10.02.1949
Sameinað þing: 38. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 509 í D-deild Alþingistíðinda. (4800)

73. mál, Kaldaðarnes í Flóa

Flm. (Gísli Jónsson) [Frh.] :

Þegar ég frestaði ræðu minni hér um daginn, þá minntist ég á, að Framsfl. hefði sent þrjá af sínum sterkustu ræðumönnum til að reyna að hrekja þau rök, sem ég kom með í framsöguræðu minni, svo mikils þótti við þurfa. Ég vil nú fara nokkrum orðum um mótrök þeirra, eða það, sem þeir kalla svo, svo að hv. þm. gefist frekari kostur að dæma á milli gagna og raka þeirra og minna.

Ég vil þá fyrst og fremst snúa máli mínu til hæstv. atvmrh., Bjarna Ásgeirssonar. Hann lagði afar mikinn þunga á það í ræðu sinni og færði fram sem meginatriði fyrir því, að ég hefði flutt hér rangt mál, að ég hefði flutt skrifaða ræðu í þetta sinn. En ég fullvissa hann um, að sjálfur tel ég mál þetta svo merkilegt, að ég vildi ekki, að framsöguræða mín í því birtist í þingtíðindunum á nokkurn annan hátt en ég flutti hana, en eins og honum er ljóst, geta ræður skolazt til hjá þingriturunum, en ég vildi ekki, að neitt skolaðist til í ræðu minni.

Þá vék hæstv. ráðh. að því, að Jörundur Brynjólfsson hefði þurft að hverfa burt frá Skálholti, til þess að vera hans þar yrði ekki til að hindra framkvæmd skólans þar, sem honum, þ. e. ráðherranum, hefði sérstaklega verið falið sem ráðherra að koma í framkvæmd. Einnig hélt hæstv. ráðh. því fram, að Jörundur Brynjólfsson hefði haft fullan rétt á að kaupa Kaldaðarnes, ef ríkið vildi selja þá jörð. En í fyrsta lagi vildi ríkið ekki selja þessa jörð, og af þeirri ástæðu þegar gat hann ekki fengið jörðina keypta. Í öðru lagi var réttur hans til að kaupa jörðina ekki fyrir hendi samkv. gildandi lögum, þótt ríkið hefði viljað selja. Ég vil benda hæstv. ráðh. á, að ég tel, að ekki hefðu verið vandkvæði á að gera fullvel við Jörund Brynjólfsson, þótt honum hefði ekki verið selt Kaldaðarnes, og ekki hefði hann þurft að vera í vegi fyrir skóla í Skálholti, þótt ekki hefði verið farin þessi óhappaleið, sem farin var. Í fyrsta lagi segir svo í lögum um búnaðarskóla, að reisa megi nýbýli og kennarabústaði á jörðum skólanna, að mestu fyrir ríkisfé, svo að ef Jörundur hefði viljað dveljast áfram sem bóndi í Skálholti, þá hefði t. d. mátt fara þá leið að gera þann ágæta mann að kennara þar við skólann og láta hann njóta alls góðs, bæði honum og ráðherra til sóma. En ég sé ekki, að skólamálið hafi nokkurn tíma verið eins fast sótt og það mál, sem hér er til umræðu. Því til áréttingar bendi ég á, að á undanförnum árum er ríkið búið að veita samtals eina milljón króna til skóla í Skálholti á 20. gr. og samkv. till. fjvn., og er það geymslufé. Hæstv. ráðh. gat krafizt þessa fjár til skólaframkvæmdanna, ef hann hefði brennandi áhuga á því máli, og þau orð, sem hv. 1. þm. Árn. lét hér falla um skólamál þetta, eiga a. m. k. ekki við fjvn. Það eiga þá aðrir að fá þá sneið.

Ég vil sérstaklega taka fram, að þetta mál er af minni hálfu engan veginn rekið sem persónulegt mál á Jörund Brynjólfsson, hv. 1. þm. Árn., né persónulega á hæstv. atvmrh., heldur er ég aðeins að deila hér á stjórnarathöfn, sem ber í sér óskaplega rotnun. Það er mergurinn málsins hjá mér, en ekki neitt persónulegt af minni hálfu, engar persónulegar ýfingar.

