02.03.1949
Sameinað þing: 85. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 877 í D-deild Alþingistíðinda. (5311)
930. mál, bygging fornminjasafns
Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. Til glöggvunar á, hvað hv. þm. S-Þ. hugsar sér með því að tala um, að ráðh. eigi að leggja meiri vinnu í það að svara fyrirspurnum, þá vil ég spyrja hann, hvernig hann hugsar sér sjálfur að svara síðasta lið fyrirspurnar sinnar: „Er það rétt, að helztu málarar landsins muni mótmæla, að verk þeirra verði til sýnis í þessu húsi?“ Ég vil spyrja, — er ekki nauðsynlegt að leita til spámanns til þess að fá slíku svarað? Það væri e.t.v. framtíðarúrlausn með tilliti til margra annarra fyrirspurna frá þessum hv. þm.