18.11.1948
Sameinað þing: 18. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 785 í D-deild Alþingistíðinda. (5107)
912. mál, gjaldeyrismál
Hermann Jónasson:
Það er ekki hægt að ræða um þetta mál á 5 mínútum. En þó að það sé vitanlegt, að ekki fáist miklar upplýsingar um málið, þá vil ég nota þessar 5 mínútur til að segja um það nokkur orð.
Þær n., sem með þetta mál hafa að gera, eiga erfitt með að upplýsa það, en þegar skýrslur koma frá þeim, reyna þær að gera grein fyrir því eftir föngum.
Maður rekur strax augun í það, ef maður er þessu máli kunnugur, að þessar skýrslur eru ófullnægjandi. Það er t. d. vitað mál, að það er ekki gerð grein fyrir, hvernig vörur verði greiddar, svo að það sé fullnægjandi, áður en leyfi eru gefin út án gjaldeyris. Þetta skiptir nokkrum milljónatugum, og menn vita einnig, að á þessum árum hefur mikið af leyfum gengið milli manna, sem eru að reyna að útvega gjaldeyri fyrir þeim. Það hugsa ég, að sé á vitorði flestra, sem þekkja eitthvað til, hvernig verzlunarhættir eru nú hér á landi.
Það vakti líka athygli mína, án þess að ég þekki inn á það atriði, að margir hafa ekki látið neinar upplýsingar í té. 29. sept. er farið að skrifa til þess að fá þessar upplýsingar, og svo er sagt, að það sé verið að reyna að afla upplýsinga og koma öllu í fastar skorður. Maður getur lesið talsvert milli línanna í svona skýrslu, enda vita menn, að þegar gefnar voru skýrslur fyrir 1946–47, þá kom ekki fram mikið af umboðslaununum. Þetta er augljóst, því að menn vita í mörgum tilfellum, hve mikil þau eru, t. d. 15% af þungavélum ýmsum, margt er þar fyrir ofan og margt fyrir neðan, t. d. eru varastykki fyrir ofan. Þetta atriði er eitt af okkar alvarlegustu málum. Mönnum er bannað að ferðast erlendis, nema þeir skýri frá, hvaðan þeir hafi gjaldeyri til fararinnar. Þetta fyrirkomulag hefur gefizt illa, og er nú komið fram frv. um að breyta þessu. Þetta setur leiðinlegan blæ á okkur, svo að ekki sé meira sagt, og þetta verður ekki leiðrétt, meðan kunnugt er eða grunur á, að fjöldi manna eigi gjaldeyri erlendis. Eins er það, þegar veitt eru leyfi í stórum stíl fyrir alls konar áhöldum innan húss, eins og hefur verið gert af viðskiptan., og menn geta flutt þessi tæki inn, ef þeir fá gjaldeyri hjá kunningjum sínum erlendis. Eins er þetta misrétti, sem kemur fram, þegar mönnum er leyft að fara út, án þess að þeir hafi gjaldeyri. Þessari smán verður ekki létt af þjóðinni, nema hreinn og traustur grundvöllur fáist undir þessi mál öll, og þar er það gjaldeyririnn erlendis, sem fyrst og fremst kemur til greina. Þess vegna er ég einn af þeim, sem eru langeygðir eftir þeim upplýsingum, sem hæstv. stj. lofaði á síðasta sumri að útvega, en ég geri ekki ráð fyrir, að leiðrétting fáist á þessum málum, nema tekið sé upp nýtt kerfi. Ég geri ráð fyrir, að bráðlega komi fram frv. um það mál, því að það er eitt af því allra nauðsynlegasta.