25.04.1949
Sameinað þing: 68. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 630 í D-deild Alþingistíðinda. (4873)

121. mál, ríkishlutun um atvinnurekstur

Finnur Jónsson:

Herra forseti. Það er langt síðan ég kvaddi mér hljóðs, og umr. eru orðnar langar og orðið framorðið. Þessi till., sem hér um ræðir, er nokkuð fáránleg, því að þar er ruglað ýmsu saman og allt kallað ríkisrekstur. Afnema skal íhlutun ríkisins í atvinnurekstrinum, höft o. fl. og breyta fjármálastefnunni. En sannleikurinn er sá, að enginn þm. botnar í, hvað hv. 1. þm. Reykv. meinar, og vildi ég helzt, að hæstv. forseti vísaði málinu frá sem óhæfu þingmáli, því að ruglað er saman hinum óskyldustu málum. Það hefur vakið athygli, að tveir hv. samþm. og samflokksmenn hv. flm. hafa talið ástæðu til að umskrifa till. og flytja á þskj. 525, þeir hv. 3. þm. Reykv. og hv. 5. þm. Reykv. Sú till. er um sama efni, en sett þannig upp, að hægt er að sjá, hvað þeir meina með till. Ég segi ekki, að hún sé aðgengilegri, en hún er aðgengilegri sem umræðugrundvöllur, en þó að ýmsu leyti enn fjarstæðukenndari. Það þarf ófeilni til að kalla þau höft, sem eru á innflutningnum o. fl., ríkisrekstur. Það þarf einnig mikið af sama hugarfari til að kalla skömmtun ríkisrekstur. En þessu er öllu grautað saman. Ég hef heyrt merkan þm. segja í einkasamtali, að málið sé raunar óþinghæft, og held, að sá maður hafi rétt fyrir sér, því að hvort sem um frv. eða þáltill. er að ræða, þarf það helzt að vera um ákveðið efni, en hér er um mörg óskyld efni að ræða. Ég heyrði, að hv. 1. þm. Reykv. kvartaði yfir því, að umr. hafi farið á víð og dreif, en slíkt er honum sjálfum að kenna, því að grg. gefur tilefni til, að rætt sé um öll vandamál þjóðarinnar undir þessum eina lið, og ber honum því að saka sjálfan sig fyrir till., grg. og ræðu sína. Ég veit, að hv. þm. hefur áhuga á að draga úr fjármálaöngþveiti því, sem þjóðin er í, en hann hefur ekki farið út í það í till. sinni, hvernig eigi að fara að því, en í grein í Vísi 5. marz leggur hann til, að gengi krónunnar verði lækkað um 25% og útflytjendur fái frjálsan ráðstöfunarrétt á 25% af gjaldeyrinum. Ég gæti fallizt á að breyta gengi krónunnar undir sérstökum aðstæðum, en gera þyrfti um leið ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir, að slíkt kæmi hart niður á þeim, sem minnst mega sin, en að halda því fram, að 25% af gjaldeyrinum skuli fara á svartan markað, það er ósmekklegt hjá þeim, sem þykjast vilja hreinsa til í fjármálum þjóðarinnar. Ég hefði að mörgu leyti haft tilhneigingu til að taka hv. 1. þm. Reykv. alvarlega í þessu máli, að hann vildi hreinsa til í fjármálalífi þjóðarinnar, ef þetta hefði ekki þurft að fylgja með og ekki hefði verið gert ráð fyrir, að kaupgjaldsbreytingar yrðu bannaðar.

