27.04.1949
Sameinað þing: 69. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 879 í D-deild Alþingistíðinda. (5327)

931. mál, tolleftirgjöf af bifreiðum

Fyrirspyrjandi (Jónas Jónsson):

Herra forseti. Þessi fyrirspurn hefur nú beðið lengi, en ég hef skilið hæstv. ráðh. svo, að það tæki langan tíma, ef svara ætti spurningunni nákvæmlega, en tilætlunin er aðeins sú að fá að vita, hvað margir af æðstu embættismönnum þjóðarinnar hafa fengið fluttar inn bifreiðar án þess að þurfa að greiða af þeim toll og hvenær þessir innflutningar byrjuðu. Hefur mér skilizt á hæstv. ráðh., að hann gæti svarað því án þess að hafa langan tíma, því að ég ætlast ekki til, að hann gefi upp nein nöfn á þeim mönnum, sem hér eiga hlut að máli, heldum aðeins um hve marga menn sé að ræða og hve margar bifreiðar.