25.04.1949
Sameinað þing: 68. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 605 í D-deild Alþingistíðinda. (4870)
121. mál, ríkishlutun um atvinnurekstur
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Þessari till. var útbýtt í Sþ. 4. febr., og hafa farið fram umr. um hana nokkrum sinnum síðan. Fyrst framsöguræða hv. flm. .................................. þ. e. sjálfur reksturinn. Þetta eru þá dylgjur þær, sem ég á að hafa haft um málið, eftir því sem hæstv. ráðh. segir. Nú vildi ég spyrja: Teldi hann það ekki brot á embættisskyldu minni sem form. hv. fjvn., þegar mér var sent slíkt ákæruskjal, að stinga því undir stól? Ég held, að hv. fjvn. sé sammála um, að það hefði verið freklegt brot af mér, þegar ég hefði tekið við gögnum slíkum, ef ég hefði stungið þeim undir stól. Og hún hefði talið það brot að láta ekki hæstv. ríkisstj. vita eða þá Alþ. síðar, ef hún vildi eigi sinna þeim. Ég get þó sagt hæstv. ráðh., að erindið vakti svo mikla undrun í n., að við urðum hissa, því að því fylgdi 10 mánaða gamalt afrit af bréfinu, og þá hafði ekkert verið gert í málinu af hendi hæstv. ráðh. En af því að ég vildi ekki gera það að opinberu máli, fékk ég alla meðnm. mína til að láta ekkert uppi um það og m. a. sjálfa stjórnarandstöðuna. Og mér þykir vænt um, að hún gerði það ekki að blaðamáli, en ég efast um, að flokkur hæstv. ráðh. hefði ekki gert það, ef hann hefði haft slík gögn í höndum. Ég er ekki viss um, að hann hefði gert það, sem stjórnarandstaðan gerði þó, og úr því að hæstv. ráðh. fann ástæðu til að hreyfa málinu, þá þótti mér sjálfsagt að láta Alþ. vita, hver gögn það voru, sem við fengum á sínum tíma til n. (StgrSt: Eru það fjárlög, sem við erum að ræða um?) Nei, það er vegna þess, að hæstv. ráðh. sagði, að ég hefði borið á sig sakir. Og e. t. v. er það ekki óviðkomandi sérleyfisbifreiðunum, hvort fyrirtæki er rekið á þann hátt, að blandað er saman fjárhag einstaklinga og ríkissjóðs eða hins opinbera. Það er e. t. v. ekki aukaatriði fyrir það mál. Hv. fjvn. fékk þessi gögn og sendi þau síðan til hæstv. ráðh. þ. 16. des. s. l., með stuttu bréfi, svo hljóðandi — með leyfi hæstv. forseta:
„Fjárveitinganefnd sendir yður hér með, herra samgöngumálaráðherra, afrit af gögnum, sem send hafa verið til nefndarinnar í sambandi við rekstur áætlunarbifreiða, og biður yður góðfúslega að senda sér umsögn yðar um málið með öllum nauðsynlegum upplýsingum. Einkum og sér í lagi óskar nefndin að fá upplýst, hvort það sé raunverulegt, að vinna sú, sem hér er talið, að hafi verið framkvæmd, hafi verið færð sameiginlega á vinnuskýrslu hjá póststjórninni, og hve háa upphæð sé hér um að ræða í sambandi við þessi viðskipti, ef þau hafa átt sér stað. Svar óskast hið allra fyrsta.“
Hæstv. ráðh. veit, að hann svaraði þessu aldrei bréflega, en lét póststjórnina svara með langri skýrslu og með vottorðum og undirskriftum þeirra, sem sakaðir voru. Ég veit ekki, hvort n. hefði svarað, ef ábyrgðin hefði ekki verið lögð á herðar hv. fjvn., hvort málið ætti að ganga áfram. Ef hæstv. ráðh. hefði verið búinn að láta framkvæma sérstaka rannsókn, þá hefði n. ekki haft ástæðu til að gera þetta. Hann sagði jú: „Ég læt taka fasta mennina, sem ásaka.“ Það er sannarlega of þung ásökun borin á embættismenn ríkisins, til þess að hæstv. ráðh. hafi rétt til að láta málið falla niður. Ég vil ekki vera dómari í þessu máli. Skýrslur sanna ekkert. Það er ráðuneytisins að gera út um þetta, en ekki fjvn. Og svara ég þessu ekki frekar, nema tilefni gefist til. En ég vænti þess, að hæstv. ráðh. sýni þann drengskap að viðurkenna, að ásakanir hans á mig hafa ekki við nein rök að styðjast.
