27.01.1949
Sameinað þing: 33. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 343 í D-deild Alþingistíðinda. (4618)
112. mál, mænuveikivarnir
Flm. (Jónas Jónsson) :
Það er ákaflega skrítið, að hæstv. menntmrh. skuli ekki geta skilið það, að þetta eina dæmi um menntaskólapiltinn frá Akureyri, sem fer með fullu leyfi að norðan, þar sem faraldurinn geisar, hingað suður á land, það er einmitt dæmi um það, sem ekki á að leyfa. Það er engu líkara en að hæstv. menntmrh. sé nýkominn í þingið í fyrsta sinn, hann virðist ekki skilja, til hvers þál. eru. Það, sem þingið á að gera, er að fyrirskipa, að beitt verði viðeigandi sóttvörnum. Ef hann getur ekki beitt viðeigandi sóttvörnum, þá segi hann af sér, þá er hann ekki fær um að standa í stöðu sinni. Það er heppilegt, eins og ráðh. gerir, að hóta stjórnarkrísu, ef till. hlýtur samþykki. Hann reynir ekki einu sinni að afsaka yfirsjónir þeirra manna, sem hafa valdið þjóðinni milljóna tjóni. Hann hefur það upp úr krafsinu að sýna, hve honum þykir gaman að hafa þessa menn sér til ráðgjafa. Hann leggur málið fyrir læknana aðeins varðandi Rvík. Til hvers er þess maður á þingi fyrir hérað austur á landi? Það er bezt að hann skýri frá því. —
Það fara menn frá Akureyri til næstu héraða, og þegar þangað er komið, þá leggst allt í kringum þá veikinni.