10.02.1949
Sameinað þing: 38. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 529 í D-deild Alþingistíðinda. (4803)
73. mál, Kaldaðarnes í Flóa
Hannibal Valdimarsson:
Herra forseti. Umr. um þetta mál hafa farið á víð og dreif, enda er búið að verja nokkru á þriðja dag í þessar umr. Ég ætla ekki að draga drykkjumannahælið í Kaldaðarnesi inn í þessar umr. og heldur ekki byggingu væntanlegs búnaðarskóla í Skálholti. Mér sýnist á því, hvernig þáltill., sem er til umr., er orðuð, að þá liggi þær greinir ekki fyrir til umr. hér með neinum eðlilegum hætti, þó að þær hafi lengstum við þessar umr. verið meginuppistaða máls manna hér. Mér virðist þessi þáltill. vera borin fram sem ádeila og sem umvöndun vegna meints stórkostlegs hneykslismáls, sem átt hafi sér stað í sambandi við sölu ríkisjarðarinnar Kaldaðarness. Og ég held því, að það sé rétt að ræða í raun og veru eingöngu það efni till.
Ég hef hlustað með mestu gaumgæfni á þessar umr., sem fram hafa farið hér um þáltill., og sérstaklega lagði ég við hlustirnar, þegar hv. þm. Barð., frsm. og flm. þessarar þáltill., flutti sinn langa og ýtarlega fyrirlestur, sem hann las hér í sameinuðu þingi.
Á aflíðandi vetri í fyrravetur heyrði ég fyrst um þetta mál, rétt áður en þingi sleit þá. Og þá heyrði ég ekki fyrirlestur, heldur, að það var byrjað á að hvísla í gluggakistum og hornum alþingishússins og á göngum þess, að efni til á þessa leið: Hefur þú heyrt hneykslið, að landbrh. hefur gefið vildarflokksbróður sínum eina stærstu og dýrustu jörð á landinu, eða sama sem gefið, látið hana fyrir ellefu hundruð kr.? — Ég skal játa, að mér datt þá ekki í hug, að þetta ætti eftir að verða á næsta þingi eitt stórmálið, sem tæki 3–4 daga af dýrmætum tíma þingsins. En nú hefur þetta þó komið á daginn, að þetta er, miðað við umr. um það, eitt af stóru málunum á þinginu 1948–49.
Það hefði mátt ætla, eftir byrjuninni á málflutningnum, að þetta mál væri ekki hreint. Og ég skal játa, að ég hélt, að það væri einhver fótur fyrir þessu. Annað eins hefur heyrzt og þekkzt á Íslandi, að einn ráðherra hafi ívilnað flokksbróður sínum meira eða minna, og hefur ekki verið talið, að slík brjóstgæði gagnvart flokksbróður væru hneykslí. En sjálfsagt er það það í eðli sínu, þegar það á sér stað. Ég stóð í þeirri meiningu, þegar þessar umr. hófust, að meira eða minna óhreint væri við þetta mál og þetta væri e. t. v. hneykslismál. Og einmitt þess vegna lagði ég við hlustir, þegar hv. flm. þáltill. flutti sína vandlega skrifuðu ræðu fyrir þinginu. En þó að hann flytti sitt mál af miklum krafti og sannfæringarhita, fór nú svo, að einmitt þegar ég hafði hlustað á fyrirlestur hans um málið, var ég sannfærður um, að þetta væri mest gervihneykslismál og sennilegast alls ekkert hneykslismál. Svona var verkunin af fyrirlestri hv. þm. Barð. á mig. Og ég gæti vel trúað því, að þannig hafi ræða hans verkað á fleiri. A. m. k. hefur hv. 2. þm. Árn. talað hér í málinu, eftir að þessi mikli fyrirlestur var fluttur, og þá talað mjög af sannfæringu gegn frsm. og flm. þessarar þáltill. Skal ég þó ekki fullyrða um, hvort hann hefur snúizt í málinu við að heyra fyrirlesturinn, eins og ég, eða hann af kunnugleika sínum á málinu hefur haft þá sannfæringu áður, að hér sé ekki um hneykslismál að ræða.
