08.12.1948
Sameinað þing: 25. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 418 í D-deild Alþingistíðinda. (4690)

43. mál, landhelgisgæzla og stækkun landhelginnar

Jónas Jónsson:

Herra forseti. Það er nú orðið alllangt síðan þetta mál var hér síðast til umr., en hv. þm. minnast þess, að till. þessi til þál. fer fram á gerbreytingu á skipun landhelgisgæzlunnar. Till. er flutt af þrem ungum lögfræðingum, sem allir eru komnir út af frægum mönnum. Einn er náfrændi Hannesar Hafsteins fyrrv. ráðherra, sem lét mál þessi mjög til sín taka, annar er afkomandi sr. Sigurðar Stefánssonar í Vigur, sem barðist fyrir stofnun landhelgissjóðsins, og sá þriðji er kominn út af þjóðfrægu skáldi. Það er því mjög vel vandað til hv. fl., bæði að ætterni og lögfræðilegum undirbúningi. Það er aftur annað mál, að þessir ungu menn hafa ekki haft nein hagnýt skipti af landhelgismálum. Þeir hafa ekki önnur kynni af sjómennsku en að hafa e. t. v. einhvern tíma ferðazt með skipum, og ekki hefur áhugi þeirra á landhelgismálum komið fram í verki, nema í þessari till. og svipuðum till. áður. Og ég get fullyrt, að þessar till. eru óraunhæfar í augum þeirra manna, sem kynnt hafa sér þessi mál á þann hátt, að verði þeim til skilningsauka. Þeir, sem mest kynni hafa af þessum málum, eru sjómenn, og þeir réðu fyrr því, sem bezt var gert. En þessir ungu menn koma úr stofum kaupstaðanna — það mætti kalla þá salherra — og gera till. utan við veruleikann. Till. byrjar á því, að þeir krefjast þess, að landhelgismálin verði í sérstakri deild í dómsmrn. Þetta er furðulegt, því að þar hafa landhelgismálin alltaf verið, þótt framkvæmdavald þessara mála hafi að nokkru leyti verið í öðru ráðuneyti, enda kom í ljós hjá hæstv. utanrrh., að hann teldi eðlilegt, að slík tilfærsla ætti sér stað. Gagnrýni hv. flm. á þessu atriði er því ekki studd af hæstv. utanrrh. Réttarfarshlið þessara mála er og hjá dómsmrh., þannig að þegar varðskip hafa tekið bát fyrir að veiða í landhelgi, þá heyrir sú málsmeðferð eingöngu undir dómsmrh. Ég býst ekki við, að hv. flm. hafi verið þetta ljóst, en dæmi, sem þeir hefðu átt að þekkja, er það, að þegar bátar hafa verið teknir í landhelgi, þá hafa sektir af þeim ekki verið innheimtar undanfarið, af því að þær hafa verið svo geysiháar, eða allt upp í 30 þús. kr., þannig að það virðast ekki skynsamleg lög, sem um þetta gilda. Því hafa dómsmrh., bæði núv. og einn eða fleiri fyrrv., ekki innheimt sektirnar, svo að milljónir króna í ógreiddum sektum voru útistandandi þangað til núv. hæstv. dómsmrh. fór að vinna að því að bjarga þessu máli með því að náða þá menn, er í hlut áttu, og láta þá greiða hlut sektar. Þessi hlið landhelgismálanna hefur algerlega verið hjá dómsmrn., og er þetta gott dæmi um það, að þar hefur æðsta yfirstjórn þeirra mála alltaf verið og er enn. Þar sem nú hv. flm. telja það höfuðatriði, að öll yfirstjórnin fari fram í dómsmrn., þá vil ég benda á, að hér virðist nokkuð hafa hallað á dómsmrn. um dugnað, því að hæstv. utanrrh. hefði fyrir löngu átt að vera búinn að undirbúa breyt. á l. um sektirnar. Hins vegar hefur hæstv. menntmrh. staðið fyrir framkvæmdum í þessum málum, m. a. gengizt fyrir að fá nýtt gæzluskip, og fyrir það ættu hv. flm. að vera þakklátir, því að það er í samræmi við þeirra stefnu að kaupa stór skip og dýr. Ég bendi enn fremur á, að dómsmrh. hefur ekki veitt landhelgisgæzlunni þann stuðning og þá vernd, sem hún á skilið. Fyrir skömmu voru teknir í landhelgi 9 togbátar, og var það gert að mestu fyrir tilstyrk flugvéla, en að nokkru leyti með varðbátum. Þessir bátar, eða eigendur þeirra, voru svo dæmdir, en þá brá svo við, að einn af eigendunum og kannske fleiri fóru í blöðin með ádeilur fullar af meiðyrðum um starfsmenn landhelgisgæzlunnar. Þeim var jafnvel borið meinsæri á brýn. Mér finnst, þegar svona er farið að, að þá eigi ríkisstj. og þá dómsmrn. að taka málið upp og sækja til sektar þá, sem þannig koma fram við starfsmenn landhelgisgæzlunnar. En það var ekki gert, og fleiri dæmi mætti nefna um vanrækslu dómsmrn. við landhelgisgæzluna, og kem ég að því síðar. Því finnst mér það koma úr hörðustu átt, þegar þessir þrír áhugasömu ungu lögfræðingar krefjast þess, að dómsmrn. fái meiri afskipti af þessu máli en eðli þess leyfir. Úr flokki hv. flm. hafa nafnkenndir lögfræðingar farið með þessi mál, svo sem Einar Arnórsson, Pétur heitinn Magnússon og nú síðast Bjarni Benediktsson. Samt sem áður hefur ekki betur til tekizt en svo, að nauðsyn er breytinga á l. um þessi mál. Bendir þetta til þess, að þessir skörungar hafi ekki haft nægilegan áhuga á málinu, og veit ég, að hv. flm. átta sig á því, að með till. sinni eru þeir raunverulega að lýsa vantrausti á hæstv. utanrrh.

