17.11.1948
Sameinað þing: 17. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 743 í D-deild Alþingistíðinda. (5038)

905. mál, bændaskólar

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Hæstv. atvmrh. hefur nú notað langmest af sínum tíma til þess að ræða um óskylt mál því, sem rætt hefur verið um, sölu Kaldaðarness, og beint skeytum þar sérstaklega til mín og alveg að ástæðulausu, því að ég hafði ekki verið fyrirspyrjandi í þessu máli. En ef hann heldur, að hann geti komizt upp með það að halda svona ræðu hér, í skjóli þess, að hann getur talað svo lengi sjálfur, en aðrir ekki nema 5 mínútur, þá skal ég láta hann vita, að ég mun flytja þetta mál inn í þingið, þar sem nokkurn veginn jafn verður ræðutíminn á báðar hliðar. Og þá skal ég taka til athugunar það, sem hæstv. ráðh. segir um, að þetta sé allt gert til þess að greiða Jörundi Brynjólfssyni fyrir að hafa skipt um pólitíska skoðun, fara úr Reykjavík og gerast pólitískur leiðtogi framsóknarmanna í Árnessýslu, — og til þess að „þola súrt og sætt með bændum“ þar, eins og hæstv. ráðh. komst að orði. En vill ekki hæstv. ráðh. fletta upp í þingtíðindunum og vita, hvort Jörundur Brynjólfsson, hv. 1. þm. Árn., hefur haft við nákvæmlega sömu lífskjör að búa eins og aðrir bændur þarna austur frá?

Ég bendi hæstv. atvmrh. á, að hans skilningur á lögunum um bændaskóla er mjög einkennilegur, því að ef hann athugar lög nr. 24 frá 22. marz 1948, þá sér hann, að þar segir, að „hinn þriðji“ bændaskóli skuli vera „í Skálholti í Biskupstungum, þegar lokið er byggingu skólahúss og öðrum nauðsynlegum undirbúningi.“ Þess vegna kemur ekki Skálholt til greina sem skólajörð, fyrr en þetta atriði er uppfyllt. (Atvmrh.: Er það ekki undirbúningur, sem ég hef látið framkvæma í Skálholti?) Næst stendur hér í lögunum, að á skólajörðunum skuli reka hæfilega stór, fjölbreytt bú, og veiti skólastjórarnir þeim forstöðu. Hvaða skólastjóri er nú í Skálholti? Í þriðja lagi stendur hér, að fyrir bústjórnina skuli greidd sérstök laun samkvæmt samningi við ráðuneytið, og: „Á búunum skal gera ýmsar hagnýtar tilraunir í landbúnaði, svo sem jarðrækt, garðrækt, akuryrkju, kynbótum, fóðrun búfjár og loðdýrarækt.“ Hér er algerlega miðað við það, að það skuli vera skólastjóri, sem er bústjóri á skólabúi, en ekki einhver maður, valinn af handahófi aðeins til þess að standa fyrir búinu. — Sannleikurinn er, að hæstv. atvmrh. hefur tekið úr ríkissjóði 175 þús. kr. úr byggingarsjóði skólans, sem veitt var á 20. gr. fjárlaga og hefur aldrei verið heimilað að nota til þess að kaupa fyrir lausafjármuni til skólans. Hann hefur gert það alveg í heimildarleysi, án þess að spyrja nokkurn um það. Og þær 150 þús. kr., sem hann talaði um áðan, hefur hann tekið án lögheimildar, en byggir þann verknað á því, að hann túlkar lögin eins og honum falla þau bezt í geð. En þannig geta menn ekki með réttu lesið lagabókstafinn. Ég skal annars ekki ræða þetta atriði frekar nú, vegna þess að það er engan veginn jafnræði hér um ræðutíma, þar sem mér eru ætlaðar aðeins 5 mínútur til þess að svara, á sama fundi sem hæstv. atvmrh. hefur fullan klukkutíma til þess að halda sína ræðu og þarf ekki að hlíta takmörkun ræðutímans. En þetta mál skal verða flutt á þann veg inn í þingið, þar sem þm. hafa meiri rétt til ræðutíma til að svara honum. — En ég vil benda hæstv. atvmrh. á að lesa dálítið betur lögin um bændaskóla og fá skýringar á þeim hjá sér betri lögfræðingi.