08.12.1948
Sameinað þing: 25. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 390 í D-deild Alþingistíðinda. (4677)

29. mál, vöruskömmtun o.fl.

Ásmundur Sigurðsson:

Herra forseti. Hæstv. viðskmrh. hefur haldið alllanga ræðu hér til þess að andmæla þessari þáltill., sem hér liggur fyrir, og fór þá nokkrum orðum um ræðu hv. 2. landsk., og komst hann að þeirri niðurstöðu, að ræða hv. 2. landsk. hefði verið illa rökstuddar fullyrðingar og fúkyrði. Ég hef ekki ætlað mér að svara þeim fullyrðingum hæstv. ráðh., hv. 2. landsk. mun svara því sjálfur. En hæstv. ráðh. gat þess í upphafi ræðu sinnar, að nokkrir dagar væru síðan þetta mál hefði verið til umr. fyrst. Það hefði verið óhætt fyrir hann að segja, að það væru nokkrar vikur síðan það var fyrst til umr., því að það voru nokkrar vikur frá því að málið var tekið á dagskrá fyrst og þar til það var tekið á dagskrá aftur. Og það er ekki vafi á því, að hæstv. ráðh. hefur verið að bíða eftir till. frá þeirri n., sem skipuð var til þess að gera till. um skömmtunarfyrirkomulagið, í þeirri von, að hann fengi einhvern grundvöll til þess að standa á í rökræðum um þetta mál.

Tvennt var það, sem hæstv. ráðh. fullyrti í sambandi við þetta mál. Í fyrsta lagi sagði hann, að skömmtun væri gerð af nauðsyn og að þessar till., sem hér er um að ræða, væru aðeins fluttar í áróðursskyni. Skal ég fyrst ræða fyrri fullyrðingu hæstv. ráðh. Okkur er það öllum kunnugt, að vöruskömmtun er ekkert nýtt fyrirbrigði hér á landi, hún var tekin upp t. d. í fyrri heimsstyrjöldinni allýtarlega og strax í byrjun síðari heimsstyrjaldarinnar. Ástæðurnar til þess, að vöruskömmtun er tekin upp á styrjaldartímum, er ákaflega eðlileg. Í bæði þessi skipti, þegar styrjaldirnar eru að byrja, skilur almenningur vel, að hætta getur verið á, að vöruflutningar teppist til landsins og að vörur kynnu að verða ófáanlegar í þeim löndum, sem við höfum skipt við. Vegna slíkra ástæðna er ekki nema eðlilegt, að vöruskömmtun sé tekin upp á þeim tímum, til þess að þeim vörum, sem kostur er á að fá, verði sem réttlátlegast jafnað niður meðal landsmanna. Þess vegna var það, að almenningur í þessu landi sætti sig vel við þá vöruskömmtun, sem sett var í byrjun stríðsins og allan stríðstímann út, enda tókst þá að ná inn í landið nægilega miklum vörum til þess að fullnægja því skömmtunarmagni, sem ákveðið var. Það var aðeins þess vegna, að almenningur gat sætt sig svo prýðilega við skömmtunina. Aftur á móti, þegar skömmtun er tekin upp fyrir rúmu ári síðan, var það af allt öðrum ástæðum, en í byrjun stríðsins. Rökin fyrir því, að skömmtun er tekin upp á síðari hluta ársins 1947, voru þau, að við værum búnir að eyða okkar inneignum og við ættum þess vegna við gjaldeyrisskort að stríða og yrðum því að spara gjaldeyrinn og þess vegna taka upp þessa skömmtun. Því var slegið föstu, að við hefðum ekki möguleika til þess að afla nægilega mikils gjaldeyris fyrir þjóðarbúið, til þess að hægt væri að fullnægja þörfum þjóðarinnar. Þessu var slegið föstu með því að taka upp vöruskömmtun á síðari hluta ársins 1947.