Hæstv. ráðh. sagði einnig, að hann hefði látið uppfylla búsetuskilyrðið á þann hátt, sem unnt var að gera samkvæmt gildandi lögum, og áleit hann þetta allt hafa verið löglegt. Nú vil ég í sambandi við þetta benda á það, sem honum er kunnugt, að áður en nokkuð er gert í þessu máli, þá byggir hann Jörundi Brynjólfssyni, Kaldaðarnes til lífstíðarábúðar, á meðan hann sat enn í lífstíðarábúð í Skálholti, svo að hann hafði á sama tíma lífstíðarábúð á báðum þessum höfuðbólum. Í framsöguræðu minni skýrði ég frá þessu ólöglega athæfi. Mér er kunnugt um, að ýmsir, sem hafa viljað fara á bak við lögin með krókaleiðum, hafa byggt á pappírnum til að uppfylla búsetuskilyrðið, en selt á bak við tjöldin, en það, sem hér gerist í þessu sambandi, er að mínu viti dæmalaust, af því að það er stjórnarathöfn, og eins og allt var þar nú í pottinn búið. Það, sem skilur á milli mín og hæstv. ráðh., er það, að hann vísar til hinna almennu ákvæða laga um sölu þjóðjarða og kirkjujarða og vill ekki viðurkenna annað en að hér sé um venjulegar þjóðjarðir að ræða. En hann veit þó, að um báðar þessar jarðir gilda ákveðin lög. Hann veit, að þær voru ekki keyptar fyrir fé úr jarðakaupasjóði, heldur fyrir fé úr ríkissj. með alveg sérstakri heimild. Og hvert hefur söluandvirði Kaldaðarness runnið? Það skiptir öllu máli í þessu sambandi. Ef Kaldaðarnes heyrir til þeim flokki jarða, sem hann heldur fram, þá rennur söluandvirðið í Ræktunarsjóð samkvæmt 3. gr. laga nr. 66 frá 1947. Ég veit, að hæstv. ráðh. er þetta kunnugt. En hefur andvirðið runnið í þann sjóð? Hafi það ekki verið, er það enn ein sönnunin fyrir mínu máli.

Hæstv. ráðh. gat þess, að Kaldaðarnes hefði verið óheppilegur staður sem hæli að dómi landlæknis. Ég mun nú svara því, er ég svara hæstv. heilbr.- og menntmrh., sem ekki er hér viðstaddur, því að um þann þátt vil ég gjarna ræða við hann. Það er ljótasti þátturinn í þessum leik. Svo bætti hæstv. landb.- og atvmrh. því við, að ekki væri hægt að heyja nema fyrir fáum gripum í Kaldaðarnesi og hefði þurft að kaupa hey handa þeim fáu skepnum, er þar voru, og loks sagði hann, að landið væri of blautt til þess að stofna þar nýbýli. En nú vil ég spyrja hæstv. ráðh.: Er þetta það, sem koma skal í Skálholti, að þar verði ómögulegt að heyja og reka búskap? Ef hægt er að reka búskap í Skálholti, er það alveg eins hægt í Kaldaðarnesi, einkum og sér í lagi ef hælið er þar, þar sem vitað er, að auk venjulegs vinnukrafts var hægt að grípa þar til vistmanna til alls konar aukasnúninga, og vistmenn voru ekki svo fáir. Ég lít á þessi ummæli hæstv. ráðh. líkt og loforð til Alþ. eða fyrirheit um, hvernig ríkisbúskapurinn muni ganga í Skálholti, þar sem hann hefur látið setja upp bú í óleyfi. Og í sambandi við það, að landið í Kaldaðarnesi sé of blautt til þess, að hægt sé að búa þar, vil ég benda á, að ríkið hefur lagt fram stórkostlegt fé til þess að ræsa fram lönd ríkisins á Stokkseyri og Eyrarbakka. Í þetta hefur verið eytt stórfé, og vill ráðh. þá segja, að það sé til ónýtis, vegna þess að landið hafi verið blautt? Og ég veit ekki betur en hér liggi krafa eða ósk fyrir Alþ. frá þeim þarna austur í Árnessýslu um fjárframlög til að halda framræslu áfram. Voru meiri vandkvæði á að þurrka upp mýrarnar í Kaldaðarnesi, vegna þess að einhverjir drykkjuvesalingar höfðu verið þar í nokkra mánuði? Eru þetta frambærileg rök? Nei, sannarlega ekki.

Hæstv. ráðh. segist hafa gert þetta í samráði ið sýslumanninn í Árnessýslu. Mér þykir einkennilegt, að sýslumaður í embætti skuli leyfa sér að taka til greina að gefa umsögn um þetta mál og hóa sýslunefndinni saman á fund í því skyni. Samkvæmt 35. gr. stjórnarskrárinnar er svo fyrir mælt, að enga fasteign ríkisins megi selja án lagaheimildar. Þetta veit a. m. k. hver lögfróður maður, hver héraðsdómari og sýslumaður, og hefði hver slíkur embættismaður sem var átt að vísa þessari beiðni frá og segja viðkomandi ráðh., að hér væri um hreint brot á stjórnarskránni að ræða. Þetta hefði líka hver ábyrgur dómari gert, ef ráðh. hefði útnefnt matsmann undir slíkum kringumstæðum, hann hefði mótmælt því, því að með því er freklega verið að misbjóða honum sem embættismanni. Það mætti segja, að ekki væri sanngjarnt að gera þá kröfu til bænda í sýslunefnd, að þeir væru svo lögfróðir, að þeir vissu, hvað þetta gilti, en þá kröfu verður að gera til sýslumannsins. En þetta minnir mig á það, sem skeði fyrir nokkrum árum, að þetta sýslumannsembætti var veitt mjög ungum, en duglegum og ágætum lögfræðingi. Á þessa embættisveitingu var gerð hörð árás, og þóttu eldri menn hafa verið sniðgengnir, er hefðu haft frekari rétt til embættisins. Og ég vil nú spyrja, eru þetta launin? Er þetta yfirvald svo háð sínum flokksmönnum, að það sé ekki sjálfstætt í störfum sínum? Og ef svo er, er rotnunin þá ekki komin nokkuð langt inn í tréð hér á Alþ.?

