28.10.1948
Sameinað þing: 9. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 707 í D-deild Alþingistíðinda. (4987)

900. mál, landbúnaðarvélar

Fyrirspyrjandi (Skúli Guðmundsson):

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. atvmrh. fyrir upplýsingar hans, viðvíkjandi fyrirspurn minni. Ég tel lofsvert, að hæstv. atvmrh. hefur hlutazt til um, að þetta mál væri tekið til rækilegrar athugunar. Út af því, sem rætt hefur verið um það ósamræmi, sem væri á milli áætlana hinna tveggja stofnana, er um þetta hafa fjallað, þá skilst mér, að auðvelt ætti að verða fyrir þá aðila að framkvæma þar samræmingu eftir þörfum. Ég heyrði, að 30. júní hefði viðskiptanefnd verið búin að veita á þessu ári leyfi fyrir landbúnaðarverkfærum fyrir 7 millj. og 600 þús., en hins vegar ekki vitað, hve mikið eftir þann tíma. — Það hefði nú verið fróðlegt að vita, hvernig innflutningurinn skiptist á þessu ári á milli áhaldaflokkanna og á milli landshluta. Reyndar býst ég ekki við, að það liggi hér fyrir nú á þessari stundu, en væntanlega yrði hægt að fá upplýsingar um það síðar frá viðskiptanefnd.

Hér hafa verið gefnar upplýsingar um heildaráætlun fyrir 3–4 ár. En hvað um innflutninginn á næsta ári. Ef til vill er fjárhagsráð ekki búið að ganga frá áætlun fyrir það ár.

Ég tel það skipta miklu máli, að eins mikið sé flutt inn af landbúnaðarvélum á næsta ári og hægt er, fyrst og fremst stórvirkum tækjum, svo sem skurðgröfum og beltisdráttarvélum. Á meðan ekki er hægt að fullnægja óskum bænda í þessum efnum, vil ég leggja áherzlu á það, að innflutningi og dreifingu þessara véla verði hagað sem sanngjarnlegast, svo að einum landshluta verði ekki ívilnað fremur öðrum.

Ég skal svo ekki hafa um þetta fleiri orð, en vil þakka hæstv. ráðh. fyrir upplýsingarnar og það, sem hann hefur aðhafzt í þessum málum.