Ef gerður er samanburður á því, hversu mikill gjaldeyrir hefur farið til vörukaupa t. d. síðasta árið fyrir stríðið eða fyrir skömmtunina og í öðru lagi hve mikill gjaldeyrir hefur verið til ráðstöfunar þetta ár, sem búið er að hafa þessa skömmtun á, til þess að vita, hvernig fullyrðing hæstv. viðskmrh. stenzt, að þessi skömmtun hafi verið að öllu leyti gerð af nauðsyn. Ég get viðurkennt, að vissar vörur hefur verið réttmætt að taka til skömmtunar. Þá skulum við athuga það, að samkvæmt upplýsingum frá Landsbankanum og hagstofunni voru árið 1946, þegar enginn skortur var á vörum, fluttar inn vörur, fyrir utan skip, fyrir 412 millj. kr. Fyrri hluta ársins 1947 og 1946 var ekki skortur á vörum, sem nú er skortur á. En innflutningurinn virtist nægur til handa öllum almenningi. 1947 hefur hann hækkað í 430 millj. kr. Og það liggja fyrir upplýsingar um, að gjaldeyristekjur þjóðarinnar á þessu ári muni verða 400 millj. kr., svo að hér er ekki um stórkostlega minnkun að ræða. Þess vegna kemur það spánskt fyrir sjónir, að nú skuli þurfa að gera ráðstafanir sem þessar gjaldeyrisins vegna. Og það er enn þá einkennilegra, að það skuli þurfa að skammta vörurnar svona naumt, þar sem gjaldeyristekjurnar eru þetta miklar.

Þá er vert að athuga, hve mikið þessi skömmtun hefur sparað í hinum ýmsu vöruflokkum. Og hef ég ekki ha.ft aðstöðu til þess að athuga þetta með alla vöruflokka, en ég hef gert það hvað snertir suma þeirra aðalflokka. Samkvæmt hlutfallstölum hagtíðinda hafa kornvörur til manneldis verið fluttar inn árið áður en skömmtunin hófst fyrir 17,5 millj. kr. En aftur á móti fyrsta skömmtunarárið, þ. e. a. s. frá því 1. okt.1947 til 30. sept. í haust, hafa þessar vörur verið fluttar inn fyrir svo að segja nákvæmlega sömu upphæð, þó öllu hærri. Kornvörur til manneldis hefur því verið ástæðulaust og óþarft að skammta. Enn fremur má benda á í sambandi við þetta, að það er hreinn barnaskapur að ætla sér að spara þessa vöru sérstaklega, svo framarlega að ekki þurfi að spara þessa vöru í landinu í heild, vegna þess að þær vörur eru alls ekki dýrari en aðrar vörur, sem notaðar eru. Það er ekki hyggilegt að knýja fólkið til þess að spara þessa vörutegund, kornvöruna, sem mundi leiða aðeins til þess, svo framarlega sem nægileg matvara væri í landinu, að fólkið færi að nota aðra vöru, sem er miklu dýrari, í staðinn. — Árið fyrir skömmtunina voru fluttar inn sykurvörur og sykur fyrir um 7 millj. 986 þús. kr. En þetta ár, sem skömmtunin er, fyrir um 4 millj. 868 þús. kr. Magnið er hér um bil það sama, eða svo að segja alveg, í hlutfalli við verðið. Þarna er í raun og veru um vörusparnað að ræða. N., sem um þessi mál hefur fjallað, leggur til, að þessi skammtur verði aukinn, og er það nokkur bót. Kaffi, te, kakaó, súkkulaði og fleiri þess háttar vörur voru fluttar inn næsta árið fyrir styrjöldina fyrir 5.5 millj. kr., en skömmtunarárið fyrir 2 millj. 800 þús. kr. Þarna er líka um töluverðan sparnað að ræða, sem hefur tekizt með því að skammta þessar vörur svo naumt, að allur almenningur kvartar sáran undan þessu.

Þá er annað atriði, sem oft hefur verið bent á í umr. um þetta mál, að nú þegar kaffið er svona naumt skammtað, að fólkið getur ekki notað það eftir þörfum, þá muni það vera farið að nota annað í þess stað, þegar gesti ber að garði, eins og t. d. Coca-Cola og jafnvel líka áfengi í staðinn fyrir kaffi. Og þegar á það er litið, að með þessari skömmtun á kaffi á að spara gjaldeyri, en í þess stað er farið að nota jafnvel áfengi og Coca-Cola, þá fer að verða vafasamur sparnaðurinn, sem af þessum ráðstöfunum fæst, nema það sé meiningin að auka með þessu tekjur ríkissjóðs. Það er kannske einnig verið að hugsa um að auka gróða þeirra, sem framleiða gosdrykki og annað slíkt. En gjaldeyri þarf þá líka vegna efnis í slíka vöru. Þess vegna verður ekki annað sagt, þó að hægt sé að sýna einhverjar tölur, sem sýna sparnað á gjaldeyri vegna kaffis og sykurvara, að þá kemur eyðsla á gjaldeyri fram á öðrum liðum, sem beinlínis leiðir af sparnaðinum á kaffi og sykurvörum.