Mér hefur virzt, eins og ég sagði áðan, hv. þm. í þessari till. blanda saman mjög mörgum óskyldum atriðum, og sama má segja, þegar hann talaði um ríkisrekstur, þar sem hann blandaði saman mörgum óskyldum fyrirtækjum og lagði alveg sama mælikvarða á þau öll. Á það hefur verið bent af hv. 4. þm. Reykv., að mikill hluti þessa ríkisrekstrar hér á landi hefur verið stofnaður vegna þess, að þurft hefur að leysa vandamál, sem ekki var á valdi neinna einstakra manna að leysa, og ríkisvaldið hefur beinlínis verið hvatt til að leysa úr ýmsum vandamálum, sem annars væru óleyst enn í dag. Í þessu sambandi má nefna Síldarverksmiðjur ríkisins, sem hv. 1. þm. Reykv. minntist á. Það er alkunnugt, að fyrstu drögin að stofnun þeirra voru lögð með þáltill., þar sem Magnús heitinn Kristjánsson, fyrrv. ráðh., lagði til, að innlendum verkfræðingum væri falið að gera rekstraráætlun og stofnkostnaðaráætlun fyrir síldarverksmiðjurnar. Annar fyrrv. ráðh., Jón Þorláksson, tók að sér að semja þessa rekstraráætlun, og á grundvelli þeirrar áætlunar var það svo, að 2 þm., þáv. þm. Ak., Erlingur Friðjónsson, og þm. S-M., Ingvar Pálmason, fluttu fyrsta lagafrv. um stofnun Síldarverksmiðja ríkisins. Þá datt ekki neinum Íslending í hug, að einstaklingur legði út í að byggja nýtízku síldarverksmiðjur. Þessar verksmiðjur voru síðan reistar 1930, og ég man eftir því, að fyrrverandi íhaldsflokkur barðist mjög heiftarlega á móti þessari verksmiðjubyggingu. Það kom svo í ljós, sem vænta mátti í sambandi við þessa fyrstu verksmiðjubyggingu, sem framkvæmd var af Íslendingum, á henni var vitanlega ýmis missmíði, en þó minni en búast hefði mátt við, því að þetta var fyrsta tilraunin, — en það kom brátt í ljós, að kröfur sjómanna og útgerðarmanna um að reisa fleiri síldarverksmiðjur voru ómótstæðilegar. 1933 bar ég svo fram hér á Alþ. þáltill., sem varð til þess, að ríkisverksmiðjan frá 1935 var reist á Siglufirði. Var sjútvn. Nd. þá að öllu leyti sammála um byggingu þeirrar verksmiðju. Síðan hafa verið keyptar verksmiðjur fyrir ríkið á Raufarhöfn og á Siglufirði, og síðan hefur verið aukið við ríkisverksmiðjurnar, og í raun og veru hafa alltaf allir stjórnmálaflokkar í landinu verið sammála um þá aukningu ríkisverksmiðjanna, sem gerð hefur verið. Það var meira að segja stundum metingur um það milli flokkanna, hver ætti heiðurinn af því að hafa stungið upp á þessari og þessari verksmiðju. — Nú er það svo, að í byrjun stríðsins voru Síldarverksmiðjur ríkisins ágætt fyrirtæki, sem voru fyllilega samkeppnisfærar við verksmiðjur einstakra manna. Þær voru búnar að borga sig og áttu nokkurt fé þar að auki. Þá er það, að notuð er heimild, sem flutt hafði verið hér inn á Alþ. af síldarverksmiðjustjórn ríkisins, um byggingu nýrra verksmiðja, en sú heimild var notuð á allt annan hátt, en stjórn verksmiðjanna lagði til. Bygging verksmiðjanna var tekin úr höndum síldarverksmiðjustjórnarinnar og látin í hendur sérstakrar stjórnar. Ég skal ekki rekja þá sögu hér, en þetta varð til þess, að síldarverksmiðjurnar, sem áður voru eitthvert bezt rekna fyrirtækið í landinu og bezt stjórnað, eru nú ekki samkeppnisfærar við síldarverksmiðjur einstakra manna vegna þeirrar óstjórnar, sem var á byggingu nýju síldarverksmiðjanna. Nú kann ég ekki þau skil á ríkisrekstri og ekki ríkisrekstri, þegar flm. þessarar till. segir, að það hafi verið ríkisrekstur að taka byggingu síldarverksmiðjanna úr höndum verksmiðjustjórnarinnar, en hins vegar ekki ríkisrekstur að láta verksmiðjustjórnina byggja ríkisverksmiðjurnar. Þetta er ekkert annað en framkvæmdaratriði og í rauninni hvorugt ríkisrekstur. Það mun vera svo, að í öðru tilfellinu er notað flokkspólitískt vald, sem ég fordæmi, að hefur verið gert, til þess að færa framkvæmd þessa máls úr þeim höndum, sem höfðu kunnáttu og alla aðstöðu til þess að geta gert þetta vel, í hendur n., sem hafði hvorki möguleika né vilja til þess að gera það þannig að nokkurt vit væri í. Nú sýnir það nokkurn ókunnugleika eða óvandvirkni hjá hv. tillögumanni, þar sem hann kemst þannig að orði í blaði sínu, Vísi, sem ég vona, að rétt sé prentað:

„Stjórnarfyrirkomulag verksmiðjanna er mjög óheppilegt. Svo virðist sem þeir menn, er skipa stjórnina og hafa það starf í hjáverkum, beri aðallega ábyrgðina á daglegum framkvæmdum og rekstri verksmiðjanna.“

