10.02.1949
Sameinað þing: 38. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 526 í D-deild Alþingistíðinda. (4802)
73. mál, Kaldaðarnes í Flóa
Finnur Jónsson:
Herra forseti. Þar sem nafn mitt hefur nokkrum sinnum verið nefnt í umræðum þessum vegna þeirra afskipta, sem ég hafði átt af þessum málum sem heilbrmrh., hafði ég kvatt mér hljóðs til þess að rekja sögu hælisins nokkuð, en nú hefur hv. 6. þm. Reykv. tekið af mér ómakið, og hef ég því litlu við að bæta. Það er öllum kunnugt, að Stórstúkan hafði reist hælið að Kumbaravogi, en síðan var ákveðið með lögum, að ríkið skyldi taka við rekstri hælisins, hvort heldur það var áfram í Kumbaravogi eða ekki, en ef það yrði flutt, þá átti ríkið að greiða kostnað, sem af flutningunum leiddi.
Ég fór snemma að skoða þetta hæli, ásamt sakadómara og landlækni. Þeim 14 vistmönnum, sem á hælinu voru, virtist líða vel. Þrifnaður og snyrtimennska var þar í bezta lagi og öll umgengni hin bezta og miklu betri en maður hefði getað hugsað sér. Hins vegar virtust mér vera þarna heldur lítil verkefni til úrlausnar fyrir vistmenn, jafnvel þó að ríkisstj. legði sig mjög fram til þess að finna eitthvað. Enn fremur stóð svo á, að þáverandi ráðsmaður, sem var ekki Jón Sigtryggsson, heldur annar, var að flytja til Keflavíkur, og var eftirsjá að honum, vegna þess að hann hafði komið sér mjög vel við vistmenn hælisins, og ekki víst, hver kæmi í staðinn. Og þá var ætlun þingstúku Reykjavíkur, sem átti hælið, að leigja það, en hún setti upp 30 þús. kr. í leigu á ári, sem þótti dýrt. Þá var litazt um eftir stað fyrir hælið, og þá þar, sem væru meiri möguleikar fyrir hendi til þess, að vistmenn gætu haft atvinnu. Mér er ekki kunnugt um allar þær ferðir, sem farnar voru til þess að leita að stað í þessu skyni. En ég man eftir ég held, tveimur ferðum, sem ég fór austur yfir fjall ásamt þeim mönnum, sem hv. 6. þm. Reykv. nefndi áðan, og varð fullt samkomulag um það milli þeirra aðila, sem áttu að athuga þetta, að Kaldaðarnes væri tilvalinn staður í þessu efni. Nú man ég eftir því um afstöðu landlæknis, að hann hafði oft minnzt á, að hann teldi, að þetta hæli mætti gjarna vera það nærri Reykjavík, að hægt væri að gefa þeim mönnum, sem á því dveldu, tækifæri til að sýna sinn styrkleika við og við, hvort þeir væru búnir að öðlast þrótt til að standa í gegn drykkjuskapnum. En landlæknir var þess samt sem áður fýsandi, að hælið væri í Kaldaðarnesi, þó að hann teldi jafnvel betra, ef staður væri til nær Reykjavík, að hafa hælið þar. Ég man eftir, að í a. m. k. annarri þessari ferð var sakadómari og stjórn drykkjumannahælisins í Kumbaravogi, og að ég hygg Helgi Tómasson geðveikralæknir á Kleppi. (SigfS: Það er rétt.) Í einni förinni var einnig með Pétur Magnússon fjmrh. Og það var sameiginlegt álit allra þessara manna, að Kaldaðarnes væri tilvalinn staður fyrir slíkt hæli, með tilliti til þess, að Kaldaðarnes væri ekki beinlínis í þjóðbraut, en lægi þó ekki mjög langt frá Reykjavík, og með tilliti til þeirra miklu verkefna, sem þarna virtust vera fyrir hendi, þar sem hægt væri að benda vistmönnum á, að þeir hefðu tækifæri til þess að byggja upp eitthvert fegursta höfuðból á Íslandi, og það menn, sem annars væru álitnir ófærir til alls. Slíkt mundi e. t. v. geta sett í þá einhvern metnað. — Samkomulag varð þá um það við fjmrh., Pétur Magnússon, sem þá var einnig landbrh., að afhenda heilbrigðisstjórninni Kaldaðarnes til þess að reka þarna drykkjumannahæli og enn fremur, að hælið fengi þá greiðslu, sem um semdist, að kæmi frá setuliðinu sem skaðabætur fyrir þær skemmdir, sem orðið hefðu á jörðinni, sem, að mig minnir, voru þá ekki ákveðnar, en seinna voru ákveðnar 305 þús. kr. — Nú sé ég, að til bygginga og annarra framkvæmda þarna hefur verið varið á níunda hundrað þús. kr. eða rúml. 800 þús. kr. Og mér skilst, að eftir þeim samningum, sem á sínum tíma fóru fram milli heilbrigðisstjórnarinnar og fjmrn., þá hefði heilbrigðisstjórnin átt að fá þetta fé að öllu leyti. Það er tæplega hægt að borga þetta fé tvisvar, bæði borga það til heilbrigðisstjórnarinnar fyrir framkvæmdir á jörðinni og enn fremur borga það til væntanlegs nýs eiganda.