Ég vil nú, af því að málið er sótt með mikilli atorku, leyfa mér að gefa yfirlit yfir þann tíma, sem landhelgisgæzlan hefur staðið, með tilliti til þess, hvort rétt sé, að lögfræðingum verði fengin í hendur öll stjórn þessara mála.

Þá er að byrja á byrjuninni, þegar Jón Magnússon var ráðh. og þegar kom að því að framkvæma vilja séra Sigurðar í Vigur, þá var það hann, Jón Magnússon, sem hafði aðalforustuna um byggingu Óðins og rekstur hans. Mér er ekki kunnugt um, til hvaða kunnáttumanna hann hefur leitað, en þegar skipið kom frá Danmörku, þar sem það var smíðað, þá kom í ljós, að það var mjög illa fallið til starfans, sem því var ætlaður. Tilfinnanlegir smíðagallar voru á því, svo að við lá, að því hvolfdi í góðu veðri í mynni Siglufjarðar. Þetta leiddi svo til þess, að Jón Magnússon sendi skipið aftur út til þeirrar smiðju, er byggði það, og hafði hann nú með í ráðum mesta kunnáttumann hér á þessu sviði, Emil Nielsen. Var nú skipið lengt um 13 fet og gert svo úr garði, að það varð sæmilega sjófært. Veit ég, að upphaflega var Emil Nielsen ekki kvaddur til ráða, heldur hafa það sennilega verið einhverjir útlendingar, sem voru ráðgjafar Jóns Magnússonar, eða þá einhverjir sjómenn, sem ekki höfðu næga þekkingu til að bera, því að fyrir utan þennan ótrúlega galla á skipinu, að það var varla eða ekki sjófært — þá var það eftirlíking af litlu herskipi og t. d. mjög eyðslusamt á kol. Það verður því að segja, að framkvæmdin um útvegun Óðins var ákaflega misheppnuð, og átti þó hér hlut að máli einhver slyngasti lögfræðingur, sem hér hefur verið. Hann var t. d. sakir vitsmuna sá af mínum andstæðingum, sem mér hefur þótt erfiðast að fást við. En honum yfirsást í því, að hann mun hafa kvatt sér til ráða útlenda salherra í stað íslenzkra kunnáttumanna. Jón Magnússon dó, þegar skipið var nýsmíðað, og var rekstrarstjórn þess fyrst í stjórnarráðinu, þar sem voru ágætir lögfræðingar, sérstaklega skrifstofustjórinn, en engir, sem æfingu höfðu á sjó, og var rekstur varðskipsins hafður þar í hjáverkum. Til dæmis þótti mér, þegar ég kom í ríkisstj., að ekki væri vel séð fyrir bókhaldinu, og fékk ég málið í hendur kunnáttumönnum.