Þetta er vitanlega alveg rangt. Samkvæmt lögum verksmiðjanna er ráðinn framkvæmdastjóri til þess að hafa með höndum daglegar framkvæmdir. Eins og stendur eru tveir framkvæmdastjórar við Síldarverksmiðjur ríkisins á Siglufirði og þar að auki framkvæmdastjóri við verksmiðjuna á Skagaströnd og annar framkvæmdastjóri við verksmiðjuna á Raufarhöfn. Mér er vel kunnugt um það, að eins og nú standa sakir, eins og raunar oft áður, eru mjög vel færir menn í framkvæmdastjórastöðunum, bæði hinn tæknilegi framkvæmdastjóri, sem að vísu er lítið reyndur, og eins sá framkvæmdastjóri, sem nú er aðalframkvæmdastjórinn á Siglufirði. Þann síðarnefnda þekki ég mjög vel persónulega og veit, að hann lætur sér annt um hag verksmiðjanna. Hinn tæknilega framkvæmdastjóra þekki ég ekki persónulega, en hef fengið um hann mjög góðar upplýsingar. Tillögumaður sagði, að stjórn Síldarverksmiðja ríkisins hefði allajafna verið í höndum pólitískra spákaupmanna. Ég mótmæli þessum staðhæfingum sem röngum. (BÓ: Ekki komst ég svona að orði.) Ég skrifaði þetta niður eftir hv. þm. og hygg, að það sé rétt, að hann hafi sagt þetta í fyrri hluta ræðu sinnar. Ég tel, að þessi ummæli séu alröng, því að yfirleitt hafa frá fyrstu tíð valizt í stjórn síldarverksmiðja ríkisins menn, sem hafa haft mikinn áhuga fyrir sínu starfi og sumir hafa setið þar í mörg ár og eru gagnkunnugir öllu, sem lýtur að síldarútvegi. Ég neita því ekki, að fyrir hefur komið, að menn hafa verið kosnir í stjórn af pólitískum ástæðum og án þess að hafa verulega þekkingu. En yfirleitt hefur stjórnin verið valin þannig, að reksturinn gæti farið vel úr hendi, og vil ég, með þeim kunnugleika, sem ég hef á þessum málum, mótmæla, þegar fram koma á Alþingi rakalausir hleypidómar um þá menn, sem stjórna verksmiðjunum.

Nú er það vitanlega svo, að þótt ég hafi dregið hér fram þennan stærsta atvinnurekstur, sem hefur orðið til þess að bjarga gjaldeyrismálum okkar um mörg ár, þá er langt frá því, að ég sé samþykkur öllum ríkisrekstri, sem fram fer hér í landinu. Hitt vildi ég undirstrika, að ríkisreksturinn á síldarverksmiðjunum hefur verið þannig fram á síðustu ár, að hann hefur verið þjóðinni mikið bjargræði. Það er kunnugt, að saltfiskmarkaðurinn brást á sínum tíma, og hefðu ríkisverksmiðjurnar þá ekki verið til, hefði íslenzka þjóðin bókstaflega orðið gjaldþrota. Það gildir hið sama um ríkisrekstur og rekstur einstakra manna að því leyti til, að hann getur verið bæði vel og illa rekinn. Og ég segi fyrir mitt leyti, að ég vil engan þátt í því taka að verja ríkisrekstur, sem stofnað er til án þess, að fyrir því sé rík nauðsyn almennings, eða með óverjandi undirbúningsleysi eða gáleysi. Ég verð að segja það t. d. um sérleyfisferðirnar, að eftir þeim upplýsingum, sem fyrir liggja, er það bein nauðsyn almennings í landinu, að ríkið taki þær, þar sem einstaklingar eru ekki fáanlegir til þess. Svo get ég líka nefnt dæmi, þar sem ég sé ekki, að nein nauðsyn hafi verið að stofna til ríkisrekstrar, svo sem Trésmiðju ríkisins, sem að mínu viti hefur verið stofnað til að óþörfu, því að landssmiðjan hefur mörgum vönum trésmiðum á að skipa, sem sumir hafa ekkert að gera og gætu þess vegna smíðað allt, sem smíða þyrfti fyrir ríkið, án þess að stofna þyrfti til nýrrar smiðju. Hún hefur líka það húsnæði, sem þyrfti, og nokkurn veginn nauðsynlegan vélakost. Sama má segja um kartöflugeymsluna við Elliðaár; ég get ekki varið slíkan ríkisrekstur. Það á að gera sömu kröfur til ríkisrekstrar og einstaklingsrekstrar, að fyrirtækin séu fyrst og fremst vel rekin og að til ríkisrekstrar sé stofnað af fullri nauðsyn. Ég vildi líka taka fram, að ég álít, að hið sama gildi um Ferðaskrifstofuna og um sérleyfisferðirnar, að þar er um almenningsheill og almenningsnauðsyn að ræða. Það eru nú margar þjóðir í Evrópu, sem vonast til þess að nota ferðamannastrauminn til þess að geta lagfært stórlega gjaldeyrisástand sitt. Því miður höfum við ekki haft fé til þess að leggja fram í þessu skyni, en enginn vafi er á því, að fyrir okkur getur það í framtíðinni orðið mjög mikið gjaldeyrismál að beina ferðamannastraumnum hingað til lands.

Ég held það hafi svo ekki verið meira, sem ég vildi taka fram í sambandi við þetta mál.