25.02.1949
Sameinað þing: 44. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 553 í D-deild Alþingistíðinda. (4813)
73. mál, Kaldaðarnes í Flóa
Atvmrh. (Bjarni Ásgeirsson):
Herra forseti. Ég skal svara þessum fyrirspurnum hv. þm., sem ég hélt þó, að hefði komið nokkuð ljóst fram í umr., að þessar ákvarðanir, sem gerðar voru í sambandi við Kaldaðarnes- og Skálholtsmálið, voru ræddar milli mín og hæstv. dómsmrh., svo og hæstv. menntmrh., en allir komu þessir ráðh. að meira eða minna leyti við þetta mál og voru við það riðnir að leysa vandamál Skálholtsskólans. En það var ekki borið upp á ríkisstjórnarfundi, ég skal viðurkenna það, og það af þeim einföldu ástæðum, að ég og við, sem um þetta fjölluðum, töldum, að hér væri um að ræða framkvæmdaratriði ráðherranna, sem væri á borð við önnur þau vandamál, sem ráðuneytin verða að ráða fram úr hvert á sínu sviði, án þess að það sé borið undir alla ríkisstjórnina.
Að öðru leyti vil ég svara nokkru því, sem hv. þm. Barð. sagði á síðasta fundi, og skal ég fara fljótt yfir sögu, enda er ræðutími minn takmarkaður eins og annarra. Skal ég minnast á fátt eitt. M. a. hélt hv. þm. því fram einu sinni enn, að samkv. l. um sölu þjóð- og kirkjujarða hefði ekki verið heimilt að selja þessa jörð, og má hann líta á það hvernig sem vera skal. En eins og áður hefur verið tekið fram, er til heimild í lögum um sölu á jarðeignum einstakra opinberra sjóða og þar með ríkissjóðs. Hún er í lögum, sem til eru um ættaróðul og erfðaábúð. Og samkv. þeim l. hafa margar jarðir verið seldar, sem eru ekki þjóð- og kirkjujarðir, og því er ekki ákveðið með l., að verð þeirra skuli renna í ræktunarsjóð.
Þá var það annað atriðið efnislega í þessu máli, sem hv. þm. Barð. var hér með og flutti fram, að mér hefði borið að bera þessa ráðstöfun undir Alþ., áður en hún hefði verið framkvæmd. Ég hef áður lýst skoðun minni á því, að ég hef álitið þetta stjórnarframkvæmd, sem lægi undir mitt ráðuneyti og ég hefði fulla heimild til. En þrátt fyrir það skal ég geta þess, að ég tel, að mér hafi borizt úr óvæntri átt viðurkenning frá Alþ. í þessu verki. Menn vita það allir, að þegar frsm. fjvn. flytur mál fram á þinginu fyrir hönd þeirrar n. í sambandi við afgreiðslu fjárlaganna, þá er það, sem hann segir þar, talið svo þýðingarmikið og mikilsvert, að ef því er ekki mótmælt, annaðhvort af meðnm. hans eða þinginu, þá er það, sem hann lýsir yfir fyrir hönd n., talið hafa sama gildi og lög. Og sama gildir, þegar eitthvað er óljóst í fjárl. og vitnað er í, hvað frsm. fjvn. hafi sagt um eitt og annað. Þegar rædd voru fjárl. fyrir 1948, þá hélt hv. frsm. fjvn. þar langa ræðu um ýmis fjárhagsmál þjóðarinnar, þegar hann hélt sína fjárlagaræðu. Og í sambandi við Kaldaðarnes sagði hann þá þessi orð: „Í sambandi við 12. gr. má benda á, að fyrirhugað er að leggja niður heilsuhælið í Kaldaðarnesi og að jörðin verði seld. Ætlað er, að fé það, sem fyrir jörðina fæst, sé látið ganga til stofnunar nýs hælis fyrir ofdrykkjumenn.“ — Ég vil nú segja það, að meðan Alþ. var svo hamingjusamt að hafa mann fyrir frsm. og form. fjvn., sem naut þeirrar virðingar sjálfur, sem það mikilsverða starf á skilið, þá hefðu svona ummæli af hans munni, þegar hann talaði fyrir hönd fjvn., verið talin sem samþ. Alþ. á þessum gerningi, þegar þeim var ekki mótmælt, hvorki af einstökum hv. þm. né samnm. hans, þannig að ég taldi þetta viðurkenningu fyrir þessum gerningi. Svo ári síðar rís þessi sami hv. þm. upp og telur, að hér hafi gerzt svo mikið hneyksli, að menn þurfi að sitja á Alþ. dögum saman til þess að koma í veg fyrir það. Þetta bendir m. a. til þess, að þessum hv. þm. sé ekki með öllu sjálfrátt.
Þá sagði þessi hv. þm., að ég hefði lagt mig í framkróka undanfarna daga til þess að leita að ýmsum ágöllum á hans starfi, sem ég gæti borið hér fram í þinginu. Ég skal segja þessum hv. þm. það, að þetta er fjarri öllum sanni. Ég skal hvorki telja mér það til lofs né lasts, en ég er ekki þannig skapi farinn, að ég vilji eyða tíma mínum í að leita að syndum annarra og koma þeim í dagsljósið. Það getur verið, að það sé einhver vöntun í mig, að ég vil nota þann tíma, sem ég hef afgangs nauðsynlegum störfum, til annarra hluta. Og ég hef alls ekki leitað að neinum slíkum höggstað á þessum hv. þm. sem hann vildi vera láta. Og ég skal segja honum það, að þó að hann haldi, að hann sé lýtalaus og hvítur í öllum sínum aðgerðum, þá hef ég heyrt svo mikilli gagnrýni haldið fram á hann í sambandi við hans ágæta starf í sambandi við togarakaupin, sem hann hafði á hendi fyrir okkar hönd, Íslendinga, að ef ég hefði haldið því til haga og lagt utan á það þær voðir, sem hann hefur lagt utan um það mál, sem hann hefur gert hér að deiluatriði, þá hefði ég getað flutt ekki skemmri gagnrýnisfyrirlestur yfir honum, en hann hefur flutt yfir mér. En að ég dró fram hans óheyrilegu háu reikninga fyrir starf hans fyrir ríkisstj., var eingöngu af því, að hann særði þetta fram með þeim ásökunum, sem hann hefur borið á mig og mína flokksmenn í sambandi við óráðvandlega meðferð ríkisfjár, — um leið og hann færði sjálfan sig í þennan engilhreina helgiskrúða heiðarleika og grandvarleika í meðferð á opinberu fé, þannig að mér fannst sjálfsagt að draga fram þessa vitneskju, sem ég hafði í höndum og þurfti ekkert að leita að, því að ég tel, að þessi greiðsla, sem hv. þm. Barð. hefur fengið hér í sambandi við þessi störf, sé svo há, að það séu einsdæmi í þingsögunni, þó að íslenzka ríkið hafi oft verið greiðasamt við þá menn, sem fyrir það hafa starfað. Ég tel, að samt hafi þessi greiðsla til eins manns — þó að oft hafi hátt verið greitt fyrir störf fyrir ríkið — verið svo há, að hún mun lengi standa sem gnæfandi tindur upp úr þeim fjallgarði. — Máli mínu er lokið nú, en ég þarf að segja tvö eða þrjú orð síðar.