Hv. þm. Barð. kvaðst fylgjandi till. þrímenninganna, og þótti honum vera mikill kostnaður við landhelgisgæzlustörfin, en það færi á móti allri reynslu, ef hin nýja deild yrði ekki til að auka kostnaðinn, og það er sannarlega ekki mikið, þótt kostnaðurinn í landi sé þriðjungur af kostnaði eins varðbáts. Hv. þm. Barð. hlýtur því að sjá, að hér er ekki óhæfilega í sakirnar farið, og ekki hefur forstjóri Skipaútgerðar ríkisins, Pálmi Loftsson, mikið kaup. Hann hefur ekki nema 10 eða 11 þús. kr. í grunn á ári og er þannig ekki hálfdrættingur á við loftskeytamenn, og laun hans eru einnig aðeins brot af launum skipstjóranna á togurunum.

Kem ég þá að því, sem virðist vera tilgangur hv. flm., en hann er sá að losna við forstöðu Pálma Loftssonar í landhelgismálunum, enda hafa þeir áður flutt till., sem ekki var viðurkennandi um hann. Pálmi Loftsson kom í þjónustu Skipaútgerðarinnar árið 1930 sem yfirmaður landhelgisgæzlunnar og strandsiglinganna. Auk þess hefur hann verið ráðunautur ríkisstj. Aðkoma hans var ekki skemmtileg. Skipaútgerðin átti Óðin til landhelgisgæzlunnar og ekki annað skip, en gömlu Esju til strandsiglinga. Það voru því þessi tvö skip, sem Pálmi Loftsson tók við og átti bæði að nota til strandsiglinga og gæzlu. Aðkoman var og óskemmtileg að öðru leyti. Bókhaldið var ófullkomið um Óðin og tekjuhalli á rekstri Esju. Óánægja var meðal fólks út af litlum strandsiglingum og lélegri gæzlu. Hlutverk Pálma Loftssonar var því að byggja þetta hvort tveggja upp og hjálpa auk þess flóabátaútgerðinni. Eitt hans fyrsta verk var að kaupa Súðina, og þótti sumum gott kaup á 110 þús. kr. Hún var að vísu gömul, en hvergi nærri eins gömul og Hæringur nú, og var mikið deilt á Pálma fyrir kaupin, en Súðin er enn við lýði og er nú boðin fyrir um 800 þús. kr., svo að þau kaup hafa blessazt vel, þegar litið er á það, hve lítið hún kostaði, hve mikið hún hefur gert og hvers virði hún er nú. Enn fremur var það fyrir frumkvæði Pálma Loftssonar, að gamla Esja var seld fyrir 400 þús. kr., og mátti kalla það þrekvirki. Fékk hann í staðinn nýju Esju, sem er fyrsta skipið, sem sniðið er eftir þörfum íslenzkra strandsiglinga. Eftir tekjuhallanum á gömlu Esju mætti gera ráð fyrir einnar milljón króna taprekstri á Esju á ári nú. Það var af því, að þetta var kolaskip. En síðan nýja Esja kom, sem Pálmi Loftsson hefur ráðið um kaup á, þá hefur hún yfirleitt unnið fyrir sér sjálf. Það er ákaflega skemmtilegt fyrir þingið að vita það, að á þess vegum hafa verið einstöku sinnum gerðar framkvæmdir, sem hafa orðið til þjóðþrifa, sem ótrúlegt má þykja. Fram að þessu hafði verið tekjuhalli á strandferðaskipunum. En Pálmi Loftsson sýndi fram á, að ef þau væru nógu vel smíðuð og nógu heppileg, þá væri hægt að gera kostnaðinn af rekstri þeirra lítinn eða jafnvel engan umfram tekjurnar. Síðan vita menn, að Pálmi Loftsson hefur staðið fyrir því að kaupa fyrir Alþ. og ríkisstj. og láta byggja þrjú ný skip, Heklu, Skjaldbreið og Herðubreið. Og það