir hafa í útreikningum sínum sýnt fram á, að ýmsar stéttir hafa fengið allmikla launahækkun. Ég skal, eins og ég sagði áðan, ekkert fullyrða um það, hvort þessi útreikningur er réttur, enda tel ég víst, að hæstv. ríkisstj. láti kanna, hvort svo er. En ég vil benda á, hvaða hækkun hefur orðið hjá hinum ýmsu stéttum síðan 1946:

Tímakaup:

Verkakonur A.

alm.

32,14%

- B.

fiskv.

35,71%

- C.

ræst.

42,85%

Verkamenn A.

alm.

33,33%

- B.

skipav.

45,23%

Vikukaup:

Bólstrarar

26,07%

Húsgagnasmiðir við bekkvinnu

9,54%

- við vélavinnu

9,33%

Skipasmiðir

16,92%

Bókbindarar

15,17%

Prentarar

21,01%

Stélsetjarar

9,20%

Klæðskerar

19,23%

Bifvélavirkjar

17,24%

S3akarar

A. 4 ára

34,15%

—

B. 5 ára

12,24%

—

C. 6 ára

12,24%

Mánaðarkaup:

Bifreiðastjórar:

Strætisvagna

36,11%

Sérleyfisbifreiða

30,00%

Farþegabifreiða

36,67%

Ég vil benda á það, að launal. eru síðan 1945, en þessi hækkun hefur átt sér stað síðan 1946, og að síðan þessi skýrsla var gerð hafa laun hjá nokkrum félögum hækkað um 3–5%. Þá má geta þess, að í ýmsum ríkisstofnunum, sem heyra ekki undir launalögin, eru laun mun hærri, og sama má segja um laun fólks, sem vinnur hjá einkafyrirtækjum. Ég get bent á það síðar í umr., hver launamismunur þessi er í tölum. Ég hygg, að sterk rök séu fyrir því, að þessi fjölmenni hópur, um 2.000 manns hjá ríkinu og um 700 hjá bæjum, hefur stofnað með sér félagssamtök. Það eru að vísu til menn, sem ekki hafa gengið í þessi samtök. Ég get t. d. nefnt héraðsdómara, sem að vísu hafa félagsskap, en eru ekki í bandalaginu, og mætti nefna einstöku fleiri. Ég hygg því, að þar sem um svona fjölmennan hóp er að ræða, sem hefur sterk samtök, sé ekki rétt að daufheyrast við óskum þeirra, því að ég fyrir mitt leyti er sannfærður um, að a. m. k. láglaunaflokkarnir á launal. eru svo lágir, að það mun vera mjög erfitt að komast af með þeim launum. Og það er því í raun og veru hverjum manni ljóst, að lægstu launaflokkarnir eru þannig settir, að tæplega er hægt að segja, að þeir lifi við mannsæmandi laun. Ég þarf ekki að nefna þær tölur, hvað þær eru lágar. Eins og öllum hv. þm. er kunnugt, er þessum samtökum, sem eru mjög samanþjöppuð og sterk, bannað með lögum að gera vinnustöðvun. Nú er þess að gæta, að ég geri ráð fyrir, að ef þessir menn hefðu þann rétt, sem aðrar launastéttir hafa, mundu þeir að sjálfsögðu beita því vopni, ef ekki væri hægt að mæta óskum þeirra á annan veg. En ég hygg, að sá andi ríki þó í bandalaginu, að menn vilji ekki grípa til þess að brjóta lög og beita því valdi, sem aðrar vinnustéttir beita, þegar ekki er fullnægt þeirra óskum. Nú er það, eins og kunnugt er, Alþingi, sem í raun og veru er atvinnurekandinn í þessu tilfelli, og það veltur því á þegnskap alþm., hvort þeir líta svo á, að þessum starfsmönnum þjóðfélagsins beri nokkrar launabætur. Ég býst við, að ef um almenna atvinnurekendur væri að ræða í þessu tilfelli, mundu þeir sannarlega reyna að koma til móts við marga af þessum starfsmönnum. Og ég gæti e. t. v. bent á einstakar stofnanir, jafnt hjá einstaklingum og félögum og jafnvel hjá félögum, sem hafa töluvert starfslið í þjónustu sinni, eins og t. d. samvinnuhreyfingunni, þar sem fólkið er betur launað en fólk, sem er í sambærilegu starfi hjá ríkinu. Ég hef nokkuð sterk gögn, sem geta sannað þetta mál mitt. Ég hygg þess vegna, að ekki ættu að þurfa að vera neinar deilur á hæstv. Alþ. um að reyna nú að mæta þessum mönnum með nokkrum skilningi. Og þótt ekki sé gengið svo langt að mæta kröfum þeirra að öllu leyti, ætti þó að gera nokkra tilraun til að sýna lit á því að bæta upp laun þeirra, sem a. m. k. að mínum dómi eru verst settir. Till. gerir ráð fyrir því, að ríkisstj. kynni sér niður í kjölinn, hvort sá útreikningur, sem bandalagið hefur gert, er á rökum reistur, og ef svo reynist, megi ríkisstj. mæta þeim með þeirri upphæð, sem í till. er gert ráð fyrir, þ. e. 4 millj. kr.

Það er, eins og segir í grg., ekki neitt rætt um það í till., hvernig eigi að mæta þessum útgjöldum, en bent á það í grg., að helmingur þeirra 8 millj. kr., sem áætlað er, að komi í eignauppgjörinu, geti verið hér til frádráttar. Það er að vísu hvergi ákveðið í l., hvernig þessu fé skuli ráðstafað. En mér er tjáð, að helmingi þessarar upphæðar, sem hér er áætluð 8 millj. kr., muni þegar hafa verið ráðstafað og eftir standi því aðeins 4 millj. Ég veit ekki, hvort þessi upphæð, sem hér er talað um, stenzt áætlun eða ekki, en hef þó nokkuð sterkar heimildir um, að reikna megi með, að svo verði. Ætti því að mega reikna með, að þessi fjárhæð geti komið til greina sem nokkurn veginn afgangseyrir. Ég hef ekki haft tök á að kynna mér það, nema hvað ég hef lauslega fengið fregnir frá mönnum, sem eiga glöggt að vita í þessum efnum.

Það mætti að sjálfsögðu færa ýmis sterk rök fleiri en ég hef hér bent á fyrir því, að Alþingi verði við þessum óskum. En þar sem þetta mál er síðasta mál þingsins og flutt á síðasta degi þess, vil ég ekki tefja það með allt of langri framsögu og vænti þess um leið, að ekki þurfi að tefja það með allt of miklum umr. Ég geri ráð fyrir, að hv. þm. geti eða hafi þegar gert sér nokkuð ljósa grein fyrir því, hvort þessar kröfur eru að ófyrirsynju fram komnar eða ekki, og vænti því, að a. m. k. meiri hl. hæstv. Alþ. geti verið okkur flm. sammála um, að bæði sé réttlætismál og viturlegt að verða við þessum óskum. — Ég vænti svo að lokum, að þessari till. verði vel tekið af meiri hl. Alþingis, þegar atkvgr. er fram undan.