06.04.1949
Sameinað þing: 63. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 878 í D-deild Alþingistíðinda. (5322)

931. mál, tolleftirgjöf af bifreiðum

Fyrirspyrjandi (Jónas Jónsson):

Herra forseti.: Það hefur dregizt nokkuð, að þessari fyrirspurn væri svarað, og mér skilst, að það sé vegna þess, að tollstjóri þurfi að láta athuga 150 þús. skjöl, svo að svarið verði nákvæmt. Það vakir nú ekki fyrir mér, að svo mikil vinna verði lögð í þetta, heldur hitt, að fá nokkrar upplýsingar um þetta mál og hvort það eru margir menn, sem hafa skammtað sér sjálfir á þennan hátt. Það er að segja, ég geri ekki kröfu til að fá nákvæmt svar um fjárhagslega hlið málsins.