24.02.1949
Sameinað þing: 43. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 875 í D-deild Alþingistíðinda. (5307)

930. mál, bygging fornminjasafns

Bernharð Stefánsson:

Herra forseti. Ég sé ekki, að þessi fyrirspurn, sem hér er borin fram, sé miklu lakari en ýmsar aðrar, sem bornar hafa verið fram og leyfðar, þegar bornar hafa verið fram fyrirspurnir um það, sem fyrirspurnarmaður getur aflað sér sjálfur á annan veg vitneskju um, og í öðru lagi hafa verið bornar fram fyrirspurnir um allt milli himins og jarðar. Það er eins og þingmenn haldi, að þeir geti notað ráðherrana eins og alfræðiorðabók. — Mér hafa fundizt þessir fyrirspurnatímar mjög óviðfelldnir, ég verð að segja það. En ég sé ekki, að þessi fyrirspurn sé miklu lakari en ýmsar aðrar. Ég hef haft þann hátt, að ég hef setið hjá við atkvgr. um fyrirspurnir, og ég geri það enn, og greiði ekki atkv.