Og ég skal nefna annað dæmi. Annar ágætur embættismaður, séra Jakob Jónsson, fékk veitingu fyrir embætti hér í Reykjavík eftir að hafa fengið — ég held langfæst atkvæði við kosningu. En það var sama um kosninguna, þáverandi kirkjumrh. notaði sér valdið til að veita honum embættið. Og þetta minnir enn á, að þessi sami prestur gengur hér nýlega í kirkju, prédikar í útvarp og brýtur allar hlutleysisreglur þess og flytur einn hinn mesta ósóma, sem nokkru sinni hefur verið fluttur hér í stól, án þess að hafa til þess nokkurt leyfi. Og svo er stóllinn ekki einu sinni vígður fyrir þennan óþverra. Það hefur verið klagað til biskups yfir þessu — ég vil segja ódæði, en það hefur engan árangur borið, að ég veit. Og presturinn veit, að honum er óhætt, því að yfirmaður útvarpsins er bróðir hans, og kirkjumrh. er bróðir hans. En það er ekki alveg eins víst, að íslenzku þjóðfélagi sé óhætt, þegar þannig er að farið.

Hæstv. ráðh. gat þess, að hreppsnefnd Sandvíkurhrepps hefði verið sammála um að mæla með sölu Kaldaðarness. Mér þykir ekki ótrúlegt, að þeir hafi viljað reyna að ýta frá sér þeim vesalingum, sem voru þarna á hælinu. Það sýnir að vísu ekki neinn mannkærleika, þó að það sýni reyndar minni andúð en hæstv. menntmrh. hefur sýnt þessum flokki manna. En þessi meðmæli hreppsnefndarinnar voru ekkert leiðarljós til að ganga eftir á móti fullum ákvæðum laganna.

Ráðh. sagði að meiri hl. landbn. hefði verið meðmæltur sölunni. Þetta er ekki rétt. Ráðh. hafði minni hluta nefndanna með sér þann dag, sem málið var tekið til afgreiðslu. En hann hefur síðar upplýst, að hann hafi gengið á milli nm. til þess að hafa áhrif á skoðanir þeirra. En er það sæmandi ráðherra? Er það þinglegt að vera með slíkan áróður á Alþ.? Mér er að vísu ljóst, að bæði þingmenn og aðrir hafa leyfi til að túlka skoðanir sínar við aðra innan vissra takmarka, bæði á þingi og utan þess, en var þessi áróður hæstv. ráðh. sæmilegur og þinglegur? Og ég spyr: Hví fór hæstv. ráðh. ekki eftir bendingum hv. þm. Dal.? Hann benti á, að þessi fyrirhugaða sala væri á móti lögum. Það vita allir, að hv. þm. Dal. er traustur og heiðarlegur maður, og enginn trúir því, að hann hefði farið að ráðleggja þeim ráðh., er hann styður, og styður vel, að gera annað, en hann áleit rétt og löglegt. Hv. þm. Dal. er reyndur dómari, hann hefur átt lengi sæti hér á Alþ. og í landbn. og þekkir þau mál eins vel og hæstv. ráðh. En hæstv. ráðh. hefur till. hans að engu. En hví spurði ráðh. Alþ. ekki um þetta mál á sínum tíma? Alþ. sat þá að störfum. Þorði hann það ekki, treysti hann því ekki, að Alþ. samþ. þetta? Þótti honum vissara að gera þetta á bak við tjöldin? Hann vissi sjálfur, að hann var að fara með rangt mál. Hann vissi, að hann gat ekki fengið samþykki Alþingis fyrir þessum gerningi, og þess vegna fór hann ekki með þetta mál inn í þingið. Ég held nú, að hæstv. ráðh. verði að viðurkenna, að ekki hafi verið farið að eins og lög stóðu til. Ég held, að hann fái ekki nokkurn mann til að trúa öðru. En það er út af fyrir sig að gera yfirsjón, mönnum getur yfirsézt. En það er tvöföld yfirsjón að staðhæfa, þegar menn vita sig hafa gert rangt, að þeir hafi gert rétt.

