26.01.1949
Sameinað þing: 32. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 822 í D-deild Alþingistíðinda. (5187)
95. mál, sjálfvirka símstöðin Akureyri
Fyrirspyrjandi (Sigurður E. Hlíðar):
Herra forseti. Ég verð að biðja afsökunar á því, að ég er þegjandi hás. En ég hef leyft mér að beina til hæstv. atvmrh. fyrirspurn á þskj. 177, og hljóðar hún svo: „Hvað líður sjálfvirku símstöðinni á Akureyri, og hvenær má vænta þess, að hún verði sett upp?“
Að þessari fsp. er nú ekki lengur neitt nýjabragð; hún kom fram hér á Alþ. fyrir nýár, og var frestað að taka hana fyrir 15. desember, og svo kom hið langa þinghlé. Eigi að siður tel ég mikilsvert að fá nú greinargóð svör.
Ég geri ráð fyrir því, að flestir þm. viti, að staðið hefur til og hefði átt að vera búið að koma upp sjálfvirkri símstöð á Akureyri. Í því skyni hefur verið reist stórhýsi fyrir póst og síma á Akureyri, pósturinn fluttur strax í það og síðan gamla símstöðin, og ákveðið var af símamálastjórninni með vilja og vitund ráðherra fyrir tveimur árum að panta sjálfvirkar vélar. Fyrstu vélarnar komu svo í byrjun des. s.l., en það hefur hins vegar staðið í mesta þófi með gjaldeyrisleyfin og synjanir borizt hvað eftir annað og einu gilt, þótt annars vegar væri hin virðulega stofnun póst- og símamála og undirskrift hæstv. ráðherra. Út af þessum drætti ríkir hin megnasta óánægja, ekki aðeins á Akureyri, heldur og um Austur- og Norðurland, þar sem stöðin er í raun og veru fyrir þessa landshluta. Það getur ekki gengið svo lengi, að þessari pöntun sé ekki bjargað, því heldur sem ekki er nú um hærri upphæð að tala en 280 þús. kr. eða 160 þús. kr. sænskar. Ég vil því eindregið óska þess, að hæstv. ráðh. upplýsi, hvernig á því stendur, að þessi dráttur verður á, að jafnmikið nauðsynjamál nái fram að ganga.