Hv. þm. Barð. komst svo að orði, að stjórnarnefnd hælisins hefði verið ýtt til hliðar og stjórnin á hælinu afhent stjórnarnefnd ríkisspítalanna. Hv. 6. þm. Reykv. upplýsti, hvernig í þessari stjórnarbreyt. lá. Hún var gerð í fullu samræmi við fyrrv. stjórn hælisins. Og a. m. k. var mín ætlun sú, að stjórnarnefnd ríkisspítalanna undir forustu Guðmundar Gestssonar, sem er alkunnur dugnaðarmaður, hefði með höndum rekstur jarðarinnar, en aftur á móti léti hún stjórnskipaðri nefnd eftir að greiða fyrir sjúklingum, þegar þeir kæmu út af hælinu. Nú mun þetta hafa breytzt þannig í framkvæmd, eins og hv. 6. þm. Reykv. hefur skýrt frá.
Nú kom það mjög fljótt í ljós, sem haldið hafði verið fram af ýmsum, að nokkru strangari heimildir þyrftu að vera í lögum til þess að halda mönnum til hælisvistar heldur en þá giltu. Og út af því hafði mér sem dómsmrh. verið afhent uppástunga um endurskoðun á lögum um lögræði. Eftir að hafa athugað þá till. varð það að ráði, að ég fól þeim færasta lögfræðingi, sem talið er, að við eigum hér í þessu efni, dr. juris Þórði Eyjólfssyni, að endurskoða lög um lögræði. Frv., sem hann samdi um þetta, var svo lagt fyrir Alþingi og afgreitt á þinginu 1947. Lögin eru nr. 95 frá 5. júní 1947. Eftir samþykkt þeirra laga var talið af færustu lögfræðingum, að nægar heimildir væru þá komnar inn, bæði í lög um drykkjumannahæli og lög um lögræði, til þess að geta haldið mönnum til hælisvistar á drykkjumannahæli, án þess að frekari úrbóta þyrfti við um löggjöfina.
Ég vil svo aðeins segja það út af þessu máli að öðru leyti, að þegar ráðizt var í það að taka gamla sýslumannshúsið og gera það upp að nýju, þá var það eftir ráði þeirra, sem venja er til, að kvaddir séu til ráða í þeim efnum. Og það var á það sérstaklega bent, að þó að húsið væri mjög illa farið, þá væru allir innviðir þess alveg ófúnir.
Nú má það vel vera, að einhver óheppni hafi orðið í því efni að breyta til um lækni við hælið og að halda ekki hælinu beinlínis í því horfi, sem það var í, að vera hreint vistmannahæli. Og eins og hv. 6. þm. Reykv. tók fram, var árangurinn þarna til lækninga mjög lítill. Hins vegar vita menn, að litlar líkur eru fyrir lækningu í þessum efnum, sérstaklega ef menn eru langt leiddir. Og eins var það auðséð, að á því hæli, sem var í Kumbaravogi, leið mönnunum, sem voru þar, mjög vel. Um sumarið, þegar mennirnir voru fluttir að Kaldaðarnesi, var ekki búið að koma húsinu í Kaldaðarnesi í lag. Það voru fengnir smiðir til þess úr Reykjavík og enn fremur ætlazt til þess, að vistmenn, sem til þess væru færir, hjálpuðu til þess. Vistmönnum var ætlað að búa í bröggum um sumarið, sem hefði tekizt vel, ef ekki hefði viljað svo til, að sumarið var sérstakt óþurrkasumar, og vistmönnunum hefur sérstaklega þess vegna brugðið við að koma úr góðri íbúð til Kaldaðarness. Þetta mun talsvert hafa spillt fyrir stjórn hælisins þetta sumar. Enn fremur höfðum við enga menn hér á landi, sem vanir væru því að reka slíkt hæli. Og ef svo kynni að vera, að þarna hefðu ekki valizt þegar í stað forstjórar, sem höfðu lag á að reka hælið, þá þurfti að skipta um og fá menn, sem gætu haft lag á að láta vistmönnunum líða vel og fá þá til að vinna og reyna að komast aftur til manns. Ég held, að þessu hefði átt að halda áfram með hælið, því að sú reynsla, sem fengin var af hælinu í Kumbaravogi, sýndi, að unnt var að halda þessu hæli í því lagi, að mönnum gæti liðið þar sæmilega. Mér finnst þess vegna, að það hafi verið mjög misráðið að leggja hælið niður, a. m. k. áður en búð var að byggja annað hæli upp, og það sé ákaflega stórt spor aftur á bak fyrir Alþ. og ríkisstjórn, sem vissulega hefur allverulegar skyldur við þessa menn, sem þarna áttu að dvelja og höfðu möguleika til að dvelja.
Um hitt atriðið, fjármálahlið þessa máls, vil ég ekkert segja að svo stöddu. Þetta mál fer efalaust til n. og verður athugað þar. Það er vitanlegt, að þarna var búið að koma upp tveimur mjög sæmilega góðum húsum, öðru fyrir vistmenn og hinu fyrir ráðsmann. Enn fremur var þar mjög sæmilegt fjós. En önnur hús voru ekki þarna á jörðinni. Enn fremur var vitað, að Kaldaðarnes var í ákaflega mikilli niðurníðslu eftir hersetuna, og það er ákaflega mikið verk að rýma burt þeim bröggum, sem þarna eru á Kaldaðarnesjörðinni. En það var ætlazt til þess, að væntanlegir vistmenn gerðu þetta, svona eftir því sem þeirra kraftar og vinnuþrek entist til, og ekki hefði það þá neinn kostnað þurft að hafa í för með sér fyrir ríkissjóð.
Ég get svo látið útrætt um þetta frá minni hálfu. Ég tel, að það hefði verið vel ráðið að láta það fara saman, annars vegar að láta hátt á annan tug manna, sem ekki hafa neins staðar annars staðar hæli, vera þarna, og hins vegar gefa þessum mönnum kost á því að byggja upp eitthvert virðulegasta höfuðból Suðurlands, en tel, að það hafi verið misráðið að gera þá breyt., sem gerð hefur verið í þessu efni.