Þá ætla ég aðeins að fara nokkrum orðum um þá staðhæfingu hæstv. ráðh., að Kaldaðarnessalan hafi verið búhnykkur fyrir ríkið, en ekki Jörund Brynjólfsson, er keypti. Ég veit nú ekki, hvernig hann treystir sér til að sanna, að þetta hafi verið búhnykkur fyrir ríkið. Á pappírnum var Kaldaðarnes selt fyrir 419.820 kr., en upp í það kom raunverulega það, sem Jörundur Brynjólfsson fékk fyrir sínar eignir í Skálholti, 173.700 kr. fyrir hús hans þar og eignir, og skal ég koma inn á það síðar. En þess utan koma svo 20 þús. kr. alveg ólöglega, sem koma fyrir það, að bóndinn í Skálholti fór þaðan, var hrakinn þaðan eða fór að eigin ósk, hvað sem menn vilja nú kalla það, því að hvergi er heimild í ábúðarl. né heldur nein þingheimild til þess, og þess utan er greitt 225 þús. kr., sem kaupandanum að Kaldaðarnesi er gefið fyrir að þiggja þessa jörð, og svo er að síðustu 1.120 kr. í peningum. Þetta er greiðslan. Ég vil nú leyfa mér að benda á það, að ég held, að það sé erfitt að fá nokkurn mann til þess að trúa því, að á móti þeim húsum, sem eru í Skálholti, og þeim öðrum eignum, sem fráfarandi bóndi átti þar, megi ekki jafna a. m. k. gamla húsinu í Kaldaðarnesi, og að peningshús, sem eru í Kaldaðarnesi, hafi að einhverju leyti getað, ásamt tveim skálum, girðingum og ýmsu fleira, sem fylgdi jörðinni, jafnazt á við eignirnar í Skálholti, og þó er öll jörðin eftir enn. Eftir upplýsingum, sem ég hef fengið, er ekki tekið með í þetta mat eitt mikið mannvirki, sem er varnargarður, sem ver landið fyrir Ölfusá og mun hafa kostað landið mikið fé. Ég sé ekki annað en þessar byggingar hljóti að vera það verðmætar, að hægt sé að jafna þeim við þau hús, sem eru í Skálholti, en þessi verðmæti hafa ekki verið greidd. Sannleikurinn er sá, að mér sýnist, að sjálft verðið á jörðinni sé týnt. Ég sé því ekki, að það hafi verið ákaflega mikill búhnykkur fyrir ríkið að losa sig við þessa jörð. Ég get upplýst, að þessi jörð mun hafa haft um 2.000 ha. lands, og mun vera búið að láta um 300 ha. til ríkissjóðs áður í sambandi við „Síberíu“. Þar undan er svo skilin hjáleiga, og skilst mér, að þá séu eftir 1.400-1.500 ha. Af öllu þessu landi er ekki nema 65 ha. eyðilagt, eftir því sem þm. upplýsa. Einnig er upplýst, að þegar jörðin var keypt, þá var lögð á það megináherzla, að þetta væri gert vegna þess, hversu hún hefði mikið land og hversu það væri heppilegt til ræktunar. Nú hefur hæstv. ráðh. sagt, að þetta hafi reynzt misskilningur, allt, sem framsóknarmenn sögðu á þeim tíma, hafi verið slúður, sem eigi ekki stoð í veruleikanum, það sé varla hægt að græða þarna nokkurt strá, þetta sé allt ónýtt. Og þegar litið er á það, að í þessu landi er einnig flugvöllur — það segir að vísu í afsalsbréfinu, að afnot af flugvellinum megi ríkið hafa án endurgjalds, en það er ekkert sagt um, að það megi stækka hann, svo að það þarf kannske að kaupa landið til þess — þegar á allt þetta er litið, þá held ég, að það sé alveg rangt hjá hæstv. ráðh., að þessi sala hafi verið mikill búhnykkur. Ég skal viðurkenna, að það eru mjög miklar líkur til þess, að það megi gera þessa jörð þannig, að það megi koma þar upp mörgum býlum. En ég vil spyrja: Eru meiri líkindi til þess, að hv. 1. þm. Árn., á þeim aldri, sem hann er, jafnvel hversu ágætur bóndi sem hann er, hafi afl til þess að gera þetta land að verðmætu landi, þar sem síðar megi hafa mörg býli, frekar en ríkissjóður með því vinnuafli, sem hann hefur yfir að ráða? Það er ekki hægt að telja mér trú um það.

