05.05.1949
Sameinað þing: 70. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 678 í D-deild Alþingistíðinda. (4951)
182. mál, afnám ríkisfyrirtækja o.fl.
Flm. (Sigurður Kristjánsson):
Herra forseti. Ég sé, að tímanum er úthlutað naumt, en skal reyna að ljúka máli mínu á hinum stutta tíma, er mér er ætlaður, þó að óvist sé, að ég geti það.
Tveir hv. þm. hafa nú talað síðan ég mælti fyrir till. okkar 3. þm. Reykv., þeir hv. þm. V-Húnv. (SkG) og hv. þm. Ísaf. (FJ). Það er sjálfsagt ekki ætlazt til þess, að ég taki mál þeirra til meðferðar lið fyrir lið, sbr. þskj. 525, en ég skal byrja á aðfinnslunum að formi þessarar till.
Hv. þm. V-Húnv. gat þess, að sjálfsagt hefði verið fyrir okkur flm. að flytja hvern lið út af fyrir sig, og færði sem ástæðu, að þótt hann eða aðrir kynnu að vera með einum lið, væru þeir á móti hinum og því gæti hann ekki annað, en fellt alla till. í heild. En þessum hv. þm. mun vera kunnugt um, að frv. eru í köflum og mörgum gr. um sérgreinda efnishluti og sum jafnvel í tugum eða hundruðum gr. Nú er það svo um mig og e. t. v. fleiri, að ég kann að vera algerlega mótfallinn einstökum atriðum í einhverjum l., og þá er aðferðin sú að koma fram með brtt. við frv., og síðan verður hver þm. að gera það upp við sjálfan sig, hvort hann metur meira efnið, er hann er samþykkur, eða hitt, sem hann telur vera til óþurftar, og atkvæðamagn ræður síðan úrslitum málsins. Svipað er á komið hér. Till. er í 15 liðum. Er opin leið að koma með till. um viðauka, og hlýtur þetta að ganga sömu leið og lagafrv. Menn koma fram með brtt. sínar, að sumu leyti til að bæta um form, öðru til að bæta inn í og enn öðru til að fella úr, og þegar atkv. hafa gengið um þær, má gera ráð fyrir, að það standi eftir, sem réttur þingmeirihluti er fylgjandi. En ég held, að það sé ekki nógu mikil athugun á bak við aðfinnslurnar, því að við flm. höfðum það í huga, að margt af þessum 15 liðum er sett með l., og til fimm liða af ellefu þarf lagabreyt., og þetta útheimtir vinnu vegna skipulagsbreytinga. Síðan er og sjálfsagt, að hæstv. ríkisstj. fjalli um undirbúning þessa, og við meinum að láta koma fram þingvilja, hvort þessu skuli breytt eða ekki. Þyrfti og að leggja slíkt fyrir öndvert þ., til þess að tími ynnist til, að málin fengju afgreiðslu til samþykktar eða synjunar.
Hv. þm. V-Húnv. sagði, að eigi yrðu allir sjálfstæðismenn með till. Ég veit ekkert um það og vil ekkert um það segja. Við flm. höfum borið þessa till. fram upp á eigin eindæmi og höfum ekkert reynt fyrir okkur um fylgi þessara till. Vegna þeirra ummæla minna, sem ég viðhafði í sambandi við afgreiðslu fjárl., þegar ég mælti fyrir till. okkar, sagði hv. þm. V-Húnv., að það væri rétt, að fjármál ríkisins væru komin í öngþveiti, og voru þau orð þó sterkari en mín. En hitt er alveg satt, að ég tók fram, að ríkisreksturinn væri orðinn svo áhættusamur og fjárfrekur, að ekkert vit væri í að halda lengur áfram á þeirri braut. Og þm. úr öllum flokkum hafa látið orð falla í þessa átt, að það horfði til vandræða, hversu rekstur ríkisins væri orðinn fjárfrekur á stofnfé og rekstrarfé. En hv. þm. sagði, að það væri ekki óeðlilegt, því að sjálfstæðismenn hefðu farið með fjárstjórn ríkisins í 10 ár. Væri því von, hvernig komið væri. Það er nú hægt að varpa fram staðlausum stöfum, og er ekki undarlegt, þó að menn fálmi eftir hálmstráum að hanga í, þegar þeir eru að kafna í málefnaleysi. Nú, það er vitanlega Alþ. og stj. sú, sem það velur, er fer með fjármál ríkisins. Það er vitað mál, að Sjálfstfl. hefur eigi haft síðustu 10 árin nema hér um bil þriðjung þm., og á þessum árum hefur flokkurinn eigi farið með stjórn landsins einn í eitt einasta ár. Hann hefur oftast verið í minni hluta. Þýðir ekkert að vitna til þess, að fjmrh. hafi verið úr flokki sjálfstæðismanna. Verk hans er aðeins að framkvæma þingvilja, bæði varðandi fjárlög og þál. og ýmsa löggjöf. En það skiptir hins vegar máli, hverjir sitja í stj. Og því vil ég skýra hv. þm. V-Húnv. frá því, sem hver þm. mun vita eða flestir, að síðast liðin 10 ár var hin gamla framsóknarstj. við völd með alþfl, í 1½ ár, og árið 1938 var greiðsluhalli rúmar 3 millj. kr., og þá voru fjárl. þó ekki nema um 17½ millj. kr. Árið 1939 er hallinn um rúmar 3 millj. kr., en fjárl. tæpar 18 millj. kr. En þá gafst Framsfl. hreinlega upp við fjármálastjórn landsins, og sjálfstæðismenn komu til að bjarga, því að þá voru hengjandi skuldir á ríkinu og allt að sökkva. Greiðsluhalli hjá ríkinu verður aldrei annað, en skuldasöfnun. 