02.03.1949
Sameinað þing: 45. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 567 í D-deild Alþingistíðinda. (4859)

121. mál, ríkishlutun um atvinnurekstur

Flm. (Björn Ólafsson):

Herra forseti. Þessi tillaga fjallar aðallega um þrennt:

1. Um ríkisrekstur eða beinan atvinnurekstur ríkisins.

2. Um afskipti ríkisvaldsins af atvinnurekstri landsmanna og þær afleiðingar, sem sú íhlutun veldur beint og óbeint.

3. Um fjármálastefnu hins opinbera, sem leitt hefur til geigvænlegrar verðbólgu, taprekstrar, hafta, skömmtunar og athafnaskerðingar.

Ég ætla að leitast við að sýna fram á, hver árangur hefur orðið af framkvæmd ríkisvaldsins undanfarin ár í þessum málum og hver nauðsyn er á, að komið verði á gagngerri breytingu í þessum efnum, eins og í till. greinir. Ég ætla að leitast við að sýna fram á, að ekki sé aðeins hyggilegt að breyta um stefnu í þessum málum frá því, sem nú er, heldur að þjóðinni sé lífsnauðsyn, að það sé gert þegar í stað, og að til þess séu augljósar leiðir, ef samheldni og manndómur er fyrir hendi til þess að brjóta sér braut út úr erfiðleikunum.

Ég ætla þá fyrst að athuga þann þátt, sem ríkisvaldið hefur átt í rekstri nokkurra atvinnugreina, sem það hefur tekið í sínar hendur, og athuga, hvernig rekstur og framkvæmdir hefur blessazt.

Þótt ég sé einn af þeim, sem telja, að ríkisrekstur í hvaða atvinnugrein sem er standi langt að baki einkarekstri í framtaki, hagsýni og allri þjónustu, viðurkenni ég, að rétt sé að hafa sérstakar tegundir rekstrar í almenningsþágu í höndum ríkisins, svo sem póst og síma, útvarp, sjúkrahús, skóla, hressingarhæli o. fl. Þó kemur mér ekki til hugar að efast um, að rekstur þessara stofnana gæti ekki verið betri, en hann er. En ég tel, að það sé fyrir ríkið að fara yfir lækinn til að sækja vatn, þegar það seilist til þátttöku í almennum rekstri, sem borgararnir sjálfir geta haft í höndum sér með miklu betri árangri. Reynslan hefur jafnan sýnt, að atvinnurekstur ríkisins í samkeppni við einstaklinga er sjaldan eða aldrei rekinn af jafnmikilli hagsýni og einkafyrirtækin.

Ég ætla nú að leitast við að sýna fram á, að langt sé frá því, að atvinnurekstur sá, sem nú er á vegum ríkisins, hafi gefið góða reynslu og að full ástæða sé nú til að taka ýmsan þann rekstur til alvarlegrar athugunar, sem kastað hefur verið af lítilli forsjálni á arma ríkisvaldsins undanfarin bjartsýnisár.

Ríkið er nú eigandi að sjö síldarverksmiðjum og fjórðungi í síldarbræðsluskipi á vegum síldarverksmiðja ríkisins. Þetta mikla verksmiðjufyrirtæki er raunverulega rekið á ábyrgð ríkisins, þótt lagastafur sé fyrir því, að svo eigi ekki að vera. Auk þess rekur ríkið tunnuverksmiðjur, trésmiðju, vélsmiðju, bátasmiði. Það rekur niðursuðuverksmiðju í Reykjavík, bifreiðaakstur á langleiðum, ferðaskrifstofu og gistihús í sambandi við hana. Þetta eru nokkrar greinar á almennum atvinnurekstri, sem ríkið tekur nú þátt í. Auk þess er, eins og kunnugt er, ráðgert, að ríkið taki í sínar hendur nýjar greinar af stórrekstri, sem er framleiðsla á sementi og tilbúnum áburði, auk lýsisherzlu.

Síldarverksmiðjur ríkisins eru gott dæmi um það, hvaða hætta getur vofað yfir stórrekstri í höndum ríkisins vegna pólitískra hagsmuna flokka og einstaklinga, sem á hverjum tíma hafa áhrif á stjórn landsins. Fyrir áhrif eins manns, sem atvinnumálin hafði undir höndum, var Síldarverksmiðjum ríkisins hrundið út í illa undirbúnar, vanhugsaðar og flausturslegar framkvæmdir, sem hafa kostað óhemjulegt fé á okkar mælikvarða og bundið verksmiðjunum drápsklyfjar fastra og lausra skulda. Þetta er hætta, sem getur vofað yfir hverjum stórrekstri á vegum ríkisins, að ófróðir menn um verklegan rekstur steypi þeim út í vafasamar framkvæmdir í von um að uppskera pólitískt stundargengi. Fyrirtækin geta lamazt, og þjóðin getur þurft að súpa af því seyðið um langt skeið. Framkvæmd ríkisins á síldarverksmiðjumálunum síðustu árin hefur engin fyrirmynd verið.

Samkvæmt skýrslu, sem fjmrh. gaf hér á þingi fyrir skömmu um afkomu og fjárreiður síldarverksmiðjanna, standa verksmiðjurnar nú í 66 millj. kr. skuld. Af því stendur ríkissjóður formlega í ábyrgð fyrir 50 millj. Reikningslegt tap verksmiðjanna undanfarin tvö ár nemum um 15 millj. kr. Til þess að mæta því tapi áttu verksmiðjurnar í varasjóði í ársbyrjun 1947 um 4,8 millj. kr. Í lok síðasta árs ætti eftir því að vera halli á varasjóðsreikningi, sem nemur um 10 millj. kr. Mest af þessu tapi er að vísu vegna aflabrests undanfarin þrjú ár, en sumt er til komið vegna uppgripaaflans í Hvalfirði 1947–48. Þar að auki má fullyrða, að rekstur ríkisverksmiðjanna sé talsvert dýrari en einkaverksmiðjanna.

Þessu risafyrirtæki á íslenzkan mælikvarða er fengin stjórn, sem valin er pólitískt af þingflokkunum án sérstaks tillits til, hvort mennirnir eru starfinu vaxnir eða hvort útlit er fyrir, að samkomulag geti náðst milli þeirra um það, á hvern hátt eigi að reka verksmiðjurnar. Allir, sem eru í stjórn verksmiðjanna, hafa það starf í hjáverkum, en samt virðist framkvæmdarstjórnin hvíla aðallega á þessum mönnum. Þetta er táknrænt fyrir íslenzkan ríkisrekstur á fyrirtæki, sem getur stofnað til 66 millj. kr. skuldar, fyrirtæki, sem með rekstri sínum gæti stofnað ríkissjóði í mikla hættu fjárhagslega. Rekstri þessa mikla fyrirtækis, sem líklega gengur næst ríkissjóði í fjárveltu og skuldasöfnun, þarf að breyta í annað horf en nú er, svo að það hafi aðra og betri kjölfestu en pólitíska spákaupmennsku og framkvæmdastjórn þess sé ekki höfð í hjáverkum af mönnum, sem öðrum störfum eru hlaðnir.

