18.05.1949
Sameinað þing: 76. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 251 í D-deild Alþingistíðinda. (4556)
211. mál, launabætur til opinberra starfsmanna
Fjmrh. (Jóhann Jósefsson):
Fjárl. eru nú nýskeð afgreidd, að vísu ekki með miklum greiðsluhalla, en þó ekki hallalaus. Full þörf hefði þó verið á því, eins og hagur ríkisstj. er og horfur í atvinnumálunum, að fjárl. hefðu verið afgreidd hagstæðari. Með þeirri gjaldabyrði, sem á ríkissjóði hvílir, — og hún er ekki létt, heldur þyngd, — þá hefði verið brýn þörf á meiri tekjum fyrir ríkissjóð, en í fjárl. eru. Ég hef hins vegar ekki talið það fært að krefjast tekna með auknum álögum til þess að afgreiða fjárl., svo að hægt væri að verða við kröfum um útgjöld á ýmsum sviðum. Ég hef við umr. lýst því, að hvað áætlun tekna snertir hafi ég orðið að tefla á yztu nöf.
Þetta mál, sem hér liggur fyrir, ber alleinkennilega að. Hér er ekki verið að krefjast endurskoðunar launalaganna, sem hefði vel mátt gera í vetur, heldur er sá kosturinn tekinn að heimila ríkisstj. að verja allt að 4 millj. kr. til þess að greiða uppbætur á laun opinberra starfsmanna. Ég skal ekki leggja neinn dóm á þörfina í þessum efnum, en af ástæðum, sem alþm. eru augljósar, sé ég mér ekki fært að mæla með þessari till., sem leggur skyldukvöð, — það má kalla þetta því nafni, því að allir vita, að hér er um meira en heimild að ræða, — á ríkissjóð, án þess að séð sé fyrir sérstökum tekjum á móti til þess að mæta þessum útgjöldum, því að það tel ég engan veginn hafa verið gert, þó að vísað hafi verið til eignakönnunarfjárins, því að eins og ég lýsti yfir vegna fram kominnar fyrirspurnar, þá verður það fé að minni hyggju hvergi nærri því nógu mikill varasjóður til þess að vega upp á móti þeirri vöntun, sem yrði á tekjum ríkisins á fjárl., því að það má alltaf búast við því, að tekjurnar verði eitthvað rýrari, en þær eru áætlaðar. Hafði ég þó ekki, eins og ég lýsti við afgreiðslu fjárl., gert till. um að lækka áætlunina, vegna þess að ég taldi í eignakönnunarfénu nokkurt öryggi til þess að bæta hallann, ef til kæmi. Ég hef því rökstutt, hvers vegna ég get ekki séð mér fært að fylgja þessari till.