Þá vil ég enn fremur koma inn á aðra fullyrðingu hæstv. ráðh. Hann hélt því fram í umr. um málið um daginn, að þessi till. væri flutt í áróðursskyni — hún væri hreinn áróður og til einskis annars flutt. Það er ekkert nýtt að heyra slíkar fullyrðingar, þegar minnzt er á eitthvað, sem miður fer nú á tímum. En að hæstv. ráðh. skuli leyfa sér að halda slíku fram, hygg ég, að komi til af því, að hann hefur lítið hlustað eftir umræðum, sem sýna álít almennings í þessum málum. Ég vil benda hæstv. ráðh. á það, — hann telur sig kannske ekki hafa tíma til þess, — að fara út um landið og hlusta á fólkið í bæjum og þorpum og sveitum landsins, þá mundi hann komast að raun um, að það er ekki eingöngu áróður, sem liggur á bak við þessa þáltill., eins og hann vildi halda fram. Enn fremur vil ég benda á ályktanir ýmissa félaga. Ég hef hér t. d. fyrir framan mig skýrslu um fjórðungsþing Austfirðinga, sem haldið var í okt. s. l., þar sem samþ. var harðorðuð ályktun um þetta skömmtunarkerfi og þar sem farið er fram á að afnema skömmtun á vinnufatnaði. Þingið telur, að við hana sparist svo lítill gjaldeyrir, að slíkt muni ekki geta náð þeim tilgangi, sem ætlazt er til, að hægt verði að ná með henni. En þingið er skipað fulltrúum, sem kosnir eru af sýslun. Norður- og Suður-Múlasýslu og bæjarstj. Seyðisfjarðar- og Norðfjarðarkaupstaða. Og ef hæstv. ráðh. heldur því fram, að þessi till. sé flutt í áróðursskyni, þá má segja það sama um samþ. þessa þings Austfirðingafjórðungs. Það eru einnig miklu fleiri en við flm. þessara till. og fulltrúar á þingi Austfirðingafjórðungs, sem hafa haldið því sama fram. Ég er hér t. d. með úrklippu úr leiðara Tímans, þar sem rætt er um þessi mál og gallana á þeim. Þar segir: „Eins og fyrirkomulag skömmtunarinnar er nú, virðist næsta auðvelt fyrir innflytjendur að selja meira og minna af vörum á svörtum markaði.“ Síðar segir í þessu sama blaði: ,,Meðan þannig er háttað, er oft erfitt að verjast þeirri hugsun, að meiri hluti fjárhagsráðs og ríkisstj. hafi meiri áhuga fyrir því að tryggja gróða heildsalanna af óheilbrigðri verzlun, en að gæta réttar og hags neytendanna. Og sannarlega sýnir þessi afstaða takmarkaðan áhuga fyrir því, að spornað sé við aukinni dýrtíð.“ Þetta er dómur eins stjórnarblaðsins um þessi mál. Ég vildi benda hæstv. ráðh. á líka, að hann ætti að segja samstarfsmönnum sínum til syndanna fyrir að reka svona áróður út af þessu máli.

Ég vil enn fremur benda á ályktun aðalfundar Kron frá síðasta hausti, þar sem fundurinn skorar eindregið á þá, sem með þessi mál fara, að breyta þessu verulega og meðal annars afnema skömmtun á kornvörum og sykri. Og svo veit ég ekki betur, en að hér liggi fyrir Alþ. frv, frá 3 hv. þm. úr Framsfl. um það — ekki að skipa n. til þess að athuga þetta eða breyta því, heldur um það að afnema gersamlega þetta skömmtunareftirlit allt. Hæstv. ráðh. ætti ekki síður að segja þessum mönnum til syndanna, en okkur flm. þessarar till., ekki fyrir að reka svona áróður, heldur fyrir það, að þeir eru með hæstv, ráðh. ábyrgir í þessu efni og reka samt þennan áróður, sem þeir gera rækilega á þennan hátt.

