25.02.1949
Sameinað þing: 44. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 552 í D-deild Alþingistíðinda. (4812)
73. mál, Kaldaðarnes í Flóa
Finnur Jónsson:
Herra forseti. Ég skal ekki lengja þessar umr. að neinu leyti. En ég hafði hugsað mér að bera hér fram tvær fyrirspurnir til hæstv. atvmrh. til þess að spara mér það að fara með þær í fyrirspurnatíma, ef hæstv. ráðh. vildi vera svo góður að svara þeim nú. Það er nú eiginlega heilbrmrh., sem þessar fyrirspurnir ættu að beinast til. En kannske hæstv. atvmrh. geti svarað þessu. En ef ég fæ þessum fyrirspurnum ekki svarað nú, mundi ég bera þær fram formlega í fyrirspurnatíma. Fyrri fyrirspurnin er á þessa leið: Hefur niðurlagning vistmannahælisins í Kaldaðarnesi verið borin upp við alla ríkisstj., og ef svo er, hver var afstaða ráðherranna til málsins? Það væri kannske eðlilegt að bera þessa fyrirspurn fram við hæstv. heilbrmrh. En verið getur, að hæstv. atvmrh. geti svarað henni. — Svo er hin fyrirspurnin: Hefur sala Kaldaðarness verið borin upp við alla ríkisstj., og ef svo er, hver var afstaða ráðherranna til málsins? — Ég vildi vita, hvort þessi mál hafa verið borin upp á fundi í ríkisstj. eða hvort þeim hefur verið ráðið til lykta af einstökum ráðherra án þess.