Hv. ráðh. minntist á hreinsunina, sem viðtakandi á að gera. Ég hef nú aldrei skilið sambandið þarna á milli, að kaupanda er seld jörðin og hann veit, í hvaða ástandi, og svo er farið að meta sérstaklega þær skemmdir, sem eru landinu, og þær eru metnar á 74 þús. kr., en ofan á það þarf að fara að gefa með landinu 225 þús. kr. til hreinsunar á því. Annaðhvort hefur eigandinn fengið jörðina í því ástandi, sem hún var, eða í því ástandi, sem hún var, áður en stríðið kom, eins og ráðh. ætlaðist til. Það er búið að meta þessar skemmdir á 74 þús. kr. Hvaðan kemur þá þessi hugmynd um að greiða enn 225 þús. kr. með jörðinni fyrir hreinsun? Svo hefur hæstv. ráðh. sagt, að þessu yrði skilað aftur, ef landið yrði ekki hreinsað innan ákveðins tíma. Hv. 1. þm. Árn. má vera vel fjáður, ef hann getur skilað aftur 225 þús. kr. eða látið vinna fyrir þá fjárhæð á tilteknum tíma, og ég veit ekki, hvernig hann fer út úr þeim skatti, ef hann á 5 árum getur lagt vinnu í hreinsun á þessu landi fyrir 225 þús. kr. Þessar krókaleiðir eru allar farnar til þess að geta gefið þessa eign. Hæstv. ráðh. sagði, að hann hefði mörg dæmi um það, að þetta mundi kosta miklu meira fé, og það hefði verið vanmetið af þeim mönnum, sem mátu þetta. Að hverjum er hæstv. ráðh. að sneiða? Er hann að sneiða að þessum sömu matsmönnum, því ég held það hafi verið sömu menn, sem mátu þessa hreinsun? Annars get ég upplýst hæstv. ráðh. um það, að einn af þessum mönnum hefur upplýst hæstv. ráðh. um það, að þessi hreinsun er allt of dýr með tilliti til þeirra verkfæra, sem nú eru notuð, því að öll hreinsun á landinu, þar sem spítalarnir stóðu, skammt fyrir ofan Lágafell í Mosfellssveit, hún kostaði ekki nema 60 þús. kr. Hæstv. ráðh. veit, að þetta er rétt, og veit það svo vel, að hann fékk nærri hjartaslag, þegar hann frétti, hvað sú hreinsun kostaði litla peninga. Hann þarf því ekki að reyna að telja okkur trú um, að hér sé verið með sérstakan ágang á kaupandann.

Þá sagði hæstv. ráðh. síðast, að öll mín framsöguræða og allur minn málflutningur sé óslitin ásökun á matsmennina, og lagði mikið upp úr því, og það gerði hv. 1. þm. Árn. einnig, hér væri verið að gera beina árás á saklausa menn. Ég vil leyfa mér að mótmæla þessu. Í fyrsta lagi hef ég ekki sagt eitt einasta orð um þessa menn, hvort þeir hafi gert sitt verk vel eða illa. Meira að segja hef ég haldið því fram, að mér hafi ekki þótt óeðlilegt, þó að þeir mætu eignirnar í Skálholti á þann mælikvarða, að þarna ætti að taka aftur við af bónda, en hins vegar sagði ég, að það hefði átt að meta eignirnar í Kaldaðarnesi á sama mælikvarða og með tilliti til þess, að þar átti að taka við sams konar rekstri eins og rekinn var í Skálholti. En matsmennirnir eru bundnir af ráðh., þegar þeir gera matið, og það; sem verra er, hæstv. ráðh. bregzt skyldu sinni að áfrýja þessu mati, ekki einasta til yfirmats; heldur, ef hann var ekki ánægður með það, þá til þingsins. Þar brást hann skyldu sinni, og það er af því, að það var fyrir fram ákveðið, að jörðin skyldi seld — skyldi gefin ákveðnum manni. Þess vegna er farið svona í kringum öll þessi atriði. Ég get sagt hæstv. ráðh. það, að ég tel þetta mjög mikilsvert mál, ekki aðeins vegna þess, hvort ríkissjóður græðir eina milljón eða eina og hálfa milljón, heldur fyrir það, að það er spegilmynd af þeirri rotnun, sem er í stjórnmálalífi Íslendinga og Framsfl. á langmest af. Það er þessi rotnun, sem verður að uppræta, ef við eigum að fá traust þjóðarinnar til þess að geta mætt erfiðleikunum og losnað úr þeim. Það er ekki hægt að ætlast til þess, að þessari stofnun séu falin á hverjum tíma hin vandasömustu mál til úrlausnar, ef það er komið inn hjá fólkinu, að það sé ekki hægt að trúa fulltrúunum fyrir því að vernda betur rétt ríkisins en hér hefur verið gert, og kemur ekkert málinu við, hvort það er gert af 10 kr. atriði eða milljóna atriði. Það er aðferðin, sem hefur verið byggð utan um þetta, sem ég er að fordæma, en ekki hitt, hvort ríkissjóður tapar nokkrum krónum eða ekki. Þess vegna er þetta merkilegt mál, og þess vegna er hlustað eftir því um allt land.

