18.05.1949
Sameinað þing: 77. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 265 í D-deild Alþingistíðinda. (4578)

211. mál, launabætur til opinberra starfsmanna

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Út af orðum hv. 4. þm. Reykv. um þær 30 millj. kr., sem ég gat um, þykir mér rétt að gefa nokkrar upplýsingar.

Um þær 13 millj. kr., sem eru í heimildagr. og bornar eru fram af stj. eða fjvn., er það að segja, að meiri hl. n. var þeim andvígur. Það var vegna beiðni stj. og til þess að fá samkomulag um afgreiðslu frv., að fjvn. gekk inn á þetta, en því miður var það samkomulag ekki haldið. Næst eru 3 millj., er stafa af brtt., er fluttar voru til hækkunar gegn vilja fjvn. Þá eru 3 millj. í sambandi við þjóðleikhúsið, og var það samþ. gegn minni andstöðu, og 2 millj., er samþ. voru í Ed. í gær í sambandi við l. um Fiskiðjuver ríkisins, einnig gegn mótmælum mínum. Meginhlutinn af þessum 30 millj. kr. er því samþ. í andstöðu við fjvn.

Hv. þm. undraðist það, að við, sem erum fulltrúar sveitakjördæmanna, skyldum vera þessu máli andvígir. Ég veit ekki, hvað vakað hefur fyrir öðrum, en ég get sagt hv. þm., að afstaða mín hefur ekki farið eftir því, hvaða kjördæmi ég er fulltrúi fyrir. Í svona málum tel ég mig fyrst og fremst fulltrúa þjóðarinnar, og ég álít, að það sé böl fyrir þjóðina, ef þetta verður samþ., eftir að búið er að afgreiða slík fjárl.

Þá verður ekki vandalaust að skipta þessum uppbótum, þó að þær verði nú greiddar. Margir þessara manna eru lágt launaðir, en þeir geta haft töluverðar tekjur af öðru, því að vinnutíminn er stuttur. En það er ekkert um það sagt, hvernig fara eigi með þetta. Og hvar á svo að taka næstu 4 millj., er sjóðurinn, sem taka á þetta úr, er uppétinn? Því að það er væntanlega ekki bara þetta, sem um er að ræða, og síðan verði launin lækkuð. Það þarf því að sjá fyrir meiru, og hvar á að taka næstu 4 eða 8 millj. verði launin lækkuð? Það þarf því að sjá fyrir meiru, og hvar á að taka næstu 4 eða 8 millj.?

Ég vil líka benda hv. þm. á það, að þetta er afleiðing af hans stefnu, stefnu, sem hann og flokkur hans hafa stutt og farin hefur verið gegn vilja Framsfl. og Sjálfstfl. Ég get einnig upplýst hv. þm. um það, að baráttan í fjvn. stóð um lækkun útgjalda, m. a. í embættisrekstri ríkisins, svo að ekki yrði skorið á lífæðar atvinnulífsins, en það er þýðingarmeira, en sumir embættismenn, sem gera lítið verk. Og það var ekki með hjálp hv. 1. landsk., flokksbróður hans, sem nokkur árangur náðist í þessa átt. Í þeim málum var hann ætíð andvígur niðurskurði. Það voru kommúnistarnir, stjórnarandstaðan, sem fékkst til að fylgja niðurskurði rekstrarútgjaldanna, svo að hægt væri að halda áfram verklegum framkvæmdum. Fyrir þetta fékk ég ávítur hjá hv. 1. landsk., og strax er till. fjvn. komu fram, krafðist hæstv. forsrh. þess, að verk n. væri gert ógilt, því að það væri gert með vilja kommúnistanna. En eftir að fjárl. eru samþ., notar svo hæstv. forsrh. níu kommúnista til þess að koma þessu máli fram. Það eru fleiri en hv. þm. Str., sem ekki munu gleyma þessari nóttu.

Þeir, sem státað hafa af því, að þeirra stefna hafi ráðið, eru nú þannig komnir, að þeir komast ekki upp úr feninu nema með hjálp kommúnistanna.

Ég er þeirrar skoðunar, að sjómennirnir eigi öðrum fremur að fá góð laun. En þegar samningar stóðu yfir í sjómannadeilunni í vetur, kom það ekki málinu við, hvort útgerðarmenn gátu borgað þau laun, er sjómenn vildu fá. Það, sem máli skipti, var það, að þjóðin gat það ekki. En orsökin til þess, hvernig fór um þessa samninga; var sú, að hér í alþingishúsinu sat hv. 1. landsk. í einni stofu og Jón Rafnsson í annarri, og þeim héldu bókstaflega uppboð á fólkinu. Ef annar heyrði, að hinn vildi bjóða þetta, bauð hann betur. Það sama hefur átt sér stað hér í nótt! Kommúnistafl. og Alþfl. hafa haldið hér uppboð á embættismönnunum. Þetta er árangurinn af þeirri stefnu, sem flokkur hv. 4. þm. Reykv. hefur fylgt.

Ég skal svo ekki ræða þetta meira.