Þá vil ég enn fremur koma rækilegar að ræðu hæstv. ráðh. og þá sérstaklega, hvernig meðferð þessa máls hefur verið hér á Alþ., sem sýnilega er gert í samráði við hæstv. ráðh., að draga umr. um málið, þangað til hann gæti bent á einhvern árangur af starfi þeirrar n., sem hann hefur skipað. Hæstv. ráðh. sagðist hafa skrifað fjárhagsráði 16. sept. s. l. Svo var n. skipuð í okt., en hún var ekki skipuð fyrr en þessi þáltill. var komin fram. En það er eftirtektarvert, að hæstv. ráðh. skipar í þessa n. sömu menn og hafa starfað við þessi mál hingað til með þeim árangri, sem almenningur þekkir. Það er hv. þm. kunnugt, hvernig þessi n. var skipuð, og skal ég ekki fara út í að lýsa því. Síðan var þessi till., sem hér liggur fyrir, tekin til umr., þegar búið var að skipa n. Svo er framhald umr. látið falla niður í margar vikur eða þar til till. eru komnar frá þessari n., sem ég viðurkenni, að eru í vissum atriðum til bóta, en þó alls ekki fullnægjandi. Þegar hæstv. ráðh. flytur sína ræðu fyrir einni viku síðan um þetta mál, var sú ræða mikið í því fólgin að lesa upp till. þeirrar n., og var ekki annað að skilja, en að hann teldi till. n. vera svar fyrir sína stjórn á þessum málum.

Um till. n. er það að segja, að n. leggur til, að skömmtun á öllum búsáhöldum öðrum, en gleri og leir falli niður um næstu áramót. Ef ætla má að þessi n. sé á réttri leið um þetta mál, þá er svipað að segja um flm. þessarar till., þar sem við leggjum til mjög svipaðar aðgerðir. Og þessar till. frá n. yfirleitt eru viðurkenning á því, að hér hafi ekki verið rétt farið að að undanförnu hvað þessi skömmtunarmál snertir, þar sem hún leggur nú til, að skömmtun þessi verði afnumin með öllu. Enn fremur er till. n. á þá leið, að kaffi- og sykurskammturinn verði aukinn, og sýnir það sömuleiðis, að hér hefur heldur ekki verið rétt stefnt áður. Þetta nær yfir 1., 2., og 3. till. n. Síðan leggur n. að vísu til, að óbreytt sé skömmtun á ýmsum öðrum vörutegundum, t. d. sé óbreytt skömmtun á skófatnaði, hreinlætisvörum og kornvörum. En ég hef áður sýnt fram á, að hvað snertir kornvörurnar sé skömmtunin þýðingarlaus. En hvað snertir t. d. að skömmtun á hreinlætisvörum eigi að vera óbreytt, þá er slíkt nokkuð eðlilegt, vegna þess, að það hefur verið svo áberandi, að þessar vörur hafa ekki verið til út á miðana, t. d. úti um land, og þess vegna hefði það verið dálítið óeðlilegt, að n. hefði viljað heimila meiri skömmtun, á meðan ekki er hægt að fullnægja þeirri skömmtun, sem nú er ákveðin. Það mun hafa komið fyrir, sérstaklega úti á landi, að þessir miðar hafi orðið ónýtir, vegna þess að ekki var hægt að fá vörur út á þá. — Þá hefur n. hér enn fremur lagt til, að þótt segja megi, að haldið sé því fyrirkomulagi á skömmtun vefnaðarvöru, þá verði henni breytt í öllum aðalatriðum. Nefndin leggur t. d. til í 11. og 12. lið, að gefnir verði út skömmtunarmiðar fyrir vefnaðarvöru og búsáhöldum fyrir 3 fyrstu mánuði ársins, en þeir haldi gildi sínu til ársloka, en 1. apríl verði svo gefnir út nýir miðar, er gildi til ársloka. Með þessari till. er n. að víta þá aðferð, sem höfð hefur verið í frammi í sambandi við vefnaðarvöruskortinn. Þessi skömmtun var ákveðin þannig upphaflega, að sérstakir miðar voru fyrir ákveðna upphæð vefnaðarvöru og búsáhalda áætluð til ársfjórðungs í senn. Þetta varð svo í reyndinni, að ekki fengust vörur út á þessa seðla nema að litlu leyti, og miðarnir munu hafa verið felldir út gildi, allt, sem ónotað var af þeim miðum, sem áttu að vera fyrir tveggja ársfjórðunga forða. Skömmtun þriðja ársfjórðungs mun hafa verið lækkuð um helming, og engir seðlar gefnir út fyrir fjórða fjórðung. N. leggur til, að miðarnir skuli halda gildi til ársloka, og það er bót, en till. eru ávítur á núverandi skömmtunarfyrirkomulag og bending um, að það geti ekki staðizt.

