24.11.1948
Sameinað þing: 21. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 797 í D-deild Alþingistíðinda. (5126)
913. mál, síldarverksmiðjur ríkisins
Fyrirspyrjandi (Björn Ólafsson):
Ég færi hæstv. fjmrh. þakkir fyrir upplýsingarnar, sem ég tel, að vel sé, að fram eru komnar. Það hafa gengið mjög ýktar sögur um þetta manna á milli. En nú ætti að taka fyrir þetta, þar eð hið rétta er komið í ljós. Ég skildi eigi fyllilega grg. hæstv. ráðh. um ábyrgð ríkissjóðs fyrir skuldum S.R., en mér skilst þó, að ríkissjóður standi í ábyrgð fyrir öllum skuldum þeirra, nema 16 milljónunum. En ljóst er af þessu, að S.R. skulda núna um 20 millj. kr. í lausaskuldum. Verður að koma þessari skuld fyrir á þann hátt, að viðunanlegt sé.
Annars skal ég ekki ræða þetta mál meira að sinni. En væntanlega gefst mér tækifæri til þess síðar.