Eins og hv. þm. Barð. lagði málið fyrir, virðist mér það vera tvíþætt, þ. e. a. s. ásakanir, sem stefnt sé að tveimur mönnum. Í fyrsta lagi er till. af hans hendi ádeila á hæstv. landbrh., Bjarna Ásgeirsson, og í öðru lagi hörð ádeila á kaupanda Kaldaðarness, Jörund Brynjólfsson, hv. 1. þm. Árn. — Nú vil ég athuga, hvort þetta er ekki á rökum reist, að þessi hæstv. ráðh. standi þarna berskjaldaður fyrir og liggi af tilefni undir þeim þungu ásökunum, sem hv. þm. Barð. hefur nú fram flutt í tveimur löngum ræðum. Ég hef því dregið upp fyrir mér mynd af því, sem hæstv. ráðh. hefur aðhafzt í málinu, og ég sé ekki, að það sé annað en þetta: Ráðh. snýr sér til sýslumanns Árnesinga, þegar málið ber að, og biður hann að dómkveðja menn til þess að meta eignir Jörundar í Skálholti og hins vegar eignir ríkisins í Kaldaðarnesi, með það fyrir augum, að þarna fari makaskipti fram. Síðan er það sýslumaður Árnesinga, sem dómkveður menn til þessarar matsgerðar. Og þessir matsmenn starfa. Jörundur virðist vera genginn undir það möglunarlaust að hlíta matsgerð þessara dómkvöddu manna að því er snertir hans eignir og jafnframt undir það að hlíta þeirra úrskurði um verðmæti þeirra eigna, sem hann var í þann veginn að kaupa. — Ég held, að í þeim löngu ræðum, sem fram hafa farið um málið, hafi ekki komið fram, að annað hafi gerzt en einmitt þetta. Ef flytja á svo rökstuðning fyrir því, að í þessum sölum eða makaskiptum hafi gerzt eitthvað ljótt, eitthvert hneyksli, eitthvað svívirðilegt, eitthvað, sem sé tilvalið dæmi um þá rotnun, sem eigi sér stað í íslenzkri pólitík eða hafi gerzt, þá verður að ráðast á þá eiðsvörnu matsmenn, sem yfirvöld viðkomandi sýslu dómkvöddu. Mér virðist, að þegar komið er að þessum punkti, sem einn hefði getað gefið orðum hv. þm. Barð. kraft, þá hafi hann, hv. þm. Barð., hörfað aftur. Því hann sagði í kvöld, að það væri fjarri sér að víkja neinum grunsemdum að þeim ágætu mönnum. Mér virðist hann ekki vilja vefengja heiðarleik þessara manna. En ef hv. þm. Barð. vill vera ákærandi þessa máls, svo að gagn sé að og tillit verði tekið til þess, þá verður hann að ákæra þessa menn. — Nú er niðurstaða þessara matsmanna, sem ekki hafa orðið fyrir árás, þannig, að þeir hafa metið til verðs eignir Jörundar í Skálholti á 173 þús. kr. Og eftir anda málflutnings og ræðum hv. þm. Barð., sem hann hefur flutt hér, þá er álit hans, að þetta mat hafi verið Jörundi Brynjólfssyni stórkostlega í vil, þar hafi verðið fyrir eignirnar verið ákveðið miklu hærra en eigur Jörundar, sem í Skálholti voru, hafi gefið tilefni til. Nú hef ég að vísu ekki komið í Skálholt. En mér þykir það furðu gegna, ef Jörundur, eftir 20–30 ára búskap á staðnum, hefur ekki átt verðmæti, sem svaraði meiru en einnar lítillar íbúðar, a. m. k. eftir Reykjavíkurverði. 173 þús. kr. eru peningar, sem varla hrökkva til þess að kaupa fyrir meðalibúð í Reykjavík. Mér virðist ekki þurfa að búa nein 20–30 ár til þess að byggja upp hús, svo sem gripahús, hlöðu og haughús og enn fremur bæjarhús, svo að allt þetta geti verið 173 þús. kr. virði. Mér finnst því út frá þessari tölu það ekki liggja fyrir, að vegna hennar sé ástæða til að drótta neinni sviksemi að matsmönnunum. — Þá er hin hliðin, hvort eignir ríkisins hafi verið metnar svívirðilega lágt. Og mér virðist þar vera niðurstaðan, að Kaldaðarnes með verðmætum, sem því fylgja, hafi verið virt