03.12.1948
Neðri deild: 26. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 306 í B-deild Alþingistíðinda. (507)
10. mál, lóðasala í Reykjavík
Menntmrh. (Eysteinn Jónsson):
Ég vildi mæla með því, að þetta frv. verði samþ. Ég gerði grein fyrir því við 1. umr. málsins, hvernig í málinu liggur, að skrifstofustjórinn í menntmrn. vakti athygli mína á því, að í ráðuneytinu lægi loforð um þessa sölu frá fyrrverandi ráðh., og óskaði frú Margrét Rasmus eftir lagaheimild til staðfestingar þessu loforði. Ég spurði hana nú ekki, hvort fleiri lóðir hefðu verið seldar úr þessari lóðarspildu, en það mun verða athugað. En það kemur ekki þessu máli við, það er út af fyrir sig, og þótti rétt að afla þingheimildar í því. Nú hefur hv. þm. A-Húnv. upplýst, að seldar hafi verið 30 lóðir úr þessari spildu, um það var mér sem sagt ekki kunnugt, enda hefði það engu breytt um þetta mál hér. Frú Margrét Rasmus á mjög langan og mjög þýðingarmikinn starfsferil að baki. Hún starfaði fyrir ríkið, og starf hennar var illa launað. Nú hefur hún loforð fyrrverandi ráðh. fyrir þessari lóð, og ég vil eindregið mæla með því, að þetta frv. verði samþ. Hitt er rétt að taka skýrt fram, að samþykkt þessa frv. á engan veginn að tákna það, að með henni sé verið að gefa ráðherrum yfirleitt undir fótinn með því að lofa hinu og þessu í sinni ráðherratíð, áður en samþykki Alþ. kemur til, ef samþykki þess á annað borð þarf að koma til. Það er princip-atriði, sem ekki má blanda inn í þetta sérstaka mál