Tunnuverksmiðjur ríkisins hafa ekki treyst sér til að gera áætlun um reksturinn á þessu ári, og engar upplýsingar liggja fyrir opinberlega um þetta fyrirtæki. En samkv. áætlaðri vaxtagreiðslu virðist fyrirtækið skulda um 4 millj. kr.

1945 voru 3 tunnuverksmiðjum að nafninu til í landinu. Á því ári kaupir ríkið tvær gamlar verksmiðjur, sem aldrei höfðu borið sig fjárhagslega, á Siglufirði og Akureyri. Þriðja verksmiðjan, sem var í einkaeign í Vestmannaeyjum og hafði borið sig vel, var líka keypt, en hún var rifin og flutt norður. Síðan hefur engin tunnuverksmiðja borið sig hér fjárhagslega.

Rekstur þessa fyrirtækis hefur gengið á tréfótum frá byrjun. Fyrstu 2 árin voru smíðaðar 74 þús. tunnur. Afköstin voru rúmlega 1 tunna á vinnustund, en í Noregi er lágmarkið talið 2 tunnum.

1946 pöntuðu verksmiðjurnar tvær stálgrindur í birgðaskemmur, en gátu ekki staðið við pöntunina vegna fjárskorts og urðu að fara bónarveg að seljanda um að mega afturkalla pöntun á annarri grindinni. Það fékkst með því að greiða skaðabætur fyrir samningsrof. 1946 voru einnig pantaðar 16 vélar og eitthvað greitt upp í þær. Allar munu þær enn ókomnar.

Ferðakostnaður verksmiðjanna við kaup á tunnuefni, vélum og fleira árið 1946 er gífurlegur. Á vegum verksmiðjanna og síldarútvegsnefndar sameiginlega virðast hafa verið sjö menn á ferðalögum erlendis aðallega fyrri hluta árs 1946, og er ferðakostnaðurinn samanlagður 258 þús. kr., eða 37 þús. kr. á mann.

Eftir tvö síldarleysisár er líklegt, að verksmiðjurnar liggi með miklar birgðir af síldartunnum. Mér er sagt, að þessar tunnur kosti 42 kr. stykkið, og hefur heyrzt, að útvegsmenn neiti að kaupa þær og heimti að fá að flytja inn erlendar tunnur, sem kosta ekki nema 32 kr. cif. En auk þess sem tunnusmíðin verður með þessu beinn skattur á saltsíldarútflutninginn, má búast við að ríkið tapi stórfé á rekstrinum.

Um vélsmíði og bátasmiði ríkisins er öllum kunnugt. Meðan aðrar vélsmiðjur græddu stórfé í stríðinu, barðist Landssmiðjan í bökkum, þótt hún greiddi enga skatta. Hún er gott dæmi um ríkisrekstur í samkeppni við einkaframtakið. Svo þegar þetta ríkisfyrirtæki ætlaði að taka að sér skipasmíðar, þurfti ríkissjóður að greiða yfir 2 millj. fyrir þessa tilraun og leysa síðan þá starfsemi upp. 1947 varð 402 þús. kr. tap á rekstri Landssmiðjunnar.

Bátasmíði á vegum ríkisins hér innanlands hefur ekki gefið góða raun. Enn eru óseldir 2 bátar og 4 eru í smíðum, sem er óráðstafað. Ríkissjóður á enn útistandandi yfir 5 millj. kr. vegna þessarar bátasmíði. Eins og sakir standa eru bátar þessir óseljanlegir nema með miklum afföllum.

Vegna afskipta ríkisins af Svíþjóðarbátunum svonefndu á ríkissjóður útistandandi um 6 millj. kr., sem liggur í óuppgerðum reikningum við kaupendur.

Niðursuðuverksmiðjan eða Fiskiðjuver ríkisins er enn eitt gott dæmi um ríkisrekstur. Í þetta fyrirtæki hafa nú verið lagðar um 7 millj. kr. frá ríkinu. Það er samt enn hálfkarað, og er áætlað, að kosti 1½ millj. kr. í viðbót að fullgera það. Stjórn verksmiðjunnar er í molum. Starfrækslan hefur ekki hafizt til fulls, vegna þess að vélar vantar, rekstrarfé og líklega hráefni. Enginn sýnist bera ábyrgð á fyrirtækinu, enda er afkoman óburðug eins og vænta má. 1947 var 289 þús. kr. tap á rekstrinum.

Ferðaskrifstofa ríkisins er orðið mikið fyrirtæki og virðist fara vaxandi. Hefur skrifstofan meðal annars tekið að sér hótelrekstur. Gæti það bent til þess, að henni sé ætlað að annast slíkan rekstur í vaxandi mæli fyrir reikning ríkisins. Tap af ferðaskrifstofunni þetta ár er áætlað 200 þús. kr. Tapið á að greiðast úr „sérleyfissjóði“. En í þann sjóð er greitt 5% af fargjöldum langferðabifreiða. Í þann sjóð greiðir ríkissjóður hátt á annað hundrað þúsund af taprekstri sínum á sérleyfisakstri. Lætur þá nærri, að taprekstur ríkisins á akstrinum standi undir tapinu af rekstri ferðaskrifstofu ríkisins.

Sérleyfisakstur ríkisins milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar og Reykjavíkur og Akureyrar hefur á síðasta ári verið rekinn með þeim árangri, að gert er ráð fyrir, að raunverulegur rekstrarhalli verði 500–600 þús. kr. Rekstrarhalli árið 1947 á þessum akstri var 240 þús. kr. Hefur þá á tveimur árum orðið tap á þessum ríkisrekstri, er nemur samtals um 750–850 þús. kr. Engin nauðsyn rak ríkisvaldið til þess að seilast inn í þennan atvinnuveg, því að einstaklingarnar, sem áður ráku hann, hefðu haldið því áfram, ef þeim hefði verið veitt sú aðstoð við öflun tækja, sem ríkinu hefur verið veitt. Ef ríkið heldur þessu áfram eða jafnvel sellist til frekari íhlutunar, verður árangurinn annaðhvort sá, að gífurlegt tap verður á rekstrinum, eða að landsfólkið verður að taka á sig óhagsýni rekstrarins með hækkuðum fargjöldum. Áður ráku einkafyrirtæki þennan akstur með hagnaði og tiltölulega mjög lágum fargjöldum.