Þá mun ég ræða ýmis önnur atriði, er snerta þetta mál. Hann minntist á, að það væri ekki fyrir stefnu sósíalismans, að ýmis þeirra fyrirtækja væru rekin á ábyrgð ríkisins, enda hefðu Alþfl. og Sósfl. ekki nægilegt þingfylgi til að koma á slíkum rekstri. Og svo var að skilja á hæstv. ráðh., að eitthvað yrði nú betur hert á hnútunum og m. a. komið á stofn landsverzlun, ef þeir hefðu það. (Samgmrh.: Já, það er alveg víst.) Er þá verzlunarástandið í landinu eins og hæstv. ráðh. vill hafa það? Vill hann þá segja, að það sé eins og Sjálfstfl. vill hafa það? Eins greindur maður og hæstv. ráðh. er veit, að löggjöf síðustu ára er samkomulagslöggjöf til að ná samkomulagi um stjórn landsins. Hann og flokkur hans hafa eigi komið öllu sínu fram. En þeir hafa reynt að ota sínum tota, m. a. með aðstoð sósíalista og framsóknarmanna. Og m. a. hefur verið farið inn á ríkisrekstur. Vinstri öfl þingsins hafa hópað sig saman og hugsað um eigin flokkshagsmuni. Vil ég nú taka nokkur dæmi um það.
Síldarverksmiðjur ríkisins eru eitt stærsta fyrirtækið. Hæstv. ráðh. sagði, að það hefði verið gert af illri nauðsyn. Er það rétt? (Samgmrh.: Nei.) Nú, það er gott, að hæstv. ráðh. slær af. Það var haldið, að hér væri mögulegt að raka saman fé fyrir ríkissjóð. Sjálfsagt hefur legið að baki þess að fá sjómönnum hærra verð. En svo hefur reynzt, að ekki yfir 20% af sjómönnum hafa viljað trúa síldarverksmiðjum ríkisins fyrir veiði sinni. Og þessar prósentur fara lækkandi. Þó er það svo, að nú er helmingur þeirra á höndum einstaklinga, og stjórn síldarverksmiðjanna hefur lýst því yfir víð hv. fjvn., að hún sjái sér ekki fært að vinna upp tapið með lægra síldarverði, því að þá missi hún alla veiðina til einstaklinga. Þetta er skýr sönnun fyrir því, að þeir treysti sér ekki til að reka verksmiðjurnar með sama hagnaði og einstaklingar. Hvar er hægt að fá skýrari sönnun fyrir því, að ríkisrekstur eigi ekki að eiga sér stað? Það var jú Áka Jakobssyni að kenna, sögðu þeir, fyrrv. atvmrh. Hann lét fara út í að byggja þarna og þarna og gerði ýmis glappaskot, annars hefði verið hægt að borga hærra verð. Nú er mér kunnugt um, að sömu menn hafa verið að byggja fyrir einstaklinga og byggðu fyrir síldarverksmiðjur ríkisins, t. d. Þórður Runólfsson. (FJ: Hvernig tókst það?) Að vísu með áfalli, en ríkið borgaði það bara ekki. Þessi maður var þó valinn til þessa verks, og verksmiðjurnar urðu dýrari. Var ekki toppstöðin reist með áfalli? Þó stóð að byggingu hennar maður eins og Steingrímur Jónsson. Ég er ekki að verja gerðir fyrrv. atvmrh. En þessi rök verða eigi tekin gild, þegar sagt er, að ríkisrekstur sé hagkvæmari, en einstaklingsrekstur. Þá vil ég benda á annað atriði. Hvaða aðstaða er sköpuð þessum sömu einstaklingum? Hafa þeir sömu skattfrelsisfríðindi? Síldarverksmiðjur ríkisins hafa ekki borgað einn einasta eyri. Afskriftin hefur ekki verið eins hröð og slitin á vélunum. Þegar illa gengur, er komið til Alþ. og beðið um fé og aðstoð. En er um einstakling er að ræða, þá er reiknaður allur skattur, og hann verður sjálfur að bjarga sér, þegar illa gengur. Hann verður að berjast við að greiða niður og leggja í varasjóð. Og bankarnir koma og heimta tryggingar. Og þetta þykir ekki aðstöðumunur.
