18.05.1949
Sameinað þing: 77. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 256 í D-deild Alþingistíðinda. (4573)
211. mál, launabætur til opinberra starfsmanna
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Ég get ekki látið þetta mál svo héðan fara að segja ekki nokkur orð í sambandi við það, en ég skal ekki tefja hæstv. forseta og Alþingi of lengi við þessa umr.
Á það hefur verið bent, að fjárl. hafi nú verið afgr. með 500 þús. kr. greiðsluhalla, en við þá upphæð þarf að bæta fyrst 13 millj. kr. í 22. gr., 3 millj., sem greiða á í sambandi við afgreiðslu brtt. við fjárl., 3 millj., sem á að taka að láni í sambandi við sérstök l. um þjóðleikhúsið, 2 millj. samkvæmt l., sem nýbúið er að afgr. í Ed. um fiskiðjuver ríkisins, og svo 4 millj. kr., ef þessi þáltill. verður samþ. Virðist mér því hallinn verða 25 millj. kr. fyrir utan þennan greiðsluhalla upp á 500 þús., sem nú er í fjárl.
Eftir því sem hér hafa fallið atkv., þá er meiri hl. fjvn. á móti þessari þáltill. Það er upplýst, að hæstv. fjmrh. hefur greitt atkv. á móti henni, og væntanlega mun hann þá ekki nota heimildina, þó að hún verði samþ. Það er einnig upplýst, að helmingur ríkisstj. er á móti till Það er einnig auðséð, að sá hluti ríkisstj., sem vill fá till. fram, verður að styðjast við kommúnista, menn, sem þeir hafa lýst á þann hátt, sem alþjóð hefur heyrt, og eru ekki nema nokkrir klukkutímar síðan sú lýsing var gefin. Ég verð að segja, að mér finnst ákaflega einkennilegt, ef hæstv. ríkisstj. treystir sér til að taka á móti þessu máli og öllum þeim afleiðingum, sem af því kunna að hljótast, þegar þannig er í pottinn búið eins og ég nú hef lýst.
Hins vegar furðar mig ekki, að hv. 1. landsk. sé flm. að þessari till. Hann hefur staðið í því nú og haft forustu fyrir því að fá samþ. með aðstoð ríkisstj. 45 þús. kr. laun, 100 daga frí, frítt fæði, fríar tryggingar og skattfrelsi á nokkurn hluta af laununum. Það er ekki furða, þó að maður, sem hefur afrekað slíkt, þurfi að fá einhverja aðstoð til að verja slíkt mál og þá að sjálfsögðu fyrst til að bera fram till. um talsverða hækkun á laun embættismanna. Og þá er augljóst, hvað hefur vakað fyrir honum. Hann talaði um það í sinni ræðu, að þessi flokkur hefði fengið þessa hækkun, en ekki svona mikla, því að allt hans lífsstarf gengur út á að fá flokka til að ganga inn á hækkunartill. til að knýja fram það ástand, sem nú er í landinu í sambandi við kaup og laun.
Sú ríkisstj., sem nú situr að völdum, ætlar að enda þetta þing með því fyrst og fremst að hafa stutt að því, að togaraverkfallið leystist á þann hátt, sem ég hef lýst, og nú að styðja að því að gefa verkföllum byr í seglin um allt land, því að það er vafalaust, að ef þessi till. verður samþ. nú, þá flýtir hún fyrir almennum kröfum um kauphækkanir um allt land. Þetta ætlar hún að taka á sig með fylgi og stuðningi þeirra manna, sem hún nú í tvö kvöld hefur verið að tala við og lýst fyrir þjóðinni.
Ég skal svo enda þessi orð mín með því að segja, að ég öfunda hæstv. ríkisstj. ekkert af þessum verkum.