Af þeirri reynslu, sem fengizt hefur af opinberum rekstri fyrirtækja, getur fáum blandazt hugur um það, að slíkur rekstur hefur farið illa úr hendi hér á landi. Ríkisvaldið verður að sjá allt með annarra augum, ef svo mætti segja, og pólitískir hagsmunir þeirra flokka, sem stjórna á hverjum tíma, hafa áhrif á reksturinn. Sömu örlög hljóta að bíða þeirra miklu fyrirtækja, sem rætt er um að koma á fót á vegum ríkisins, sements-, áburðar- og lýsisherzluverksmiðja. Ef ríkið á að koma upp og reka slíka stóriðju með sama sleifarlaginu og einkennir hér opinberan rekstur, þá er opinberum fjármálum stefnt í beinan voða. Með pólitískar framkvæmdarstjórnir og ríkisábyrgð á þessum stórrekstri mætti flækja þjóðina í slíkt net taprekstrar og ábyrgða, að ekki yrði undir risið.

Svona er nú reynslan af ríkisrekstri atvinnugreina hér á landi. Þessi rekstur leiðir til óheilbrigðrar þróunar, og þarf því að verða breyting þar á.

En þó eru önnur afskipti hins opinbera af atvinnuvegunum langtum hættulegri, er geta leitt til hruns í fjármálum og atvinnulífi landsmanna. Það eru þau afskipti ríkisvaldsins, sem halda við taprekstri bátaútvegsins með beinum styrkjum úr ríkissjóði og ábyrgð á fiskverðinu, er ekki getur leitt til annars, en þjóðnýtingar á útveginum, ef áfram er haldið. Þessi íhlutunarstefna ríkisvaldsins og þær afleiðingar, sem hún hefur, sýrir og sýkir nú allt fjármálakerfi landsins og hefur lamandi áhrif á atvinnuvegina. Að vísu er þessi íhlutunarstefna ein afleiðing efnahagsástands, sem skapazt hefur í landinu á undanförnum árum, og kem ég að því síðar.

Öllum kemur saman um, að ábyrgð ríkissjóðs á Fiskverðinu sé í raun og veru fjarstæða, sem ekki sé hægt að halda áfram. Enginn getur sagt um það fyrir fram, hvað sú ábyrgð getur kostað ríkissjóð, og því ekki hægt að fullyrða, að ríkissjóður geti staðið undir þeim bagga, sem honum hefur verið bundinn með þessu. Ábyrgðin er að gera þennan aðalatvinnuveg ósjálfbjarga. Hann er að verða eins og fátæklingur, sem farinn er að þiggja af sveit. Sjálfsbjargarhvötin hverfur. Hagsýni og framtakssemi einstaklinganna smádvínar, en í staðinn kemur kröfupólitík á hendur ríkisvaldinu. Fiskábyrgðin er stærsta fjárhættuspil í opinberum fjárreiðum, sem nokkurn tíma hefur verið lagt út í hér á landi. Uppbótargreiðslur ríkissjóðs síðustu tvö árin sýna, hversu áætlanir um slík útgjöld eru gersamlega óraunhæfar. 1947 voru þessar greiðslur áætlaðar 35 millj. kr., en urðu 60 millj., 1948 voru þær áætlaðar 55 millj. kr., en verða að líkindum yfir 70 millj. Hér er um að ræða einn þáttinn í hinni sívaxandi skuldasöfnun ríkisins.

En þess er vert að gæta við umræður þessa máls, að það er ekki útvegurinn, sem hefur óskað eftir þessari skipun málanna. Þessi atvinnuvegur hefur farið þess á leit að fá heilbrigðan grundvöll til að starfa á. En ríkisstjórn og Alþingi hafa svarað því með því að bjóða fram ábyrgð og styrk, en ekkert annað.

Af hverju hefur svo ríkisvaldið farið inn á þá hættulegu braut að taka ábyrgð á rekstri eins aðalatvinnuvegs landsmanna? Á því er engin skýring önnur en sú, að þing og stjórn á undanförnum árum hafa látið undir höfuð leggjast að hverfa frá eyðslustefnu í opinberum fjármálum og gera þær vanþakklátu, en lífsnauðsynlegu ráðstafanir, er skapað gátu jafnvægi í efnahagsmálum þjóðarinnar og heilbrigðan grundvöll fyrir rekstur atvinnuveganna.

Ég hef nú að nokkru rætt um ýmsan atvinnurekstur, sem ríkið hefur með höndum, og leitazt við að sýna fram á, að allur slíkur rekstur gengur að meira eða minna leyti á tréfótum. Ég hef einnig leitazt við að sýna fram á, að ráðstafanir ríkisvaldsins um rekstur bátaflotans stofna fjármálakerfi þjóðarinnar í mikla hættu.

En þá kem ég að þriðja meginatriðinu — fjármálastefnu Alþingis undanfarin ár og þeim margþættu og hættulegu afleiðingum, sem hún hefur haft í för með sér.

Alþingi hefur undanfarin ár veitt stórkostlegu fjármagni út til þjóðarinnar í gegnum fjárlög, með nýrri lagasetningu og með ríkisábyrgðum, sem nú eru orðnar um 300 millj. kr. Þetta hefur svo komið fram í formi íbúðarhúsa, verksmiðja, frystihúsa, skipa, orkuvera, hafnargerða, opinberra bygginga, trygginga, félagsmála og kauphækkana. Í öllu þessu hefur ríkissjóður verið aðalframkvæmandi, þátttakandi, ábyrgðaraðili eða hjálpari á annan hátt. Til alls þessa hefur verið varið gífurlegu fé á okkar mælikvarða. Því hefur verið náð með eyðslu allra erlendra inneigna, með síauknum álögum skatta og tolla og nú síðustu tvö árin einnig með lánum. Þessi sjúklega ofrausn í fjármálastefnu löggjafar- og framkvæmdarvaldsins hefur leitt til ofstjórnar þjóðarbúsins, aukins ríkisrekstrar og opinberrar íhlutunar. Þessi stefna hefur skapað aðalþunga verðþenslunnar, það misræmi og þann jafnvægisskort í þjóðarbúskapnum, sem leitt hefur af sér tapreksturinn, nefndavaldið, höftin og skömmtunina.

Allri gjaldeyriseigninni, sem stóð hæst 1945 í 580 millj. kr., var eytt á 3 árum, 1945, 1946 og 1947. Mest af þessari gjaldeyrissölu hefur kallað á tilsvarandi aukningu bankaútlána.

Frá því í árslok 1944 og til ársloka 1948 hækkuðu útlán bankanna um samtals 554 millj. kr. og standa útlánin um síðustu áramót yfir 800 millj. kr. Á sama tíma er sparifjáreignin í kringum 450 millj. kr. Eru því útlánin miklu hærri en hægt er að forsvara af bankastjórnum og ríkisstjórn, sem bera beint og óbeint ábyrgð á þessum málum.

Á árunum 1945–47 hækkuðu ábyrgðir ríkissjóðs um rúmar 200 millj. kr. Í árslok 1944 voru ábyrgðirnar 95 millj., en í árslok 1948 um 300 millj. kr.

Á þessum sömu árum, 1945–47, hækkuðu fjárlög (miðað við fjárlög 1944) um samtals 179 millj. kr. samkvæmt afgreiðslu Alþingis, en í framkvæmdinni hækkuðu þau um 448 millj. kr., þegar umframgreiðslur þessi ár eru taldar, sem voru 269 millj.