á 419.820,00 kr., þ. e. brúttó 494 þús. og frá dregnar kr. 7.4180,00 vegna skemmda á jörðinni, sem voru landspjöll. Og þannig varð verðið alls um 419 þús. kr. Ég hef komið að Kaldaðarnesi, og ég sá þennan mikla búgarð sundurflakandi eftir herliðið, sem hafði verið þar. Þar gat að sjá marga tugi af bröggum og braggarústum og tóftarbrotum. Stingandi strá sá ég hvergi, en malarburð mikinn yfir engjarnar. Þar er og flugvöllur mikill, sem ekki er endurbót á bújörð. — Ég held, að Jörundur Brynjólfsson verði langt kominn með að eyða þessum 225 þúsundum, sem mjög hefur verið hér um rætt, ef hann ætlaði að koma jörðinni í lag eftir þau hervirki, sem hafa verið á henni unnin, og að hann græði ekki milljónina, sem hann er sagður græða á þessum kaupum, á þeim pósti. En einmitt þessar 225 þús. kr. hafa honum verið ætlaðar til þess að hreinsa burtu menjar eftir hersetuna af Kaldaðarnesi og gera þennan stað að búgarði. Og þegar það væri búið, þá er Kaldaðarnes reiknað á 419 þús. kr. Þegar svo þessar 225 þús. kr. ásamt andvirði fyrrv. eigna Jörundar í Skálholti og 20 þús. kr. uppbót vegna burtflutnings frá Skálholti — þegar þetta er dregið frá 419 þús. kr., þá kemur út þessi 1.100 kr. mismunur, sem byrjað var með róginn um, að Jörundi hefði verið gefin jörðin fyrir.
Þetta er sú niðurstaða, sem ég hef komizt að, eftir að hafa hlustað á hið langa mál hv. þm. Barð. Ég fékk ónotalegan grun um, að hér hefði verið farið á stað með mál, sem væri í raun og veru óvildarmál og pólitískt rógsmál. Það kann að vera satt, sem hv. þm. S-Þ. sagði, að almenningur stæði í þeirri meiningu, að hér væri um svívirðilegt hneykslismál að ræða, og má því vera, að það verði óvinsælt af almenningi, að þm. taki þá afstöðu að mæla eins og ég hef gert. En ég vildi ekki á móti betri vitund taka í þann streng, að hér væri um svívirðilegt hneykslismál að ræða, en vildi láta það koma fram, að þeir, sem byrjuðu að hvísla um málið fyrir ári síðan, vonuðu, að þetta mundi endast til þess að naga mannorðið af hv. 1. þm. Árn. og hæstv. atvmrh., en ég held, að hv. þm. Barð. hafi gert út af við þær vonir, sem þeir menn höfðu. Ég held, að þetta mál muni ekki endast til þess að ganga af þessum alþm. okkar dauðum. Ég er sannfærður um, að sá tilgangur, sem byrjaði með hvíslingunum, hefur ekki tekizt, sem betur fer.
Þeir menn, sem spila sig siðameistara á Alþ. og tala um hneykslismál í íslenzkri pólitík, ættu að velja sér betra verkefni og stærra og beita sér fyrir því t. d., að því svikakerfi verði ekki lengur haldið hér uppi, sem nú viðgengst á ýmsum sviðum, t. d. hjá verzluninni, þar sem menn með svikum einum og okurálagningu geta velt margföldum gróða. Sá verktaki í þessu landi, sem getur látið verk í höndum sínum verða sem dýrast, með lélegum verkstjórum, aðeins ef hann getur látið verkið velta á sem mestum upphæðum, fær hann sínar prósentur margfaldar og græðir sem mest. Það er svona ástand í íslenzku þjóðlífi, sem þessir siðameistarar ættu að rífa niður heldur, en að hætta mannorði sínu til þess að naga æruna af öðrum á Alþingi.
Mér virðist þessi till. hafa verið hugsuð sem leiðrétting á fjármálalegu hneyksli, sem hafi verið framið af tveimur trúnaðarmönnum ríkisins, ráðh. og þm. Ég finn ekkert hneykslanlegt í þessu. Ég held því, að till. sé óþörf, og held, að hv. flm. ætti að taka hana aftur á þessu stigi málsins eða þá að henni verði vísað frá.