18.11.1948
Sameinað þing: 18. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 790 í D-deild Alþingistíðinda. (5114)

912. mál, gjaldeyrismál

Björn Ólafsson:

Ég skal ekki tefja umr. lengi. Út af því, sem hv. þm. Str. sagði, þá vil ég segja honum, að ég er ekki hér til þess að verja neitt rangt í þessu máli, en hann er að verja fullyrðingar af sjálfs sín hendi, sem hann getur ekki staðið við.

Hv. þm. sagði, að vegna þess að ekki kæmi inn af umboðslaununum nema 1 millj., væri sýnilegt, að þessum 10–20 millj., sem hann minntist á, hefði verið skotið undan og væru á reikningi erlendis, sem vissir aðilar hér í landinu gætu notað. En hv. þm. dettur ekki í hug að taka neitt tillit til þeirrar skýrslu, sem hæstv. ráðh. hefur lesið upp úr, hvernig þessi umboðslaun hafa verið veitt, en þar stendur, að S. Í. S. hafi ekki skilað sínum umboðslaunum til bankanna. En ef svo er, sem ráðh. fullyrðir, að S.Í.S., sem ég er ekki hér að hallmæla á neinn hátt, flytji inn vörur fyrir sín umboðslaun, sé ég ekki, að neinum innflytjendum þessa lands beri skylda til að skila umboðslaunum, heldur hafi félögin rétt til þess að flytja inn vörur fyrir þau.