28.03.1949
Sameinað þing: 57. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 334 í D-deild Alþingistíðinda. (4604)
169. mál, vantraust á ríkisstjórnina
Gylfi Þ. Gíslason:
Herra forseti. Fyrir hönd okkar hv. 3. landsk. þm., Hannibals Valdimarssonar, leyfi ég mér að gera eftirfarandi grein fyrir atkv. okkar. Við vorum andvígir þessari stjórnarmyndun, þegar til hennar var stofnað, sökum þess að við höfðum rótgróna vantrú á því, að hægt sé að stjórna landinu með hagsmuni verkalýðs og launþega fyrir augum í samvinnu við Sjálfstfl. Við teljum reynsluna af stjórnarsamvinnunni hafa staðfest þessa vantrú okkar á Sjálfstfl. Álítum við, að honum hafi tekizt að móta stjórnarstefnuna of mikið í anda sinnar flokksstefnu. Hins vegar teljum við, að taka eigi ákvörðun um það innan þeirra flokka sjálfra, sem að stj. standa, hvenær þeir óska að láta stjórnarsamvinnunni lokið, og greiðum því ekki atkvæði um þessa vantrauststillögu.