Árið 1939 urðu gjöld ríkissjóðs skv. sjóðsreikningi 22½ millj. kr. Við þetta ár miðum við vísitöluna og segjum, að hún hafi þá staðið í 100. Ef þróun ríkisgjaldanna er athuguð og borin saman við árið 1939, er útkoman þessi:

Skv. fjárlögum

1944

Höfðu gjöldin

4-

faldast

— —

1945

— —

5-

faldast

— —

1946

— —

6½

—

— —

1947

— —

10-

—

— —

1948

— —

11-

—

Á sama tíma hækkaði vísitalan úr 263 í byrjun árs 1944 upp í 319 í ársbyrjun 1948, eða um aðeins 56 stig á þeim tíma, sem fjárlögin sjöfaldast. Þótt tekin sé með í reikninginn vísitalan eins og hún ætti að vera án niðurgreiðslu, eða nálægt 400, verður niðurstaðan sú, að fjárlögin 11-faldast á meðan framfærslukostnaður í landinu — skv. vísitölu — 4-faldast.

Á þessum fáu árum, sem ég hef áður nefnt, hafa verið settar í umferð yfir 1.000 millj. kr. með hækkuðum bankalánum, ríkisábyrgðum og hækkuðum útgjöldum ríkissjóðs. — Og þessu gífurlega fé á okkar mælikvarða er veitt inn í fjárhagskerfið að mestu leyti í viðbót við eðlilega fjárþörf atvinnulífsins.

Það má segja, að setið hefur verið að þessu sumbli meðan sætt var. Nú er svo komið, að ekki verður lengur haldið áfram ofrausnarstefnunni, nema siglt verði í strand þjóðarskútunni.

Ég hef fyrir nokkrum dögum, eins og aðrir þingmenn, fengið greinargerð frá Landsbankanum um lánveitingar bankanna og verðþensluna. Þessi greinargerð er auðkennd sem „trúnaðarmál“. Þrátt fyrir það ætla ég að minnast á hana hér, því að ég tel, að greinargerðin eigi ekki að vera trúnaðarmál fyrir þjóðinni og það sé skylda að birta hana. Þessi greinargerð Landsbankans hygg ég að sé einhver harðasti dómur, sem nokkur þjóðbanki hefur látið frá sér fara um fjármálastefnu þings og stjórnar síns eigin lands. Í greinargerð bankans segir meðal annars á þessa leið: „Fjármálastefnan hér á landi hefur undanfarið gengið í berhögg við það, sem talið er sjálfsagt víðast hvar annars staðar, bæði hvað snertir sjálft markmiðið, að viðhalda jafnvægi í efnahagslífinu, og einnig hvað snertir eina helztu aðferðina til þess að haga fjármálum ríkisins í samræmi við þann tilgang. Hin gegndarlausa fjárfesting undanfarinna ára hefur að mjög verulegu leyti átt sér stað fyrir beinan tilverknað ríkisvaldsins.“

Enn segir þar:

„Og þessari stefnu var haldið áfram og henni er enn haldið áfram, þó að hinar geigvænlegu afleiðingar hennar séu fyrir löngu byrjaðar að koma fram og þó að öngþveitið, sem af henni leiðir, aukist með hverjum deginum sem líður“. Og enn segir þar:

„Hin nána aðild ríkisvaldsins að fjárfestingunni hefur leitt til þess, að peningastofnanirnar hafa nauðugar viljugar orðið að leggja fram fé til hennar. Þær hafa orðið að lúta í lægra haldi fyrir yfirlýstri stefnu Alþingis, ríkisstj. og stjórnmálaflokkanna í þessum málum“.

Að síðustu skal ég taka þetta:

„Verði haldið áfram sömu stefnu í peningamálum og fylgt hefur verið undanfarið, er öldungis víst, að verðþenslan heldur áfram að aukast, með þeim afleiðingum, að ófremdarástandið, sem nú er á sviði útflutningsframleiðslu, gjaldeyrismála, fjárfestingarmála, verðlagsmála, vörudreifingar og kaupgjaldsmála, fer enn í vöxt, og gæti slíkt ekki endað nema á einn veg, með stórfelldu gengishruni og algerri ringulreið í efnahagslífinu.“

Þótt ég hafi tekið hér stutta kafla, hef ég reynt að slíta málið ekki úr samhengi eða brengla meininguna.

Þetta eru alvarleg orð, sem ég hef lesið hér, og getur varla nokkrum dulizt, að stjórn bankans ber nú fram þessa aðvörun fyrir þing og stjórn, svo að á ókomnum árum verði ekki hægt að segja, að bankinn hafi ekki bent á hættuna, ef illa kann að fara.

Eins og ég hef áður sagt, eru afleiðingar þessarar fjármálastefnu meðal annars nefndavaldið, höft og skömmtun, sem fer sífellt vaxandi og versnandi. Með þeim stofnunum, er um þessi mál fjalla, hefur ríkisvaldið reynt að hafa hemil á afleiðingum dýrtíðarinnar og hinnar opinberu fjármálastefnu. En það hefur ekki enn verið reynt að stemma á að ósi eða að skera á þær rætur, sem erfiðleikarnir eru vaxnir upp úr.

Nefndavaldið — fjárhagsráð, viðskiptanefnd og skömmtunarskrifstofan — er nú orðið eitt mesta vald í landinu að tilhlutun ríkisstj. og Alþingis. Alræðisvald þessara nefnda yfir öllu athafnalífi manna í landinu verkar stórkostlega lamandi vegna þunglamalegra vinnubragða og óþolandi skriffinnsku. Kostnaður við þessar nefndir fer sífellt vaxandi, og er hann á þessu ári áætlaður 3.286 þús. kr. En tekjur stofnananna, sem teknar eru með skatti á innflutning og gjaldeyrissölu, má áætla á þessu ári um 4 millj. kr. Húsaleiga er áætluð 203 þús., bifreiðakostnaður 68 þús. og aukavinna 155 þús., svo að nokkrir liðir séu nefndir. Hjá þessum stofnunum vinna nú 94 manns, svo sem hér segir:

Fjárhagsráð ............................. 21 manns

Verðlagsstjóri og viðskiptanefnd ....47 —-

Skömmtunarskrifstofan ............26 —-

Samtals 94 manns

Það er ekkert smáræðis skrifstofubákn, sem hér hefur verið sett á stofn, á íslenzkan mælikvarða.

Þótt segja megi, að nokkur árangur hafi náðst af starfi fjárhagsráðs til stöðvunar á fjárfestingunni frá því, er mest var, þá er þess að gæta, að stöðvun á slíku kemur smám saman af sjálfu sér, þegar öll gjaldeyriseignin er þrotin og útlán bankanna komin langt upp yfir öll skynsamleg takmörk.

