24.11.1948
Sameinað þing: 21. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 803 í D-deild Alþingistíðinda. (5140)
916. mál, tímarita- og blaðasafn Helga Tryggvasonar
Fyrirspyrjandi (Gísli Jónsson):
Herra forseti. Ég hef leyft mér að spyrjast fyrir um það, hvort ríkisstj. hefur notað heimild í 22. gr. fjárlaganna, lið XX, til að kaupa tímarita- og blaðasafn Helga Tryggvasonar bókbindara, og ef svo er, fyrir hvaða verð safnið er keypt og með hvaða greiðsluskilmálum, og enn fremur, hvort safnið hefur verið metið, og ef svo er, af hvaða aðilum og fyrir hvaða verð. Ég sé, að í fjárl. fyrir 1949 er gert ráð fyrir, að greitt sé í vexti vegna láns hjá Helga Tryggvasyni, vegna kaupa á blaðasafni, 10.800 kr. og 30.000 kr. í afborgun af því láni, og ég geri ráð fyrir, að þetta standi í sambandi við þessi kaup. Ég sé ekki ástæðu til að fara frekar út í málið á þessu stigi, en óska eftir að fá upplýsingar um þetta frá hæstv. menntmrh.