15. og 16. till. n. eru sömuleiðis árás á núverandi skömmtunarfyrirkomulag og eru til bóta. Hæstv. ráðh. viðurkenndi, að innflutningur á tveimur aðalvöruflokkunum, búsáhöldum og vefnaðarvörum, hefði ekki staðizt. En það var ekki annað að skilja, en þó að hann viðurkenndi þetta, þá vildi hann gera lítið úr því. En hér er eitt stórt atriði, sem meira en nokkuð annað gerir almenning óánægðan og það ekki að ástæðulausu. Það er ekkert smáatriði fyrir almenning, þegar hann fær skömmtunarmiða, sem á að tryggja honum visst magn af ákveðinni vöru, að þetta vörumagn sé fáanlegt. Það er ekki sama fyrir mann, sem er að fara út á sjó, hvort hann getur fengið vinnugalla út á miðann sinn eða hvort hann fær miðann einan. Það er ekki nóg fyrir menn að fá lítinn fallegan miða, H 2 eða S 3 eða hvað það nú er, og fá svo ekkert út á miðann. Þetta er einn stærsti gallinn. Það verður því að framkvæma till. n., því að þær eru til umbóta. En til þess að þessar till. geti borið árangur, verður að skapa samvinnu milli þeirra aðila, sem um þessi mál fjalla, skömmtunarskrifstofu ríkisins, viðskiptan. og fjárhagsráðs, því að það hefur sýnt sig, að þar hefur ekki veríð samvinna. Það virðist hafa verið þannig í framkvæmdinni, að leyfin, sem gefin hafa verið fyrir skömmtunarvörunum, hafa verið gefin allt of seint, því að í mörgum tilfellum þarf langan tíma, frá því að leyfi er veitt og þar til varan kemur. Og þegar leyfi er ekki veitt fyrr en á að fara að skammta vöruna, þá verður það til þess, að varan er ekki til, þegar fólk þarf á henni að halda.

Þá vil ég benda á, að ýmislegt er það í þessum till., sem eitt út af fyrir sig væri nægilegt til þess, að Alþ. afgr. það skjótasta þessa till., sem hér liggur fyrir. T. d. er þar engin bót ráðin á þeirri misskiptingu, sem er á þeim vörum, sem mest þurrð er á, sykri og kaffi. Brauðgerðarhús, veitingahús og kaffihús geta fengið skammt til sinnar framleiðslu, og þeir, sem efni hafa á því, geta farið þangað og fengið þannig miklu meira af þessum vörum en þeir, sem verða að láta sér nægja það, sem þeir geta fengið út á sína miða. Þetta er mikið misrétti, og það er ekki gerð minnsta tilraun til að ráða bót á þessu. Enn fremur vil ég benda á, að þrátt fyrir það að n. bendir á, að það eigi sér stað, að menn safni birgðum, t. d. skófatnaði o. fl., er þó engin tilraun gerð til að ráða bót á þessu. Hér er um stórt atriði að ræða. Það er viðurkennt, að það eigi sér stað baktjaldaverzlun, svartur markaður, en engin tilraun er gerð til að ráða bót á þessu.

Þá vil ég leyfa mér að benda á, að það er ekki eðlilegt samræmi að ætla sama skammt öllu fólki. Það er ekki eðlilegt, að smábörnum á fyrsta ári sé ætlaður kaffiskammtur. Þetta og fleira má benda á, sem nokkuð breytist til batnaðar, ef till. n. verða framkvæmdar. Annars hef ég frétt það, að ekki muni enn vera samkomulag um framkvæmd þessara till. milli skömmtunarskrifstofunnar og viðskiptan., svo að ég tel hæpið að fullyrða, að fullt samkomulag sé komið, þó að hæstv. viðskmrh. hafi lýst þessu fyrir okkur hér fyrir viku síðan. En þó að hæstv. ráðh. hafi látið gera eitt og annað í þessu máli, af því að hann fann sig knúðan til þess af almenningsálitinu, m. a. vegna flutnings þessarar till., þá er fjarri því, að ég telji, að þar með sé full bót á ráðin, og þess vegna tel ég fulla ástæðu til, að þingið afgr. þessa þáltill. fljótt. Hún er búin að liggja fyrir þinginu nægilega lengi, og þarf að afgr. hana fljótt, til þess að sú n., sem hana fær, geti afgr. hana fljótt frá sér aftur.