En starfsemi fjárhagsráðs og undirdeilda þess, viðskiptanefndar og skömmtunarskrifstofu, liggur svo þungt á nálega öllum atvinnurekstri í landinu vegna óheppilegra vinnubragða, að til vandræða horfir. Vinnubrögð þessara stofnana eru langt fyrir neðan það, sem gera verður kröfu til, jafnvel í opinberum rekstri. Fjöldi manna í landinu verður að verja miklum tíma frá nytsamlegum störfum til þess að fá afgreiðslu mála sinna í þessum stofnunum. Reynslan virðist benda til þess, að veiting gjaldeyris- og innflutningsleyfa sé ekki framkvæmd eftir neinum ákveðnum reglum, starfið því allt í molum. Margir halda því fram, að þessi mál hafi aldrei verið í meira ófremdarástandi en nú, síðan gjaldeyrishöft hófust hér. Þó grípa þessar framkvæmdir svo að segja inn í allan atvinnurekstur og menn úr öllum stéttum hvaðanæva af landinu verða að verja dýrmætum tíma til þess að ná tali af þessum stofnunum í því skyni að fá einhverja vitneskju um, hverrar úrlausnar þeir megi vænta fyrir atvinnurekstur sinn. Borgararnir virðast alveg réttlausir gagnvart þessum valdamiklu stofnunum, og það má teljast sérstök náð, ef menn fá svör við málaleitunum sínum og kvörtunum. Skömmtunin og skipulagning hennar er orðið flókið skriffinnskukerfi, sem liggur þungt á allri dreifingarstarfseminni í landinu. Óvinsældir skömmtunarinnar fara dagvaxandi, meðal annars vegna þess, hvernig hún er framkvæmd.

Nefndavaldið, höftin og skömmtunin liggur eins og mara á öllu framkvæmdalífi í landinu. Það dregur úr framtaki og framkvæmdarvilja. Það orsakar þverrandi afköst, veldur erfiðleikum í margs konar rekstri og mikilli truflun í allri starfsemi þjóðfélagsins. Þótt margt kunni að vera hjá okkur öðruvísi en æskilegt væri, efast ég um, að nokkuð sé eins aðkallandi og það að leysa þjóðina undan þeirri haftaskipulagningu, sem hún á nú við að búa. Þeir erfiðleikar, sem landsmenn hafa nú við að stríða á öllum sviðum, verða ekki leystir, nema tekin verði ný stefna í opinberum fjármálum og sú auðlegð leyst úr læðingi, sem býr í framtaki, hyggindum og vinnugleði einstaklinganna, ef þeir fá að njóta sín.

Það misræmi, sem nú er komið í alla efnahagsstarfsemi þjóðarinnar, verður að lagfærast. Misræmið kemur fram í of mikilli fjárfestingu, í fjárhagserfiðleikum ríkisins, í hættulegri útlánaþenslu bankanna, í taprekstri atvinnuveganna og í athafnaskerðingu og höftum. Ef þessu misræmi verður ekki útrýmt fljótlega, getur sú þróun, sem nú fer fram, ekki endað nema á einn veg, — eins og Landsbankinn segir — með algerri ringulreið í efnahagslífinu.

Ég hef áður í þingræðu bent á, að fjárfestingin í landinu er komin út í öfgar og að ekki verði hjá því komizt að draga úr henni og um leið innflutningi kapítalvara, til þess að þjóðin geti fætt sig og klætt og viðhaldið eignum sínum. Hin opinbera fjármálastefna hefur haldið uppi fjárfestingarkapphlaupinu — heldur því enn áfram gegnum haftastofnanirnar, þótt landsmenn hafi ekki lengur nein efni á slíkri fjárfestingu. Þeim er hins vegar lífsnauðsyn að koma á öruggan grundvöll þeirri fjárfestingu, sem þeir hafa færzt í fang undanfarin ár, áður en lengra er farið. Hagfræðingar fjárhagsráðs telja, að fjárfesting þjóðarinnar sé miklu meiri, en annarra þjóða, t. d. Norðmanna. Meðan hliðstæð fjárfesting þeirra sé 16%, er okkar fjárfesting 33%. Hins vegar er fjárfesting annarra þjóða miklu minni. Það er fjarstæða að hugsa sér, að þjóðin geti sparað til fjárfestingar 30–40%, fyrir utan skatta, meðan aðrar þjóðir spara til slíks 5–10%.

Því marki verður ekki náð á einum degi, að ná jafnvægi eða samræmi í efnahagslífinu, en með mörgum samhliða ráðstöfunum má að líkindum komast langt áleiðis á skömmum tíma. En um leið og jafnvægið vex, en misræmið minnkar, þá kemur lagfæringin á öllum sviðum, og þörfin minnkar fyrir höft og skömmtun. Við skulum þess vegna athuga, hvernig mætti hugsa sér að ná þessu nauðsynlega jafnvægi í efnahagslífinu.

Ég er ekki einn um þá skoðun, að aðalorsök hins mikla ósamræmis í efnahagsmálum þjóðarinnar (sem við öðru nafni getum kallað verðbólgu og offjárfestingu) er fjármálastefna Alþingis undanfarin ár, sem ég hef nefnt fjármálastefnu hins opinbera. Eins og þessi stefna hefur verið framkvæmd, mætti kalla hana sjúklega ofrausnarstefnu. Öllum þingheimi er nú að verða ljóst, að með þessari stefnu hefur fjárhagsgetu þjóðarinnar verið reistur hurðarás um öxl.

Ef þetta er rétt, þá er það líka augljóst, að ráðstafanir til að öðlast afturbata eigi að byrja hjá ríkisstj. og Alþingi, sem mótar fjármálastefnuna. Greiðsluhalli ríkissjóðs 1947 og 1948 nemur að líkindum um 100 millj. kr. Eins og nú horfir og með óbreyttri stefnu má gera fyrir raunverulegum greiðsluhalla á þessu ári, er nemur mörgum tugum milljóna. Enginn getur í dag sagt, hversu mikið ríkissjóður þarf að í greiða fyrir þær skuldbindingar, sem á hann hafa verið lagðar, né áætlað með nokkurri vissu tekjur hans á árinu. Auk hinna gífurlegu útgjalda til hins opinbera skv. fjárlögum er með atvinnurekstrinum sett í umferð stórkostlegt fjármagn, sem tekið er að láni og er umfram heilbrigðan afrakstur atvinnuveganna. Þetta orsakar verðbólgu í stórum stíl, gerir atvinnuvegina óarðbæra, framkallar þurrð á neyzluvörum og ákallar sívaxandi höft til þess að halda í skefjum hrópandi misræmi í þjóðarbúskapnum, sem sífellt er að aukast vegna hinnar opinberu fjármálastefnu. Alþingi á þess vegna sjálft að byrja á því að taka til á sínu eigin heimili og gera þær ráðstafanir, sem lífsnauðsynlegar eru til þess að koma á jafnvægi í efnahagslífinu. Ég skal þá nefna nokkrar ráðstafanir, sem gera mætti til að ná jafnvægi í efnahagslífinu með breyttri fjármálastefnu og einfaldari skipun málanna. Túlka ég hér aðeins mínar eigin skoðanir, en ekki flokks míns. Hér er ekki um að ræða neinar nýjar leiðir, sem aðrir hafa ekki komið auga á áður. En ég læt hér í ljós mína skoðun á því, hvað af þeim leiðum eigi að nota, sem um er að velja í þessum málum.