er vitað a. m. k., að fólkið er ánægt með þau skip. Og óhætt mun að segja, að aldrei í sögu landsins hafi verið eins miklir möguleikar fyrir góðar strandferðir og einmitt nú, bæði fjárhagslega og að öðru leyti. Ég held, að það sé ekkert á móti því að minnast á það, hvað það þýðir, ef virkilegir kunnáttumenn eru valdir til þess að annast slík mál sem þessi. Og ég vil líka minna á það hins vegar, að þegar verið var að byggja gömlu Esju í ráðherratíð Klemensar Jónssonar, þá var um það deilt, hvort ætti að hafa nokkurt farþegarými á því skipi. Sumir vildu útbúa lestir þannig í skipinu, að það mætti setja í þær kojur, til þess a. m. k að flytja fólk að sumrinu, en senda hana til Spánar með fisk að vetrinum. En það eru verðleikar Pálma Loftssonar, að hann braut á móti þessari stefnu. Það eru sjálfsagt sumir menn, sem koma á Heklu og Esju, sem segja, að þar sé óþarflega mikið í borið og að þar eigi ekki að vera svo fínt fyrir almenning. En það er víst, að þessi skip borga sig betur. — Það má segja, að það sé nokkuð skylt með Emil Nielsen, sem byggði upp allan hinn gamla flota Eimskipafélags Íslands, og Pálma Loftssyni, sem hefur staðið fyrir byggingu strandferðaflotans og að nokkru leyti varðskipanna, að þessir tveir sjómenn, sem voru búnir að læra í skóla lífsins hér á hafinu við Ísland, hafa skilið eftir sig mikið starf og eiga miklar þakkir og viðurkenningu og munu hljóta þær af öllum þeim, sem dómhæfir eru.

Ég kem þá að gæzlumálunum. Þegar ég kom í stjórnarráðið á eftir Jóni Magnússyni og Magnúsi Guðmundssyni, gat ég ekki annað en viðurkennt, að ég var alveg fáfróður um sjómennsku, ekki síður en þeir ágætu lögfræðingar, sem í stjórninni voru. En ég dró af því þá ályktun, að úr því að ég og aðrir í stjórnarráðinu væru ókunnugir sjávarútvegsmálum, væri um að gera að velja til þessa starfa þann mann, sem kunnugur væri sjómennsku og gæti vel staðið fyrir landhelgisgæzlunni. Var þá Pálma Loftssyni fengið að sjá um framkvæmd landhelgisgæzlunnar ásamt útgerðarstjórn ríkisskipanna. En lögfræðilega hlið málsins var hjá skrifstofustjóranum í stjórnarráðinu, Guðmundi Sveinbjörnssyni, eins og mun vera hjá núverandi dómsmrh. Það, sem hafði svo gerzt skömmu áður en Pálmi Loftsson tók við þessum gæzlumálum, var það, að Alþ. hafði samþ. að kaupa annað skip til varðgæzlunnar. Menn voru svo stórhuga, að þeir vildu gera landhelgisgæzluna íslenzka. Mitt hlutverk varð því að fá kunnáttumann til þess að sjá um að byggja nýtt skip. Og árið 1928 var ég ekki í vafa um, að sá eini maður, sem ég gæti snúið mér til um þetta, væri Emil Nielsen. Honum var svo falið að sjá um byggingu Ægis, sem hann gerði án endurgjalds. Ég held, að honum hafi þótt gaman að því að gera þetta fyrir landið. Honum stóð til boða borgun fyrir þetta sitt góða verk, en hann óskaði ekki eftir borgun. Þegar svo þetta skip var komið, var Pálmi Loftsson ráðinn framkvæmdastjóri þessara mála, og eftir það hefur hann að mestöllu leyti haft framkvæmdir í þessum málum.