Ég skal þá svara nokkrum atriðum því, sem hæstv. menntmrh. færði fram sem rök fyrir sínu máli, og vænti ég þess, að hæstv. landbrh. flytji honum það, þar sem menntmrh. er hér ekki viðstaddur. Hæstv. menntmrh. sagði, að ástandið í Kaldaðarnesi hefði verið þannig, að aðeins hefðu verið eftir fáir vistmenn, 1–4, allir aðrir hefðu verið flúnir. Þeir flúðu af hælinu, eins og hæstv. ráðh. flúði undan ábyrgðinni og umr. hér. En það var ekki sök vistmannanna, að þeir flúðu, það var fyrst og fremst stjórn hælisins, sem átti sök á því, ef ekki var hægt að halda mönnunum. En mig brestur alveg skilning til þess að geta fengið það inn í mitt höfuð, hvernig hugsað er að byggja upp nýtt hæli samkvæmt því frv., sem nú er borið fram af hæstv. menntmrh., með sömu starfsreglum eins og þetta hæli var, sem allir vistmennirnir flúðu frá. Ég hef rætt þetta mál sem einn meðlimur heilbr- og félmn. Ed. á fundi, þar sem voru mættir hæstv. menntmrh., landlæknir og dr. Helgi Tómasson, og þar átti að telja mér trú um, að nauðsynlegt væri að setja hælið nálægt Reykjavík, svo að menn gætu ekki flúið þaðan. Ég lét í ljós, að mér væri óskiljanlegt, að það væri óhægara fyrir vistmenn að flýja frá Úlfarsá, sem komið hefur til mála, heldur en frá Kaldaðarnesi, en þá kom upp sú speki, að það væri til nokkuð, sem héti Engey, og þeir gætu ekki synt í land. Dr. Helgi Tómasson færði fram mörg vísindaleg rök fyrir því, hvernig ætti að reka hælið, en vísindi duga ekki til að sannfæra mig um, að ekki sé hægt að komast úr Engey öðruvísi, en með því að synda. Það er ekki hægt að koma í veg fyrir það, að menn, sem ganga þarna lausir, komist til lands með alls konar fleytum, þeir komast þaðan engu síður en frá Kaldaðarnesi. En það er ágæt uppástunga, sem kom frá hv. 3. landsk., að flytja þetta allt til Grímseyjar, en það fer ekki saman við þau rök, sem hæstv. ráðh. bar hér fram, að hælið væri of langt frá Reykjavík, ef það væri í Kaldaðarnesi.

Hæstv. ráðh. sagði, að hann hefði skort alla heimild til að fyrirskipa mönnum vist á hælinu. Ég fór að blaða í frv., sem hann leggur sjálfur fram nú, og svo í gildandi l., og það eru sömu ákvæðin í frv. eins og í l., svo hann hefur ekki meiri heimild til að vista menn á hinu nýja hæli, sem á að kosta 9 millj. kr., heldur en hann hafði til þess að halda þeim í Kaldaðarnesi. Ég verð að segja, að það er hreinn vesaldómur af hæstv. menntmrh. að láta sér detta í hug að bera fram svona rök, að hann skorti heimild til þess að reka hælið, svo að viðunandi sé, og til að fá þangað sjúklinga, sem þar þurfa að vera. Þeirrar heimildar gæti hann aflað sér, ef þingið situr, á einni nóttu, og það var miklu meiri ástæða til að samþ. slík l. en l., sem samþ. voru á einni nóttu um að veita tveim þýzkum fjölskyldum borgararétt. Ég veit, að þm. hefðu ekki séð eftir því að vaka hér eina nótt til að bjarga slíkum vesalingum, ef það vantaði heimild, það hefði líka verið hægt að gera slíkt með brbl. Mig undrar því, að hæstv. ráðh. skuli leyfa sér að bera það fram sem rök, að hann skorti heimild til að flytja sjúklinga á hæli, sem sérstaklega er gert handa slíkum sjúklingum. Sannleikurinn er sá, að stjórn hælisins er ekki ráðin samkv. l. Það er ákveðin í l. frá 1943 sérstök stjórnskipuð n. til að stjórna hælinu, en þeirri n. var vikið til hliðar og í staðinn fyrir þá n. tekinn maður, sem nú er kominn á þá skoðun, að það þurfi að setja einhvern vitfirringastimpil á þessa vesalinga og þess vegna eigi að flytja þetta eins nálægt Kleppi og hægt er, en uppistaðan í hinu nýja frv. er sú, að þetta eigi að vera 40 manna vistheimili fyrir hálfgerða vitfirringa. En ég er ekki alveg á sama máli og hæstv. menntmrh., að það sé heppileg lausn á þessu máli.