Eins og ég hef áður tekið fram, álít ég, að breyta verði um stefnu í opinberum fjármálum og gera eftirfarandi ráðstafanir í sambandi við fjármál ríkisins:

1. Afgreiða fjárlög með ríflegum tekjuafgangi á sjóðsreikningi og áætla tekjurnar varlega, svo að ekki aukist skuldir ríkissjóðs af þessum sökum.

2. Stöðva allar greiðslur úr ríkissjóði utan fjárlaga.

3. Veita engar nýjar ábyrgðarheimildir og stöðva fyrst um sinn framkvæmd þeirra ábyrgðarheimilda, sem nú eru í gildi.

4. Setja engin ný lög, er krefjast mikilla fjárútláta, fyrr en ástandið batnar.

5. Draga úr allri fjárfestingu ríkisins og draga úr útgjöldum fjárlaga, hvar sem það er hægt án þess, að ríkisreksturinn stöðvist.

6. Ríkið taki engin erlend lán til að standa undir rekstri sínum.

7. Sérstakar ráðstafanir verði gerðar til að greiða að fullu lausaskuldir ríkissjóðs. En jafnframt verði krafizt uppgjörs á vanskilum við ríkissjóð vegna ábyrgða eða viðskipta. Skynsamleg afgreiðsla fjárlaga er fyrsta sporið í áttina. Og fyrsta krafan er sú, að ríkissjóður hætti að safna skuldum, en hafi í þess stað afgang á sjóðsreikningi. Þetta er sú kjölfesta, sem fjárhagskerfi landsins skortir í dag.

Um það verður vafalaust deilt, hvort draga skuli úr allri fjárfestingu ríkisins og jafnframt úr öllum útgjöldum fjárlaga svo mikið sem hægt er án þess, að ríkisreksturinn stöðvist. En verði þetta ekki gert ásamt öðru, sem þarf til að lagfæra efnahagsástandið, þá kemur stöðvunin af sjálfu sér — og þá verður hægt að spara sér deilurnar og reiptogið.

Ef Alþingi tæki upp þessa stefnu, sem ég nú hef nefnt í fjármálum hins opinbera, mundi það hafa heilsusamleg áhrif á hugsun og störf þjóðarinnar. En slíks er nú mikil þörf.

Eins og málum er nú komið, get ég ekki séð, að nokkur raunhæf leið sé til að aflétta taprekstri útvegsins nema með gengislækkun. Ég hef ætíð verið andvígur gengislækkun og tel hana örþrifaráð. En svo lengi hefur dregizt að reyna aðrar leiðir, að efnahagsþróunin er komin á það stig, að varla þarf að búast við, að hægt sé að stíga langt skref til baka nema af því leiði hrun í mörgum greinum.

Mér sýnist, að hin svokallaða verðhjöðnunarleið, með nokkurri von um leiðréttingu ástandsins, muni nú kosta meira harðrétti og fórnir, en hófleg gengislækkun. Með gengislækkun mætti koma útflutningsframleiðslunni á fæturna með minnstri truflun, en það er undirstaða fyrir afturbata efnahagslífsins. Í því sambandi hef ég hugsað mér þessar ráðstafanir:

1. Lækkun krónunnar um 25%.

2. Í sambandi við breytingar á gjaldeyris- og viðskiptahöftunum fái útflytjendur að ráðstafa frjálst 25% af gjaldeyri sínum.

3. Jafnhliða gengislækkuninni sé afnumin sú tollahækkun, sem samþykkt var í gjaldeyrislögunum frá desember 1947.

4. Vísitalan sé fest í 300, eins og nú er, og ráðstafanir séu gerðar til þess, að kaupgjald hækki ekki, meðan ástandið leitar jafnvægis í efnahagsmálunum.

Við skulum gera okkur grein fyrir, að krónan hefur þegar verið lækkuð í verði með ýmsum ráðstöfunum, sem gerðar hafa verið til fjáröflunar. Tollahækkunin 1947 var ekki annað en gengislækkun. Þótt ekki liggi fyrir neinar tölur um, hvað þessi hækkun er mikill hundraðshluti af verðmæti þess innflutnings, sem hækkunin lendir á, má gera ráð fyrir, að það sé um 20–30%. Ef þessi tollahækkun væri afnumin, mundi það líka vega talsvert á móti umræddri gengislækkun.

Með þessari gengislækkun og frjálsri ráðstöfun á 25% af gjaldeyri, sem ég kem að síðar, mundi útflutningsframleiðslan að líkindum geta komizt á réttan kjöl að öllu óbreyttu. Mótorbátur, sem aflar 500 tonn (talið meðalafli), mundi á þennan hátt að líkindum geta fengið 20 aurum hærra útflutningsverð fyrir hvert kíló fisks, en hann fær nú. En gengislækkunin mundi kosta hann rúmlega 2 aura á kíló í verðhækkun á olíu og veiðarfærum.

Að því er vísitölubindinguna snertir, munu ýmsir segja, að þar sé verið að leggja byrðarnar, á launþegana í landinu. Það er rétt, að þetta kemur tilfinnanlegast við þá í svipinn, þótt það raunar komi við alla. Allir taka kaup í einni eða annarri mynd, sem fer eftir afkomunni yfirleitt. En það er engar ráðstafanir hægt að gera, sem ekki koma niður á þeim, er kaup taka í landinu. Þótt eignir þeirra, sem eitthvað eiga, væru allar teknar til að jafna byrðina, væri það að tjalda til einnar nætur, aðeins eitt viðarknippi á eldstó verðbólgunnar. En binding vísitölunnar á ekki að vera byrði, nema meðan ástandið í efnahagsmálunum leitar jafnvægis.

Ýmsir tala um, að hægt sé að lækna dýrtíðina með því að lækka allt verðlag í landinu. En mér vitanlega hefur enginn lagt fram sundurliðaðar tillögur um, hvernig þetta ætti að gerast — eða gert sér grein fyrir, hvaða afleiðingar það hefði.

Framsfl. hefur nýlega gert samþykkt um þessi mál, en ekki verður séð, að flokkurinn hafi gert sér nokkra ákveðna grein fyrir, hvaða leið eigi að fara eða hvernig framkvæmdin á að vera. Yfirlýsingin er loðin, og flokkurinn ber kápuna á báðum öxlum. Mér vitanlega hefur hvorki hann né nokkur annar flokkur í þinginu lýst enn yfir því, hvaða aðgerðir þeir vilji hafa í þessum vandamálum þjóðarinnar eða hvernig þeir vilja leysa þau.