Árið 1930 kom það til mála, hvort ætti að kaupa þriðja varðskipið. Gamli Þór Vestmanneyinga, sem var nú hafður að nokkru leyti í strandgæzlu, hafði strandað á Húnaflóa. Og þá var spursmálið, hvort það átti að kaupa nýtt skip fyrir hann eða láta annað hvort gæzluskipið taka upp störf við Vestmannaeyjar með annarri gæzlu. Menn voru stórhuga, og meiri hluti Alþ. samþ. að kaupa nýtt skip. Ég sá fram á, að landið mundi ekki rísa undir þessu, sem og varð. En Alþ. varð að ráða, og Þór var keyptur á rúmlega 100 þús. kr. Það kaup var mikið gagnrýnt, en hann mun hafa verið seldur fyrir þrefalt það verð, sem hann var keyptur fyrir, svo að ekki var skaði á honum að því leyti. En eftir að ég fór úr stjórnarráðinu 1932, kom tveggja ára tímabil, þegar Magnús Guðmundsson, sá ágæti lögfræðingur, hafði alveg með strandgæzluna að gera, og af því er skemmst að segja það, að á því tveggja ára tímabili gerðist ekkert í þeim málum, hvorki illt né gott, og ekkert til vansa. En það kom ekkert fram hjá þessum annars mjög athafnasama lögfræðingi, sem bætti um frá því, sem hafði áður verið hjá Pálma Loftssyni, við daglega stjórn skipanna. En það gerðist að vísu einn hlutur þessi 2 ár og næstu ár á eftir, sem er eftirtektarverður. Þá var komin kreppa í landinu, og fjmrh. hafði engin ráð til þess að hagnýta þrjú skip við strandgæzluna. Og það var ekki af áhugaleysi, heldur getuleysi ríkisins, að Magnús Guðmundsson og eftir hann Hermann Jónasson, sem tók við af honum árið 1934, höfðu ekki önnur ráð en að láta helming flotans liggja í höfn til þess að spara. Á þessum árum var slík kreppa, að dilkarnir seldust á fimm kr. að hausti til. — Með því gátu þeir a. m. k. sparað kol, þó að starfsmenn á skipunum væru á kaupi. Þarna hafði því komið fram ómótmælanlega, að það eru takmörk fyrir því, hvað ríkið getur og vill eyða í landhelgisgæzlu. Það kom í ljós í nokkur ár, að það varð að láta eitt eða fleiri af þessum skipum liggja í höfnum fyrir getuleysi ríkisins. Og þá sá hæstv. Alþingi sem var ekki flokksmál, heldur allra flokka samþykkt — að það varð að gera á þessu breytingu. Og þáverandi forsrh., núverandi hv. þm. Str., setti nefnd til þess að gera till. um, hvernig fara skyldi að. Og nefndarmenn settust á rökstóla og komust að þeirri niðurstöðu, að það yrði að færa landhelgisgæzluna á alveg nýjan grundvöll og þjóðin hefði ekki efni á því að kosta mikinn skipaflota af stórum skipum til þessarar gæzlu, en að það yrði farsælast að hafa aðallega báta og eitt stórt skip til þessara starfa. Þessar till. þessarar þriggja manna nefndar fengu þær viðtökur hjá þinginu, að það samþ. að selja Óðin úr landi, fyrir því að hann var talsvert dýrari í rekstri en Ægir, og reynsla var fyrir því, að hentara var að hafa vélskip til gæzlunnar heldur en gufuskip. Þetta var ekki sársaukalaust. Ég man eftir því, að íslenzkar konur horfðu með trega upp á það, að Óðinn sigldi með sænsku flaggi hér út úr höfninni. Það var sorg fyrir Íslendinga að verða að selja íslenzkt skip, sem hafði starfað fyrir landið. En vegna fjármálahliðar málsins var þetta gert. Samkv. áliti þremenninganna var ákveðið að byggja nýjan varðbát í staðinn fyrir stóra Óðin, sem er núverandi vélbáturinn Óðinn, sem er búinn að starfa fyrir landið. Pálmi Loftsson lét byggja hann hér á landi. Hann mun vera 70 smálestir að stærið og mun hafa kostað um 100 þús. kr. Þó að það væri einlægur vilji þingsins, að fleiri bátar væru byggðir til gæzlunnar, varð það ekki. Það stóð á peningum. Skipaútgerðin leigði því vélbáta frá einstökum mönnum og hafði venjulega fjóra báta í gangi, og svo Ægi til strandvarnanna, og vopnaði þá. Nú vil ég segja hæstv. Alþ. frá einni hlið þessara mála, þó að hún skipti litlu eftir á, en var þó nokkurs virði á sínum tíma. Þegar byggingarreikningur kom fyrir Óðin, var 60 þús. kr. liður á reikningnum fyrir fallbyssu á skipið og fyrir að setja niður þessa fallbyssu. Þetta þótti nokkuð dýrt. Og þegar farið var að hafa varðbáta til gæzlunnar, þá fannst útgerðarstjóranum ómögulegt fyrir þá að starfa, ef þeir hefðu ekki vopn. Hann skrifaði svo dómsmrn. danska og óskaði eftir að fá keyptar hjá þeim litlar fallbyssur af hæfilegri stærð fyrir bátana. Hann fékk aftur snúðugt bréf frá þeim þar ytra, þar sem sagt var, að tormerki væru á því, að Íslendingar gætu fengið þessa hluti þar. Pálmi Loftsson skrifaði þá aftur og sagði, að ef Danir vildu ekki selja byssurnar, þá gæti hann keypt þær annars staðar. Þá kom skeyti frá þeim dönsku um það, að þeir skyldu selja byssurnar. Þær voru svo settar í bátana, og voru tveir eða þrír menn við það í tvo eða þrjá daga, og það kostaði sama og ekkert. — Þetta sýndi það, hvernig landhelgismálin gátu verið rekin, þegar þau voru orðin íslenzk og Íslendingar tóku að gera sjálfir meira af þessum störfum í sambandi við gæzluna en áður hafði verið. — Það liðu svo nokkur ár, að landhelgisgæzlan var í þessu formi. Ægir varð að liggja á vertíð við Vestmannaeyjar til þess að bjarga bátaflotanum. Varðbátarnir voru víðs vegar kringum landið, a. m. k. á Faxaflóa og Vestfjörðum á þeim tíma og sinntu björgunarmálum um leið og þeir önnuðust strandgæzluna, eins og ég mun sérstaklega koma að.

