01.02.1949
Efri deild: 52. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 307 í B-deild Alþingistíðinda. (522)
119. mál, gjaldaviðauki 1949
Fjmrh. (Jóhann Jósefsson):
Herra forseti. Um þetta frv. er það að segja, að aths. við það bera með sér, hvað þar er um að ræða. Ákvæðin, sem þar er verið að lögleiða, hafa áður gilt, og þótti nauðsynlegt að viðhalda þeim. Ég hef ekkert frekar um málið að segja, en óska, að það gangi sína venjulegu boðleið gegnum hv. d., eins og áður hefur verið með sams konar frv.