24.02.1949
Sameinað þing: 43. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 874 í D-deild Alþingistíðinda. (5301)

930. mál, bygging fornminjasafns

Gylfi Þ. Gíslason:

Herra forseti. Ég skil þá viðkvæmni, sem hefur gripið hv. 2. þm. Rang. Hann er einmitt einn af þeim hv. þm., sem hafa átt verulegan hlut að því á þessu þingi, að virðingu þingsins hefur mjög verið misboðið með — ég vil segja hálfgerðum skrípatillögum, sem degi eftir dag hefur verið eytt í að ræða um. Á ég þar t.d. við þáltill. um jeppabifreiðar og till. um innflutning landbúnaðarvéla, sem mér skilst, að flestir hv. þm. séu sammála um, að séu skrípamál, sem þinginu sé til mjög lítils sóma að eyða miklum tíma í að ræða um. Ég er því ekki hissa á því, þótt þessi hv. þm. hrökkvi við, þegar talað er um, að tími þingsins sé misnotaður til þess að ræða mál, sem varla eða ekki geta talizt eiginleg eða réttmæt þingmál.