Þá er rétt að minnast á bæjarútgerð Hafnarfjarðar, sem er talið ágætt dæmi um, að ríkið eigi að reka útgerð. Jafnvel þótt hæstv. ráðh. sé hraustur maður, held ég, að hann ætti að veigra sér við að fara út í það mál. Veit hann ekki, að bæjarútgerðin greiddi ekkert, því að hún átti ekkert til? En allir aðrir urðu að greiða, fyrirtækin Venus, Júpíter o. fl., og einstaklingar urðu að standa undir bæjargjöldunum í Hafnarfirði. (Samgmrh.: Þetta er rangt.) Þetta er rétt. En Hafnarfjarðarkaupstaður átti að sterka þegna, sem héldu út að gera út sín skip. Ég þekki þá mjög vel. Og hvaða skatta hefur útgerðin greitt, þegar hún græddi mikla peninga? Enga, því að hún var skattfrjáls. Hæstv. ráðh. segir e. t. v., að þetta sé rangt. Ætli skip þeirra fyrirtækja, sem ég nefndi, hafi ekki borgað um 100 þús. kr. á ári, meðan bæjarútgerðin greiddi engan eyri? Og svo er sagt, að það sé enginn aðstöðumunur. Ég skal viðurkenna, að þeir lögðu til hliðar fyrir bæinn. En aðrir gerðu það líka — og borguðu auk þess 500 þús. kr. í ríkissjóð. Hæstv. ráðh. benti á, að önnur bæjar- og sveitarfélög hefðu farið að þeirra dæmi og fengið skip. En annað kom til greina, en togaraútgerðin ein. Það er sú alda að stöðva flutningana utan af landi til Reykjavíkur. Ef allir 30 togararnir hefðu komið til Reykjavíkur, þá hefðu hópar af fólki flutzt hingað. Eigi er liðið heilt ár, þegar auglýstir eru tveir togarar í Vestmannaeyjum til uppboðs til skuldalúkningar. Hvað bjargaði þeim? Einstaklingar björguðu þeim frá uppboði. Ég veit ekki betur. Og þó eru hér skattfrjálsir menn. Mér dettur ekki í hug að halda, að bæði Hafnarfjörður og Vestmannaeyjar hafi ekki gott af útgerðinni, en það er ekki hollt, nema bærinn græði. Bærinn hefur ekki aðrar tekjur, en gróðatekjurnar. Sama máli gegnir um ríkið. Og þegar tap verður, þá er tekið fé af einstaklingunum, en ekki hinu opinbera. Hún yrði skrýtin afgreiðsla fjárl., ef allur einstaklingsrekstur yrði kominn á ríkið með sama árangri og nú var lýst. Og væri verzlunin komin í hendur ríkisins með sama árangri, nema byrðar væru nú lagðar á herðar þjóðarinnar allrar, þá yrði skrýtin afgreiðsla fjárl.
Nú, þá er það Landssmiðjan. Hún hefur verið rekin síðan 1935. Þá voru hér einnig Héðinn og Hamar. Hvernig er útkoman svo? Héðinn og Hamar þenja sig út og borga millj. kr. til bæjarfélagsins og í svo ríkum mæli, að Héðinn var hæsti skattgreiðandi á landinu á s. l. ári. En á sama tíma er Landssmiðjan rekin með stórkostlegu tapi. Hún hefur byggt að vísu, en ekki getað greitt niður, svo að nokkru nemi, heldur stendur í skuldum, svo að ríkissjóður hefur alltaf orðið að hlaupa undir bagga. Það var einu sinni lagt á hana útsvar. En hve mikið hefur komið inn af því? Ekkert.
