26.01.1949
Sameinað þing: 32. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 831 í D-deild Alþingistíðinda. (5209)
921. mál, hafrannsóknir og friðun Faxaflóa
Fyrirspyrjandi (Jónas Jónsson):
Herra forseti. Það fór sem ég bjóst við, að erfitt mundi þykja að svara þessum fyrirspurnum, en niðurstaðan er engu að síður glögg. Hæstv. atvmrh. upplýsti, að enginn árangur hefði náðst af störfum sendimanna okkar, sem setið hafa hverja ráðstefnuna af annarri síðan 1938. En það var annað, sem Árni Friðriksson hefði átt að svara, og það var, hverjir þessir 13 menn voru, sem með honum hafa verið. Þessi starfsmaður er mestan hluta ársins erlendis frá sínum störfum, og ekki aðeins það, heldur hefur hann þá með sér heilan hóp. Það, að hann segir ekki frá því, hverjir það eru, sýnir, að hann finnur, að árangurinn hefur orðið lítill og frammistaðan ófrækileg. Þessi vísindamaður hefur nú unnið í 10 ár að vísindarannsóknum sínum og viðurkennir nú, að árangurinn hafi enginn orðið, og vinnubrögðin hjá honum og fleiri mönnum, sem nú kalla sig vísindamenn, eru furðu merkileg. Þessi vísindamaður kom til ríkisstj. fyrir nokkrum árum og heimtaði skip og sagði: Ég veit, að síldin hrygnir fyrir vestan Ísland, og ég fer þangað og veiði hana. Svo fær hann skip og menn, en fann enga síldina og við það sat. Í flestum löndum hefðu vísindamenn, sem sýnt hefðu svona frammistöðu, verið leystir frá störfum, og skýt ég því til hæstv. ráðh., að það er ekki hægt að viðurkenna ríkisstj., sem lætur slík vinnubrögð viðgangast.