18.11.1948
Sameinað þing: 18. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 789 í D-deild Alþingistíðinda. (5113)

912. mál, gjaldeyrismál

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Ég tók eftir, að viðskmrh. lýsti hér yfir, að hann væri tilbúinn að ræða hverja þá till., sem kæmi hér fram um að ná í þann gjaldeyri, sem hér hefur verið rætt um og ekki hefur verið skilað til bankanna. Nú er einnig upplýst hér, að þó nokkur gjaldeyrir hefur komið til landsins á þennan hátt, að leyfi hafa verið veitt fyrir að flytja inn vörur án þess að gjaldeyrisleyfi væru veitt, og virðist það vera mikill hluti af þeim vörum, sem greitt er með slíku fé, sem næst ekki á annan hátt. Nú vildi ég spyrja: Er það ekki ein leiðin til þess að ná í þessar duldu inneignir, að slík innflutningsleyfi yrðu aukin í framtíðinni, til þess að minnka það gjaldeyrishungur, sem er í landinu? Ráðh. hefði vald til þess að ráða því, með hvaða verði slíkar vörur yrðu seldar í landinu, þannig að þessir menn, sem við viðurkennum, að séu brotlegir við lögin, græddu þó ekki of mikið á því að verja þannig gjaldeyriseign sinni, en hinu þá ekki að neita, að það mundi bæta úr fyrir þjóðinni að fá ýmislegt af þessum vörum, sem vantar nú svo tilfinnanlega.

Ég vildi aðeins skjóta þessu fram í sambandi við þær umr., sem hér hafa farið fram.