Þá er það Fiskiðjuver ríkisins. Hvers vegna er það sett upp í Reykjavík, og af hverju var það yfirleitt reist? Það var alveg sama bjartsýni ríkjandi þar og með rekstur Hafnarfjarðarferðanna. Menn sögðu, að allir útgerðarmenn o. fl. hefðu sótzt eftir að reisa slíkt hús. Og menn tóku fé til þessa, sem þeir höfðu vafasama heimild til. En þegar sá sjóður er þurr orðinn, er krafizt fjár úr stofnlánadeildinni. Síðan er farið í bankana, og nú er það svo skuldum hlaðið, að það getur ekki staðið sjálft undir rekstrinum. Og engum einstaklingi hefði dottið í hug að byggja á þessum grundvelli. Nú liggur ekki annað fyrir þessu fyrirtæki, en að selja það eða borga til þess stórar fjárfúlgur úr ríkissjóði, og verið getur, að þar komi.
Síðan vil ég spyrja hæstv. ráðh.: Hvaða fyrirtæki hafa grætt fé? Jú, það er áfengisverzlunin og tóbakseinkasalan. Hvaða samkeppendur eru þar? Engir. Hvaða takmörkun á verðlagi? Engin. Það væri lélegur braskari, sem ekki gæti þénað í sömu aðstöðu. Nú, það er áburðarsalan og grænmetisverzlunin. Og ekki er það landssíminn. Ef gert er yfirlit, þá hefur hann þénað annað árið, en tapað hitt. Og það er ekki póstsjóður, sem hann hefur byggt fyrir. Hverjir fleiri hafa grætt? Þyrill, jú. En það var ill nauðsyn, sagði hæstv. ráðh. Ég vil benda á, að árið 1943 var lagt fram frv. á Alþ., þar sem stj. er gefin heimild til að taka að sér alla olíuflutninga kringum landið. Ég man ekki betur, en hæstv. ráðh. væri með því. En vegna harðskeyttrar baráttu var sett inn í l., að heimildin væri takmörkuð við 1 ár.
Aldan er öll á þá leið, að allt er tekið af einstaklingunum og flutt yfir á ríkið. Hæstv. ráðh. mun sjá, að það eru allt önnur kjör fyrir þá, sem eru í samlagsfélögum, eða bæjarfélögin. Alþ. er að þvinga allt frá einstaklingunum yfir á hið opinbera. Og svo segir hæstv. ráðh., að þetta sé gert af illri nauðsyn. Það er ekki verið að snúa við sannleikanum í þessum málum! Ég veit ekki betur en ráðh. vilji láta sín haftasjónarmið ná svo langt, að fólki sé bannað að fara úr landi, þó að upplýst sé, að slíkt er brot á mannréttindaskrá sameinuðu þjóðanna. Í viðskiptamálum er stefna þessa ráðh.sú að fjölga stöðugt nefndum og ráðum til að torvelda allt athafnalíf. Og þó að menn vilji gera eitthvað eða sjái einhverja möguleika, þá verður að sækja um leyfi og fá uppáskriftir, en það tekur í flestum tilfellum svo langan tíma, að öll tækifæri eru glötuð, þegar leyfin eru loksins fengin. Þessi haftapólitík er líka alveg að drepa okkar þjóðfélag, en það virðist þessi hæstv. ráðh. ekki sjá, því að í stað þess að greiða eitthvað úr allri þessari flækju, þá verður hann æfur af reiði, þegar Alþingi neitar að veita ótakmarkað fé til nefndanna og ráðanna. Og ég átti ekki von á öðru frekar en að hann segði þá þegar af sér, þó að úr því yrði nú ekki. Fyrir stríðið var þetta á sama veg, — eða hvernig var búið að Óskari Halldórssyni, þegar hann vildi stofna til stórrekstrar í síldarvinnslu? Jú, þá mátti auðvitað ekki brjóta prinsipið, að ríkið skyldi annast þennan rekstur, og sama var sagt við beiðni um verksmiðju á Patreksfirði, þó að leyfi fyrir vélum til hennar fengist með þeim fyrirvara, að um karfaverksmiðju væri að ræða, en síðan hefur þessi verksmiðja malað gull í höndum einstaklinga og ríkið haft af henni meiri tekjur, en af sínum stóru verksmiðjum. Það mætti nefna mörg dæmi um það, hvernig ríkið hefur komið í veg fyrir, að einstaklingar réðust í stórrekstur, og gert hinum, sem staðið hafa að góðum rekstri, erfitt fyrir. Og við nánari athugun á því, hvernig búið hefur verið að einstaklingunum, undrar engan, sem málunum er kunnugur, þó að ríkið yrði að taka við ýmsum rekstri, sem það undir öðrum kringumstæðum hefði getað losnað við, og ríkissjóður þá um leið getað losnað við tapið, sem af þeim rekstri hefur leitt.
