02.02.1949
Sameinað þing: 35. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 838 í D-deild Alþingistíðinda. (5223)

114. mál, símabilanir á Vestfjörðum

Fyrirspyrjandi (Sigurður Bjarnason):

Herra forseti. Ég vil leyfa mér að þakka hæstv. ráðh. svör hans og þá ýtarlegu skýrslu, sem hann hefur gefið í tilefni af fyrirspurn minni. Ég vil láta í ljós ánægju mína yfir því fyrst og fremst, að nú er fengin vitneskja um það. að gert er ráð fyrir verulegum innflutningi á efni til síma og talstöðva. Ég er að vísu feginn að heyra, að símamálastjóri hefur búið til áætlun um það, hvernig bæta eigi úr ástandinu í símamálum Vestfjarða, en verð þó að játa, að ég byggi ekki vonir um mjög miklar úrbætur á henni, vegna þess að mér skilst, að hún muni vera miðuð við allmörg ár fram í tímann, og líka vitað, að hún verður mjög dýr, en hins vegar fé það, sem fyrir hendi er til þessara framkvæmda, takmarkað mjög, eins og ráðh. einnig minntist á. Ég hygg, að eina leiðin til þess að bæta til bráðabirgða úr þessu ástandi sé að endurnýja og bæta loftlínurnar og staurana, en hins vegar engin von til, að hægt sé að bíða þess rólegur, að dýrt og voldugt símahús verði byggt í Hrútafirði né jarðstrengir lagðir um flestar þær byggðir, þar sem þessar bilanir hafa orðið.

Ég held, að ég hafi tekið rétt eftir, að hæstv. ráðh. hafi lesið upp úr skýrslu póst- og símamálastjóra, að honum hafi ekki fundizt þessar bilanir neitt sérstaklega tíðar. Ég verð að segja, að það er náttúrlega ekki mjög uppörvandi að heyra frá póst- og símamálastjóra, að honum finnist það ekki nema svona rétt í meðallagi tíðar bilanir, þegar svo er komið, að heill landsfjórðungur er einn mánuð af tveimur símasambandslaus. Það er nokkuð mikil nægjusemi.

Ég vil svo vænta þess, að þessi skýrsla, sem ráðh. hefur gefið og varpað hefur ljósi á málið, verði til þess, að þm. gefi þessu máli meiri gaum en ég ætla, að gert hafi verið að undanförnu.