Ég hef nú hlaupið yfir það, sem var mikið og erfitt mál hér á fyrstu árunum, þegar við vorum að reyna að koma landhelgismálunum í fastar skorður. Spursmálið var þá, hvort togaraflotinn íslenzki að meira eða minna leyti misnotaði dulskeytasendingar frá útgerðarstjórunum, þannig að togurunum væri leiðbeint með þeim skeytum til þess að geta brotið landhelgislögin, án þess að verða teknir. Ágúst Flygenring, mikill maður og duglegur þingmaður og sæmdarmaður, hafði sagt það, kannske í nokkrum hita, en sagt það samt, að það vissu allir, að útgerðarstjórar sumir hverjir stýrðu togurunum með loftskeytum inn í landhelgina. Þetta var þar að auki mál almannarómsins í landinu, svo sem kunnugt er, að svona mundi það vera. Mér fannst það skylda mín, meðan ég hafði umsjón með gæzlunni, að reyna að hindra misnotkun í þessum efnum, þar sem mörg hundruð þús. kr. hafði verið varið til landhelgisgæzlunnar með kostnaði við skipin. Ég bar svo fram frv. um þetta mál, um það að setja dulskeytin undir eftirlit. Um það urðu harðar deilur í þinginu í nokkur ár. Ég var kominn nokkuð nærri því að koma því í gegn. En ævinlega, þegar ég hélt, að ég væri að vinna sigur í þessu máli, bilaði einhver lítill hlekkur einhvers staðar, og málið dagaði uppi. Þarna var auðsjáanlega við ramman reip að draga. Menn sögðu: Þetta er ekki rétt, togurunum er ekki stýrt inn í landhelgina. Og ég fór svo úr stjórnarráðinu, að ég hafði ekki komið fram þessu máli. Og við Ágúst Flygenring lágum undir því ámæli, að við hefðum í þessu efni á röngu að standa og aðrir, sem höfðu tekið þessa skoðun.

