16.03.1949
Sameinað þing: 49. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 821 í D-deild Alþingistíðinda. (5180)

87. mál, tekjur og ríkisskattar samvinnufélaganna o.fl.

Forseti (JPálm):

Út af þessari fyrirspurn hv. 6. þm. Reykv. skal ég taka fram, að það er samkv. ósk fjmrh., að frestað er að taka þetta mál fyrir, og til þess liggja mjög eðlilegar orsakir. Fyrirspurnin er svo víðtæk, að leggja þarf fram mjög mikla vinnu til þess að henni geti orðið svarað, og vænti ég, að hv. þm. geti vel sætt sig við það, að þessari fsp. sé frestað. Til þess liggja eðlilegar orsakir, og er 1. mál þess vegna tekið af dagskrá.