31.01.1949
Sameinað þing: 34. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 366 í D-deild Alþingistíðinda. (4638)
112. mál, mænuveikivarnir
Jónas Jónsson:
Hv. 1. þm. Árn. hélt því fram, að ég hefði ekki gert skyldu mína viðvíkjandi mænusóttinni fyrir norðan, nema ég hefði sagt um það fyrir fram, að þetta mundi verða slæmur sjúkdómur og bezt yrði að fara varlega. Ég býst við því, að ef einn ráðh. vill fara frá, þegar talað er um sóttvarnir, þá hefði hann sagt af sér, ef spáð hefði verið fyrir þessu. Ef þúsund manns á Akureyri er ekki nægilegt til þess að halda þessum ráðh. rólegum í embætti, þá mundi ekki annað hafa dugað. Á Akureyri hafa skólar ýmist verið opnir eða lokaðir. Meira hringl inn á við er ekki hægt að hafa en þar er. Ég hef einmitt bent á það hér, að beitt yrði viðeigandi sóttvörnum, og það er það eðlilegasta í þessu máli; ef ég hefði sagt algerðum sóttvörnum, þá hefði verið átt við, að þeim yrði beitt alls staðar.
Ég ætla að bæta þessu við fóstureyðingarmálið, til þess að það komi ljóst fram, hvernig málið horfir við. Kæmi ég til læknisins í Rangárvallasýslu og bæði hann að gera eitthvað við líkama minn, væri ósmekklegt af honum að segja frá því. En kæmi ég til hans og segði honum, að ég hefði staðið annan lækni að morði, og gæfi skýrslu um það og hann svo teldi sig bundinn af sínu læknisheiti til að segja ekki frá þessu, þá eru þessir menn komnir inn á allt annað atriði. Það, sem gerðist í þessu tilfelli, er þetta, og er bezt, að hv. þm. viti, hvernig í málinu liggur, að kona fer til hinnar löglegu stofnunar til þess að fá fóstri sínu eytt. Stofnunin neitar, af því að ekki eru fyrir hendi þau skilyrði, sem krafizt er samkv. l. Síðan kemur hún í öðrum erindum til læknis, sem alls ekki hefur viljað eiga við þessar aðgerðir, og segir honum frá því. Læknirinn virðist hafa sagt frá þessu. Nú kemur spursmálið um það: Á mannfélagið að geta haft hendur í hári læknis eða ekki, sem eyðir fóstri, eftir að hin löglega stofnun hefur neitað? Þá lá fyrir hreint dráp, ekkert annað. Það er þetta, sem hv. þm. segir rétt vera.