Ég vil þá minnast nokkuð á þær leiðir, sem ráðh. minntist á til úrbótar. Bæði ráðh. og 4. þm. Reykv. lýstu yfir, að gengisfall mundu þeir eða þeirra flokkur ekki geta fallizt á, nema öll önnur sund væru lokuð. Ég man ekki eftir, að ráðh. hafi fyrr lýst því yfir, að hann gæti fallizt á gengisfall, ekki einu sinni þó að öll önnur sund væru lokuð. Út af þessum ummælum ráðh. vildi ég leyfa mér að spyrja hann, hvaða sund hann sér önnur opin til að komast út úr því öngþveiti, sem nú ríkir. Ég veit ekki betur en Alþ. með sínum 52 þm. sé búið að sitja á rökstólum í allan vetur án þess að finna nokkrar útgöngudyr. — Hv. 4. þm. Reykv. lýsti því yfir áðan, að stefna Alþfl. hefði ráðið í dýrtíðarmálunum, enda hefur það líka komið fram í málgagni flokksins. En hvað kostar þessi stefna í dýrtíðarmálunum þjóðina? Í fjárlagafrv., eins og það var lagt fyrir af fjmrh., var gert ráð fyrir 33 millj. kr. til dýrtíðarráðstafana, en með þessari stefnu, sem Alþfl. telur sína stefnu og hæstv. viðskmrh. og 4. þm. Reykv. mæla fyrir, mun ekki veita af 76 millj. Telur hæstv. ráðh. í alvöru, að þetta sé einhver leið út úr ógöngunum? Ég er sannfærður um, að ráðh. veit, að þetta er engin leið, og annaðhvort hefur hann ekki kynnt sér málin eða hann segir vísvitandi rangt frá. Það hefur verið reiknað út, að gengisfall muni að líkindum vera léttasta leiðin, enda sennilega eina færa leiðin eins og nú er komið. Þó að hún sé alls ekkert æskileg og betra, að það ástand, sem gerir hana nauðsynlega, hefði ekki skapazt, þá verður að sætta sig við orðinn hlut og láta vítin sér að varnaði verða. Og það mætti segja mér, að þegar Alþfl. hefur hug til, þá fallist hann á að fara þessa leið, enda hefur hann með stefnu sinni unnið mest til þess, að gengisfall er nauðsynlegt.
Ég ræddi þessi mál 1946 og benti þá á hættuna, ef þessari stefnu, sem ráðið hefur, væri fylgt, og sömuleiðis að afleiðingarnar mundi leiða til þess, að ekki yrði hægt að borga víxilinn nema með gengisfalli, enda kemur stöðugt betur í ljós, að þessi skoðun mín var rétt, og á eftir að sýna sig enn betur, ef ekki verður breytt um stefnu. Sú kauphækkunaralda, sem reið yfir 1946, hlaut að hafa alvarlegar afleiðingar fyrir íslenzku krónuna, því að eins og ég sagði þá og segi enn, getur engin þjóð greitt hásetum á skipi 40–50 þús. kr. á ári með 100 daga fríi nema hluta gengi sitt í marga parta. Og þessi kauphækkun var því eitt skrefið til gengisfalls, sem ráðh. vill ekki viðurkenna fyrr en öll sund eru lokuð, eins og hann sagði sjálfur.
Ég skal svo ekki ræða þetta frekar nú, þó að margt mætti segja um þetta mál og mikil nauðsyn sé á að leysa fjötrana af atvinnulífinu. Ég veit, að margir hafa trú á opinberum rekstri og berjast fyrir þeirri trú sinni, en ég er dálítið undrandi yfir jafngreindum mönnum eins og hæstv. ráðh. og 4. þm. Reykv., að þeir skuli vera að berja höfðinu við steininn, þegar þeir sjá afleiðingarnar og hvert stefnir. Ég teldi þá meiri menn, ef þeir viðurkenndu villu sína og legðu spilin á borðið og stokkuðu upp, og það geta þeir verið vissir um, að með auknu frjálsræði fyrir einstaklingana verða fleiri útgöngudyr út úr öngþveitinu.