Framfærsluvísitala Norðmanna er 180, að vísu mikið niðurgreidd; okkar er 329 (líka niðurgreidd), og þyrfti því að lækka hana um nærri helming, til þess að við hefðum svipaðan framleiðslukostnað. Stærsti liður framleiðslukostnaðarins er vinnulaun, og til þess að geta lækkað þann lið, þótt ekki væri nema um þriðjung, þyrfti verðlag nauðsynja að lækka mjög verulega. Við þriðjungslækkun vinnulauna mundu innlendar afurðir lækka í verði sem svarar 32–35 vísitölustigum. Þó að þessi lækkun væri dregin frá lögfestu kaupvísitölunni 300, kæmist hún samt ekki nema niður í 265 stig til að byrja með. Að vísu mundi einhver lækkun koma frá öðrum liðum sem bein afleiðing. Þetta væri allsendis ófullnægjandi til þess að lækna verðbólguna og tryggja rekstur útflutningsframleiðslunnar. Auk þess mundi kauplækkun um þriðjung, án þess að mikil verðlækkun nauðsynja fylgdi, skapa harðrétti meðal almennings, meira en ýmsar aðrar ráðstafanir, frá því, sem nú er. Í því sambandi má benda á, að við ráðum ekki yfir verði á erlendum vörum og getum ekki lækkað það nema með miklum niðurgreiðslum.

Í sambandi við verðhjöðnunarleiðina er talað um að fella nýjar fasteignir í verði, skera niður bankainneignir, verðbréf o. fl. Þetta mundi að sjálfsögðu draga úr verðþenslunni, en mundi vafalaust orsaka hrun og ringulreið um langan tíma. Þess konar ástandi fylgir ætíð atvinnuleysi. Við megum líka vara okkur á því, að þótt sjúklingurinn þarfnist ýmissa læknisaðgerða, þá getur verið hættulegt að gera á honum holskurð áður en annað er reynt.

Menn ættu ekki að blekkja sjálfa sig á því, að verðlækkunarleiðin, eins og komið er, sé auðveld og einföld til afturbata. Sú leið er möguleg, en hún er bæði torfær og erfið, og verður ekki komizt fram úr henni nema landsmenn vilji taká á sig þungar byrðar, meðan ástandið leitar jafnvægis.

Menn verða að gera sér ljóst, að það er sama hvaða leið er farin til þess að lagfæra ástandið, — þær miða allar að einu og sama marki, þær hafa allar sömu afleiðingar að meira eða minna leyti, — að draga úr þeim lífskjörum, sem þjóðin hefur haft um nokkra stund, vegna þess að hún hefur lifað og lifir enn um efni fram. Hún eyðir meir en hún aflar. Nú er svo komið, að hún getur ekki haldið því áfram lengur.

Ég kem þá að fjórða atriðinu: Þær leiðir, sem ég hef þegar nefnt, miða að því að ná jafnvægi í efnahagslífinu. Ég álít, að þessar ráðstafanir séu nógu stórt skref til þess, að hægt sé með vissum skilyrðum að gefa innflutninginn frjálsan og afnema skömmtunina.

Hræðslan við það, að nokkuð sé slakað á höftunum, er orðin svo rík í huga margra manna, að það er eins og þeim finnist, að þjóðfélagið muni falla í rúst, ef nokkuð er fellt niður af þessum ráðstöfunum. Þessi móðursýkiskennda trú á höftin spinnur svo vef sinn fastar og fastar utan um þjóðina, án þess að nokkur gagnrýni eða skynsamleg hugsun komist þar að.

Innflutnings- og gjaldeyrismálin eru komin í slíkt öngþveiti, að ekki verður lengur við unað. Núverandi þunglamaleg skriffinnskuframkvæmd þessara mála liggur svo þungt á mönnum, að það verkar eins og hemill á hjól starfrækslunnar í landinu. Auk þess eru þessi mál að verða eitt aðalþrætuepli lýðræðisflokkanna og geta orðið til þess að sundra samvinnu þeirra, sem þjóðinni er nauðsyn, að geti haldizt, eins og sakir standa.

Ég vil láta gefa innflutninginn frjálsan með eftirfarandi skilyrðum:

1. Enga vöru má tollafgreiða, nema fyrir liggi yfirlýsing frá seljanda eða banka, að varan sé greidd. Háar sektir skulu liggja við, ef vara er flutt til landsins án þess, að hún sé greidd eða greiðsla tryggð.

2. Jafnframt sé ákveðið, að innflutningur á vissum vörutegundum sé alveg bannaður, og enn fremur, að gerð sé skrá yfir miður nauðsynlegar vörur, er háðar séu háum en mismunandi söluskatti, sem lækka má síðar eftir því, sem jafnvægi næst í efnahagsmálunum.

3. Gengi krónunnar sé lækkað, er nemur 25%. Útflytjendur fái umráð yfir og frjálsa ráðstöfun á 25% af gjaldeyri sínum.

4. Bankarnir starfræki sameiginlega „gjaldeyrisdeild“, með 3 manna stjórn, eftir nánari fyrirmælum.

5. Verðlagseftirlitið verði gert einfaldara og starfrækt sem deild í viðskiptamálaráðuneytinu. Skömmtunarskrifstofan verði lögð niður. Fjárhagsráð gæti haldið áfram að starfa, en á öðrum grundvelli og með öðru erindisbréfi, en nú er.

Þetta eru aðalatriðin í þeirri hugmynd að létta af mestu höftunum og losna við hin seigdrepandi áhrif þeirra. Að sjálfsögðu er margt í sambandi við þetta, sem ekki er hægt að taka fram í stuttri greinargerð og yrði að taka til meðferðar í einstökum atriðum við nánari undirbúning málsins. Þeir, sem eru hræddir við allt nema höft og ófrelsi, munu segja, að með þessu sé farið úr öskunni í eldinn. Ég vil í fyrsta lagi benda þeim á, að með þessu fyrirkomulagi er tryggt, að innflutt verður ekki annað en það, sem landsmenn geta greitt á hverjum tíma. Í öðru lagi, að með lækkuðu gengi krónunnar er dregið úr eftirspurninni um erlendar vörur. Í þriðja lagi er settur mikill hemill á innflutning miður nauðsynlegra vara með háum söluskatti til bráðabirgða, en ríkissjóði jafnframt tryggðar tekjur. Raunverulega má hindra innflutning eftir vild með slíku fyrirkomulagi, en það á aðeins að vera í gildi meðan efnahagsástandið er að ná jafnvægi. Meðan jafnvæginu hefur ekki verið náð og gjaldeyririnn svarar ekki til eftirspurnarinnar, verður að sjálfsögðu einhver aðill að hafa úthlutunina á hendi. Það starf á að vera hjá bönkunum og vera framkvæmt eftir einföldum og skynsamlegum reglum, með tilliti til þess, að nokkuð af gjaldeyrinum sé gefið til frjálsrar ráðstöfunar. Síðan höftin hófust hér 1931, hefur jafnan vofað yfir sú hætta, að gjaldeyrisnefndirnar gefi út miklu meiri gjaldeyrisleyfi, en bankarnir geti sinnt. Þess vegna hefur verð skipuð „millibankanefnd“ til þess að ráða bót á þeirri meinloku. Með því að láta bankana sjálfa bera ábyrgð á gjaldeyrisúthlutuninni, kemst þetta inn í heilbrigðari farveg.