Hæstv. ráðh. sagði, að rekstrarhalli hælisins hefði verið 100 þús. kr. á tveim árum. Mig óar ekkert, þó að það sé 50 þús. kr. halli á svona hæli á ári, og ég verð að segja það, að þegar ríkið þénar um 40 millj. kr. á vínsölu á ári, þá sé ég ekkert eftir því, þó að það eyði 50 þús. kr. í að borga þessum vesalingum, svo að þessi röksemd er ekki heldur nægilega sterk. Í sambandi við þetta mál vil ég undirstrika, að fyrsta árið var 90 þús. kr. halli á Reykjalundi, en á hverju ári síðan 100 þús. kr. ágóði. Af hverju? Vegna þess að læknirinn, sem skipaður var á því hæli, vildi fórna sér fyrir þessa menn og gerði ekkert annað en að hugsa um að stjórna þessu fyrirtæki og gera allt sem hagkvæmast og fá þessa menn til þess að vinna eftir því, sem þróttur var til. Ég skil ekki, hvers vegna þeir menn, sem ætla að bera ábyrgð á þessu í framtíðinni, vilja loka augunum fyrir því kraftaverki, sem þarna hefur gerzt, og ég er alveg viss um, að það er hægt að nota sömu aðferðina við þessa menn, sem hér um ræðir. Það var smásálarskapur að sjá í það að setja sérstakan lækni við hælið, það kostaði aðeins 30 þús. kr., en það var eitt af mótrökunum hjá hæstv. ráðh., að það hefði verið ofviða að setja þarna lækni, en það var það, sem þurfti að gera, og einnig þurfti að setja duglega stjórn við hælið.

Hæstv. ráðh. sagði, eins og hæstv. landbrh., að það væri ríkinu til skammar, hvernig jörðin var, og það var það, sem eiginlega var þyngst á vogarskálinni hjá honum. En er það frambærilegt frá hæstv. menntmrh. að láta það hafa áhrif á sig um að leggja hælið niður, hvernig búskapurinn var. Ég sé ekki, að það komi honum neitt við. Búskapurinn í Kaldaðarnesi gat aldrei verið annað en vitnisburður um ríkisbúskap yfirleitt. Hann gat verð slæmur í eitt ár, en til langframa varð hann auðvitað ekkert annað en spegilmynd af ríkisbúskap á Íslandi yfirleitt. Þess vegna var ekki ástæða til að flytja hælið þaðan, þó að jörðin væri í niðurníðslu. Ég ætla að fara dálítið inn á eigur menntmrn., eins og hæstv. ráðh. orðaði það. Hann sundurliðaði það þannig, að það hefði verið gamla íbúðarhúsið, braggi og nýtt ráðsmannshús. Hann sagði enn fremur, að kostnaðurinn við þetta hefði verið 630 þús. kr., og mest af þessu hefði verið viðgerð á gömlum húsum og menntmrn. hefði verið endurgreitt 400 þús. kr. Sannleikurinn er sá, að ekkert af þessum tölum er rétt. Annars kemur mér það ekkert á óvart, þó að manni, sem alltaf fer rangt með tölur í sínu pólitíska blaði, skeiki eitthvað í tölum hér á Alþ. Skal ég nú færa nokkrar sönnur á mitt mál. Í fyrsta lagi er þessi kostnaður, byggingarkostnaður við hælið í Kaldaðarnesi, samkvæmt landsreikningnum, 1946 kr. 315.888,73 og 1945 kr. 551.551,12. Þetta eru sömu tölur, sem gefnar eru upp í grg. fyrir till., og þessar tölur passa ekki við þær tölur, sem hæstv. ráðh. hefur gefið upp, og þó að hæstv. ráðh. hafi ekki haft tíma til að gá í landsreikninginn, þá hefði hann a. m. k. getað spurt flokksbróður sinn, hv. 1. þm. Árn., sem mun vera kunnugur þessu máli, hvort þetta væri ekki rétt. Sannleikurinn er sá, að byggingarkostnaðurinn í Kaldaðarnesi er um 900 þús. kr. Hvað fær svo menntmrn.? 400 þús. kr., segir hann, en það er ekki rétt. Samkvæmt upplýsingum, sem ég hef fengið frá mjög ábyggilegum manni í stjórnarráðinu, sem veit líklega meira um þetta atriði en ráðh., þá hefur rn. fengið 419.820,00 kr. fyrir Kaldaðarnes, m. ö. o. alla þá upphæð, sem kaupandinn á pappírnum er látinn greiða fyrir eignina. Hvaðan fær svo rn. þessa peninga? Það fær kr. 173.700.00 og kr. 197.300,00 af því fé, sem veitt hafði verið í Skálholtsskóla og er tekið ólöglega til þess að borga þetta með. Hvað kom inn? Hann fékk 225 þús. kr. frá setuliðinu. Ríkið var búið að fá þá peninga áður fyrir að sitja í landinu, áður en það var afhent menntmrn., svo að ekki var hægt að taka þetta fé og greiða það til menntmrn., það var tekið beint úr ríkissjóði. Hvað svo meira? Hann fékk 1.120 kr. frá Jörundi Brynjólfssyni. Hæstv. ráðh. sagði, að allt þetta væri gert með samkomulagi við alla þá aðila, sem hefðu haft með þetta að gera. Það er ekki rétt, því að stjórn ríkisspítalanna er líka nokkuð viðriðin þetta mál, og ég hef hér bréf hennar til hæstv. menntmrh. 3. nóv. 1947, þegar þessi verk fóru fram. Og ég vil taka það fram, að á þeim tíma sat Alþingi á rökstólum. Ég vil leyfa mér, með samþykki hæstv. forseta, að lesa hér upp úr þessu bréfi. Í því segir svo:

„Ég leyfi mér fyrir hönd heilbrmrn. að taka fram eftirfarandi varðandi mat á eignum heilsuhælis fyrir drykkjumenn í Kaldaðarnesi.

