02.02.1949
Sameinað þing: 35. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 459 í D-deild Alþingistíðinda. (4759)

62. mál, framleiðsla raftækja innanlands

Flm. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. Það, sem hv. þm. Ísaf. sagði, var nú úr ýmsum áttum komið. Hann lét af kunnleika sínum á raftækjaverksmiðjunni í Hafnarfirði. Ég get nú upplýst hv. þm. um það, að ég er þar dálítið kunnugur líka og átti t. d. tal við forstjórann, áður en ég skrifaði till., enda segi ég í grg. minni fyrir till., að verksmiðjan sé mjög myndarlegt fyrirtæki. Það var forstjórinn sjálfur, sem gaf mér þær upplýsingar, að undanfarin 3 ár hefði verksmiðjan aldrei fengið nóg efni. Það er rétt, sem hv. þm. sagði, að afgreiðslutíminn er langur, en einmitt þess vegna er ekki rétt að láta forstöðumenn fyrirtækisins vera á bónbjörgum mánuð eftir mánuð eftir leyfisveitingum. Afleiðingin verður sú, að efni verksmiðjunnar er þrotið löngu áður en næsta sending kemur.

Þessi till. er þannig ekki á neinn hátt óþörf. Hún væri þörf, þótt ekki væri nema vegna þess, að með henni er fjárhagsráði gefin áminning um, að þegar svona stendur á, er ekki heppilegt að láta fyrirtækið bíða mánuðum saman eftir innflutningsleyfum.

Það er vitaskuld rétt hjá hv. þm., að það þarf að takmarka það, hve margt fólk fer frá útflutningsframleiðslunni til iðnaðarins, og það er enda fjarri því, að augljóst sé, að ýmiss konar iðnaður, sem hér er rekinn, borgi sig gjaldeyrislega. En þessi iðnaður borgar sig augljóslega.

Ein röksemd hv. þm. gegn því að flytja inn vélar var sú, að raftækjaverksmiðjan hefði nægar vélar. En staðreynd er hins vegar hitt, að ef verksmiðjan ætti að fullnægja eldavélaþörfinni, með þeim húsa- og vélakosti, sem hún hefur, þá gæti hún ekki fullnægt öðru. Það eru takmörk fyrir afköstum hennar. Það er rétt, að það verður að vinna í vöktum, ef það á að fullnægja eftirspurninni eftir eldavélunum, og það er vegna þess, hve vélarnar eru takmarkaðar.

Ég held, að þetta sé nokkuð augljóst mál. Og ég geri fastlega ráð fyrir því, að þm. líti rétt á þá þörf, sem við höfum fyrir þessar vélar í landinu, og till. verði því samþ.