Menn munu segja, að hér verði gjaldeyrishöft eftir sem áður. Það er rétt, en þau verða í allt öðru formi. Sá reginmunur verður á þessu og því, sem nú er, að nú eru höftin og þrýstingurinn á gjaldeyrinn alltaf að aukast, vegna þess að misræmið í efnahagsmálunum fer nú vaxandi með hverjum mánuði, en með því að breyta um stefnu og taka upp þær aðferðir, sem ég hef nú bent á, þá minnkar þrýstingurinn og misræmið hverfur smátt og smátt og þá um leið sú óhóflega eftirspurn um erlendan gjaldeyri, sem ekki hefur verið hægt að fullnægja. Um leið og ástandið fer að nálgast efnahagslegt jafnvægi, þá fjara gjaldeyrishöftin út raunverulega. Ástandið sjálft losar sig þá við höftin, í stað þess að nú vefur það höftunum fastar og fastar að sér. Það mundi verða eins og snælda, sem rekur ofan af sér bandið.

Ég er í engum vafa um, að hér mundi mikið breytast til batnaðar frá því ófremdar- og ófrelsisástandi, sem nú er, ef þessi háttur væri upp tekinn og ástandið fengi smátt og smátt sjálft að leita jafnvægis á eðlilegan hátt. Ég geri ráð fyrir því, að komið verði með margs konar rök gegn þessum ráðstöfunum, en engin af þeim munu hagga þeirri staðreynd, að þetta er framkvæmanlegt og hyggilegt til úrlausnar því vandræðaástandi, sem nú er ríkjandi.

Ég ætla ekki að svo stöddu að fara nánar inn á þessa tillögu í einstökum atriðum, því að það yrði of langt mál.

Þá kem ég að síðasta atriðinu í sambandi við þingsályktunartillöguna. Það er ríkisrekstur atvinnufyrirtækja.

Vilji menn hlutdrægnislaust og með sanngirni líta á, hvernig verið hefur rekstur og afkoma þeirra atvinnufyrirtækja, sem rekin eru fyrir reikning ríkisins, getur engum dulizt, að full þörf er á að skoða ofan í kjölinn þá starfsemi hins opinbera. Reksturinn allur gengur meira og minna á tréfótum. Stjórn fyrirtækjanna hefur farið illa úr hendi. Aðhald og eftirlit af hálfu ríkisvaldsins hefur verið og er gersamlega ófullnægjandi. Árangurinn hefur svo orðið sá, að mestu af rekstrinum er haldið gangandi með milljónaframlögum af opinberu fé.

Ef Alþingi og ríkisstjórn telur sig hafa nokkra ábyrgð á opinberum rekstri gagnvart þjóðinni, þá er nú tími kominn til fyrir þessa aðila að endurskoða afstöðu sína til atvinnurekstrar ríkisins og gera þá skipun á þessum málum, sem hagsmunir þjóðarinnar krefjast.

Hvar sem menn standa í flokki, getur engum dulizt, að það er óráð og fásinna að láta ríkið reka með tapi og vansæmd þau atvinnufyrirtæki, sem félög eða einstaklingar geta rekið á eigin ábyrgð með hagnaði og sæmd. Þess vegna á ríkið nú að draga sig út úr þessum rekstri, sem ég hef áður nefnt, hætta beinum afskiptum, hætta að greiða stórfé sem tap vegna lélegrar ráðsmennsku og láta reksturinn í hendur annarra, sem bera ábyrgð á honum og kunna með hann að fara. Fyrirtæki eins og síldarverksmiðjur ríkisins ætti að endurskipuleggja frá grunni með það fyrir augum, að dregið sé úr íhlutun hins opinbera í rekstri þess og því komið á tryggan grundvöll fjárhagslega og rekstrarlega. Stjórnarfyrirkomulag verksmiðjanna er mjög óheppilegt. Nú virðist svo sem þeir menn, er skipa stjórnina og hafa það starf í hjáverkum, beri aðallega ábyrgð á daglegum framkvæmdum og rekstri verksmiðjanna. Slíkt getur ekki blessazt til lengdar með stærsta atvinnufyrirtækið í landinu. Ég býst við, að nauðsynlegt væri, að sjávarútvegurinn í heild á vegum félaga og einstaklinga hefði meiri beinna hagsmuna að gæta í rekstri verksmiðjanna en nú er, en ríkið minni hagsmuna.

Sú reynsla, sem fengizt hefur hér á landi af opinberum rekstri, bendir til þess, að hættulegt geti verið að láta ríkið taka í sínar hendur nýjan stórrekstur, eins og framleiðslu á sementi og áburði. Ef nauðsynlegt er af fjárhagsástæðum, að ríkið sé þátttakandi í slíkum fyrirtækjum, þá á það að taka einkaframtakið og samvinnuhreyfinguna í félag við sig, þannig að ríkið hefði aldrei meira en helmingsráð í fyrirtækjunum. Þetta mundi tryggja hagkvæmari og ábyrgari framkvæmd, en nú er í hreinum ríkisrekstri.

Ég hef nú leitazt við að sýna fram á, að rekstur ríkisins á atvinnufyrirtækjum er á þann veg, að það er ekki í þágu almennings, að slíkum rekstri sé haldið uppi á vegum hins opinbera.

Ég hef leitazt við að vekja athygli á, að íhlutun ríkisins á málefnum bátaútvegsins er gjaldþrotaleið, sem hverfa verður burt frá án mikillar tafar.

Ég hef leitazt við að sanna, að fjármálastefna hins opinbera hefur reist þjóðinni hurðarás um öxl og lagt á hana hlekki taprekstrar, hafta og skömmtunar, þess vegna sé lífsnauðsyn að breyta um stefnu og létta þessum drápsklyfjum af landsmönnum.

Ég hef einnig leitazt við að benda á, að það eru til leiðir út úr þessu vandræðaástandi, ef hugrekki er til að horfast gegn erfiðleikunum og beita þeim meðulum, sem sjúkdómurinn krefst.

Hver einasti þingmaður veit, að ástandið er að nálgast algert öngþveiti í opinberum fjármálum og ringulreið í efnahagslífinu. Þess vegna verður nú að leita inn á nýja leið og taka upp nýja stefnu. Við höfum undanfarið sáð af ofrausn og fyrirhyggjuleysi, en uppskorið misræmi og mótsagnir í efnahagslífinu. Við getum ekki til lengdar með ríkisíhlutunarstefnu hlekkjað og mergsogið einstaklingsframtakið, á sama tíma og við byggjum uppistöðurnar í þjóðfélagsrekstrinum á fjármunum og framtaki einstaklinganna.