Þann 23. ágúst s. l. hafði heilbrmrn. skrifað landbrn. m. a. á þessa leið: (Takið eftir, að það er heilbrmrn., sem skrifar landbrn.) „Ráðuneytið áskilur, að landbrn. sjái svo um, að greiðsla komi til þessa ráðuneytis fyrir eignir hælisins, þær sem jörðinni fylgja.

Þar sem upplýst er, að meta eigi eignir ríkisins í Kaldaðarnesi til sölu í því skyni, að þar verði rekinn búskapur, má gera ráð fyrir, að matið verði miðað við slík afnot. Aftur á móti hlýtur krafa heilbrmrn. að vera sú, að allur kostnaður, sem það ráðuneyti hefur lagt í stofnkostnað hælis í Kaldaðarnesi, verði endurgreiddur, og sé auk þess tekið tillit til verðhækkunar, sem orðið hefur á efni og vinnu síðan framkvæmdir voru gerðar.

Samkvæmt lögum ber ríkinu skylda til að reka drykkjumannahæll. Eins og nú er komið um verðlag á efni og vinnu, er fullvíst, að slíku hæli verður ekki komið á fót fyrir minna fé, en lagt hefur verið í Kaldaðarneshælið. Auk þess hlýtur flutningur hælisins að hafa mikinn kostnað í för með sér.

Með tilvísun til ofanritaðs tel ég, að uppgjör milli heilbrm.- og landbrn. geti á engan hátt komið þessu mati við.“

Stjórn ríkisspítalanna gerir hér kröfu um að fá endurgreiddar 900 þús. kr. auk þess kostnaðar, sem kann að verða af flutningi hælisins á annan stað, og auk þess þann mismun, sem orðið hefur á efni og allri vinnu, frá því að hælið var byggt. Mismunurinn er 600 þús. kr. En hver á að bera þennan kostnað? Á landbrn. að bera þennan kostnað, t. d. með því að greiða hann úr ræktunarsjóði, eða á ráðh. að bera hann sjálfur, eða á ríkissjóður að borga brúsann? Það er augljóst, að menntmrn. hefur ekki fengið það fé, sem það átti að fá, það fé, sem því bar. Og auk þess hefur ekkert fengizt fyrir sjálfa jörðina. Ég býst við, að ríkissjóður verði að greiða stórar fjárhæðir og margar, þar til þessum málum verður komið í það horf, sem þau voru komin, þegar hælið starfaði í Kaldaðarnesi, er hæstv. menntmrh. tók við hælinu. Lögin frá 1943 um drykkjumannahæli eru svo skýrt orðuð, að þar segir, að ríkið eigi að reka hæli fyrir drykkjusjúka menn og þar eigi hælið að vera. Það er því algerlega út í hött og er rangt, að jörðin hafi verið lánuð fyrir þá starfsemi ríkisins. Það varð samkomulag, að ríkið afhenti jörðina undir þetta. Þess vegna var hér svo til stofnað, að landbrn. gat ekki farið eins að með jörðina og það hefur gert.

Ég sé ekki ástæðu til að ræða mikið við hv. 1. þm. Árn. Það var flest í ræðu hans, sem ég hef flutt svar við í ræðu minni til hæstv. landbrh. Svör mín til ráðh. geta því gilt til hans.

Ég tek enn fram að lokum, að ég hef ekki hreyft þessu máli af neinum persónulegum áróðri á framsóknarmenn. Hér er um að ræða veilu í meðferð á fé ríkisins. Slíkt mál sem þetta er ekki hægt að láta afskiptalaust. Meginástæðan fyrir því, að þessu máli hefur verið hreyft, er, að hér hefur illa verið farið með ríkisfé. Ég vænti þess, hvernig svo sem þetta mál fer, þá muni þau blaðaskrif og umr. þær, sem fram hafa hér farið á Alþ. um það, marka nýja stefnu á Íslandi í meðferð opinberra eigna og opinbers fjár. Ef ekki, þá á þjóðin að taka í taumana og neita að senda slíka menn á þing.

Þjóðin á að gera sömu kröfur til þm. sinna eins og t. d. Bretar gera til sinna þm. Þar mundi ráðh. verða að segja af sér fyrir minni sakir en hér hafa verið ræddar. Ég er ekki að bera fram slíkar kröfur, en hv. þm. ættu að gera annað en standa upp og státa, þegar jafnalvarlegt mál er rætt og þetta mál er. Ég geri ráð fyrir, að þjóðin sé enn svo mild, að hún fyrirgefi, en það er ekki hægt að bjóða Alþ. né þjóðinni upp á annað eins og hér hefur gerzt við söluna á Kaldaðarnesi.