1940 skiptir að sönnu ekki mikið um. Þá eru sjálfstæðismenn teknir við, og tekjuafgangur verður tæpar 2 millj. Árið 1941 verður sjóðhækkun, sem nemur rúmum 11½ millj. kr., en skuldaaukning milli 10 og 11 millj., svo að þarna verður ofurlítill afgangur. Árið 1942 verður talsvert mikill rekstrarafgangur og sjóðhækkun, en skuldaaukning 14 millj. kr., en rekstrarhagnaður og sjóðhækkun nemur þó um 3 millj. kr. yfir. Þá er það 1943, en þá er víst utanþingsstj. við völd. Þá er sjóðlækkun 2½ millj. kr., en skuldalækkun nemur um 14½ millj. kr., og verður greiðsluafgangur tæpar 12 millj. kr. Árið 1944 er lakara. Þá er um 4 millj. kr. sjóðlækkun og skuldahækkun 2 millj. kr., en rekstrarafgangur verður þó rúmar 3 millj. kr., svo að greiðslujöfnuðurinn er þá hagstæður. Nú hverfur Framsókn úr stj., og aðrir taka við. Skiptir þá svo um, að rekstrarafgangur árið 1945 verður um 10 millj. kr. og skuldalækkun nemur rúmum 13 millj. kr., svo að greiðsluhagnaðurinn nemur milli 20–30 millj. kr. alls, en Framsókn hvergi nærri, — blessunin. Árið 1946 verður rekstrarhagnaðurinn 28.4 millj. kr., en sjóðlækkun 4 millj. kr. Þá eru eftir rúmar 24 millj. kr. Skuldahækkun nemur þá 10 millj. kr. Verður greiðsluhagnaðurinn því rúmar 14 millj. kr., — Framsókn hvergi nálægt. En árið 1947 kemur blessuð Framsókn aftur, og þá er skuldahækkunin 64 millj. kr., en útkoma ársins annars 74 millj. kr. óhagstæður greiðslujöfnuður. Og blessuð vinkonan okkar heldur áfram að vera í ríkisstj., en mér hefur verið sagt hjá ríkisbókhaldinu, að 20 millj. kr. greiðsluhalli verði á árinu 1948, og þar er Framsókn með. Nú er það þetta ár, en ég held, að þessi upptalning sé nægileg. Hún sýnir, að það er hreint ekki rétt, að allt fari í verri átt, þegar Sjálfstfl. fer með fjármálastjórnina. En hún sýnir annað: Þegar Framsókn er við völd, er alltaf öngþveiti og greiðslutap, og því minni áhrif sem hún hefur, þeim mun minni er „skandalinn“, og þegar hún fór burt, kom rekstrarafgangur, sem við höfum verið að eta upp síðan. Þetta er staðreynd. Má og minna á gjarnan, þótt eigi liggi fyrir áreiðanlegir efnahagsreikningar ríkisins, að 1927, þegar Framsókn tók við völdum, var skuldlaus eign ríkissjóðs 20 millj. kr., en 1939, eftir 12 ára stj., þegar Sjálfstfl. kemur í stj., hefur hún staðið nokkuð í stað, eða er um 22 millj. kr. En hver er hún nú? Ja, reikningurinn fyrir 1945 er hinn síðasti, sem til er, og sýnir 130 millj kr. skuldlausa eign ríkissjóðs. (GJ: Er Súðin talin með?) Allar eignir eru taldar með, en fasteignir eru taldar með fasteignamati, en bókfærð eign varðandi skipin er lágt metin. Góðar eignir eru verðbréfin. Lélegu eignirnar, eða þær, er gefa eigi arð, eru byggingar. En yfirleitt er hér um góðar eignir að ræða, þó að þær séu ekki arðsamar allar, og í árslok 1947 mun hin skuldlausa eign vera orðin um 160–170 millj. kr.
Þótt ég hafi nú verið að berja lóminn, er það eigi vegna þess, að ríkissjóður sé ekki sjálfur í rauninni vel stæður. Ef metið er með varúð, þá er fjárhagurinn eiginlega góður. En það er þrátt fyrir það ekki heppilegt, að ríkið sé að festa sig í vafasömum rekstri, sem getur þá og þegar bakað því stórkostleg útgjöld og jafnvel gert það gjaldþrota fyrr en varir.
Ég sé nú, að hæstv. forseti er orðinn órór, þar sem fundartími mun vera liðinn, og mun ég því fresta frekari umr. um þetta mál.