Eftir að Hermann Jónasson hafði tekið við dómsmrh.-störfum, var Pálma Loftssyni falið að nýju að annast framkvæmd landhelgisgæzlumálanna. Og hann taldi líka sína skyldu sem framkvæmdastjóra að reyna, ef hægt væri, að hindra það, ef satt væri, að togurunum væri stýrt með loftskeytum inn í landhelgina til veiða þar. Og bæði gerði hann nokkrar ráðstafanir til þess og svo bárust þar að auki sannanir upp í hendurnar á útgerðarstjórninni. Sumpart fannst lykill að dulmáli í einum útlendum togara, sem Ægir bjargaði, sem sýndi, hverjir það voru hér í landi, sem voru með í þessu. Þar að auki fannst hjá öðrum manni, sem stundaði útgerð, dulmálslykill, sem sýnilega var notaður til þess að stýra togurum inn í landhelgina. Það fengust því alveg fram sannanir fyrir því, að Ágúst Flygenring hafði haft á réttu að standa. Það var svo hafin rannsókn í þessu. Og íslenzkir menn, og það dugandi menn margir, urðu sannir að sök um að reka þessar njósnir, sumpart fyrir íslenzk skip og sumpart fyrir útlend. Eftir það var ekki erfitt að koma málinu um eftirlit með dulmálsskeytum fram á Alþ. Og þetta eftirlit var sett upp í loftskeytastöðinni til þess að hindra það, að þessi misnotkun skeytasendinganna héldi áfram.

Ég hygg, að þegar löggjöf um það var sett, að landið hefði fjóra báta til landhelgisgæzlunnar, þá hafi verið búið að ná því hámarki, sem hægt var að leggja á fólkið í þessum efnum. Þá held ég, að landhelgisgæzlan hafi verið orðin svo fullkomin sem ríkið gæti borið hana og sem þá var hægt að búast við að hægt væri að framkvæma.

Nú vil ég spyrja hv. 1. flm. þessarar þáltill., sem hefur í ræðu og riti mjög vikið köldu að útgerðarstjóranum, Pálma Loftssyni: Er hann viss um það, að það eimi ekki eftir af einhverri beiskju í garð Pálma Loftssonar fyrir það, að hann í embættisnafni og óhjákvæmilega sem starfsmaður landsins varð að gera það, sem hann gerði, er hann var að hindra, að veiðiskipum væri stýrt inn í landhelgina, þannig að Pálmi Loftsson varð sem slíkur embættismaður að leggja fyrir dómstólana þau gögn, sem komu upp í hendurnar á honum, sem varð til þess, að þeir menn voru dæmdir sekir, sem sekir voru? Mig grunar, að enn þá sé nokkur beiskja í mönnum út af því, að það skyldi verða framkvæmd á þessu. Og þetta er hlutur, sem ekki er hægt að þegja um. Og við megum biðja Guð að hjálpa okkur, ef á að fara að ofsækja menn fyrir það að framfylgja réttum landslögum í málefnum, sem hafa stórkostlega alþjóðlega þýðingu. [Frh.]