09.03.1949
Sameinað þing: 47. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 639 í D-deild Alþingistíðinda. (4889)

130. mál, radioviti á Arnarnesi

Flm. (Sigurður Bjarnason):

Herra forseti. Ég flyt hér ásamt hv. þm. Ísaf. og hv. 3. landsk. till. til þál. um radíovita á Arnarnesi við Skutulsfjörð, og liggja þau rök til þessarar till„ að Ísafjörður við Skutulsfjörð er eins og kunnugt er, einn af stærstu útgerðar- og verzlunarstöðum landsins, en þannig í sveit komið, að því nær allar samgöngur við hann eru annaðhvort á sjó eða í lofti. Þess vegna er mjög mikilvægt, að sem bezt sé séð fyrir öryggi skipa og flugvéla til og frá þessum stað. Hins vegar er það svo, að viti sá, sem byggður var 1915 og síðan endurbyggður 1921, er orðinn mjög lélegur, þar sem ljósmagn hans er allt of lítið, enda hafa siglingar og ferðir flugfélaga aukizt mjög frá því að hann var byggður. Hann er þess vegna engan veginn fullnægjandi innsiglingarviti fyrir þennan kaupstað eða fyrir Ísafjarðardjúp yfirleitt. Það eru mörg dæmi þess, að ljós þessa vita hafi ekki sézt, en hins vegar hafi sézt steinolíuljós á bæjum rétt við hann og enn fremur ljós í Hnífsdal á undan ljósi vitans, og má af því sjá, hve ófullnægjandi þessi ljósviti er. Við höfum þess vegna lagt til, að ljósviti þessi verði aukinn og endurbyggður og þar með bætt úr brýnustu þörfum fyrir alla siglingu um ísafjarðardjúp. En þótt hann verði aukinn og endurbyggður, dugir það ekki til. Í dimmu og þoku getur hann ekki orðið að gagni, og þess vegna leggjum við til, að reistur verði á þessum stað eða öðrum radioviti, sem yrði að liði bæði skipum og flugvélum á þessum slóðum. Við leggjum til, að hlutazt verði til um það að reisa hið allra fyrsta radiovita á Arnarnesi, og tel ég, að það væri mikið öryggisatriði, ef snúið væri sér að því hið allra bráðasta að koma þar upp slíkum vita. Einum slíkum vita hefur verið komið upp í nágrenni Patreksfjarðar, og er talið af siglingafróðum mönnum að, að honum sé geysimikið gagn og öryggi, og til þess ber einnig brýna nauðsyn, að hinar miklu skipasamgöngur frá og til Patreksfjarðar njóti hins mikla öryggis, sem slíkt hefur í för með sér. Þess vegna höfum við flutt þessa till.

Ég sé svo ekki ástæðu til að fara um þetta fleiri orðum, en óska, að málinu verði vísað til fjvn.