23.11.1948
Sameinað þing: 20. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 367 í D-deild Alþingistíðinda. (4644)
7. mál, sjóminjasafn
Flm. (Hermann Guðmundsson):
Herra forseti. Ég flutti þáltill. samhljóða þessari í lok síðasta þings, en vegna þess, hve áliðið var orðið, gafst ekki tími til þess að taka till. fyrir. Vegna þess, að ég álít, að hér sé um mikið velferðarmál að ræða fyrir þjóðfélagið í heild, hef ég borið þessa till. til þál. fram á ný.
Það er tvímælalaust til skaða og skammar fyrir íslenzka þjóðfélagið, sem byggir og hefur byggt sína tilveru að mjög miklu leyti á sjávarútveginum, að ekki skuli vera hér til safn, sem geymir sjóminjar. Skaðinn, sem í þessu er fólginn, er sá, að það glatast ýmis gögn, sem lúta að þessum höfuðatvinnuvegi þjóðarinnar, sem gætu verið til fróðleiks fyrir afkomendur okkar. Þar að auki ber þetta vott um ótækt ræktarleysi gagnvart þessum mikilsverða atvinnuvegi okkar, en allar menningarþjóðir, sem þennan atvinnuveg stunda, hafa komið upp hjá sér sjóminjasöfnum, og eiga sumar þeirra mörg söfn og merkileg.
Það er hér ekki verið að hreyfa neinni nýjung, vegna þess að hugmyndin um að stofna sjóminjasafn er gömul. Það er komin meir en hálf öld síðan þessi hugmynd um sjóminjasafn var sett fram af Jóni Þórarinssyni skólastjóra Flensborgarskóla í Hafnarfirði. Síðan hafa ýmsir mætir menn hreyft við málinu. og skriður hefur komizt á það. En þrátt fyrir þetta allt er málið ekki lengra komið en það, að við eigum í dag ekkert sjóminjasafn. Það hefur að vísu verið talað um, að í væntanlegu húsi þjóðminjasafnsins mætti koma fyrir sjóminjasafni. Ég er ekki dómbær um það, en þessu máli hefur verið allt of lítill gaumur gefinn til þessa. — Ritstjóri sjómannablaðsins Víkings hefur fyrir nokkru síðan hreyft þessu máli í útvarpserindi, og útvarpserindi hans hef ég látið fylgja með þessari þáltill.
Ég ætla svo ekki að fjölyrða frekar um þetta mál. Ég vona, að hv. þm. sjái, að hér er um nauðsynjamál að ræða, sem ekki þolir bið hér eftir. Tíminn, sem líður án þess að nokkuð sé aðhafzt í málinu, er til skaða, því að um leið er hætta á, að ýmis verðmæti glatist, sem ef til vill er hægt að ná í, í dag. Ríkisstj. á að hafa forgöngu í þessu máli, og er þess vegna gert ráð fyrir hér, að Alþ. skori á ríkisstj. að hefja nú þegar undirbúning að stofnun sjóminjasafns.
Ég legg svo til að, að þessari umr. lokinni verði till. vísað til hv. allshn.