09.03.1949
Sameinað þing: 47. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 888 í D-deild Alþingistíðinda. (5354)
934. mál, Úlfarsá í Mosfellssveit
Menntmrh. (Eysteinn Jónsson):
Herra forseti. Í fyrsta lagi er spurt um, hvaða húsnæði sé nothæft á Úlfarsá fyrir rekstur vistmannahælis og dvöl starfsfólks þar. Eins og áður hefur komið fram, fór heilbrmrn. þess á leit að fá Úlfarsá til lækningahælis fyrir drykkjumenn. Gert er ráð fyrir því samkv. till. landlæknis og forstöðumanns Kleppsspítalans, að Úlfarsá verði eins konar lækningaheimili fyrir allt að 8 vistmenn. Þar er íbúðarhúsnæði allsæmilegt. Hef ég beðið landlækni að gera till. um, hvaða framkvæmdir þurfi að gera, til þess að hugmyndin komist í framkvæmd. En ég hef eigi fengið þær. En ég hygg, að bæta þurfi við einum skála. Kostnaðaráætlun liggur hins vegar ekki fyrir enn þá. Málið er eigi komið lengra áleiðis, því að ráðuneytið hefur eigi fengið fullnægjandi svör um, hvort jörðin muni fást, og sé hún föl, hvenær hún muni fást. En samkv. síðustu viðtölum held ég, að hún fáist, og þegar svo er orðið, mun skriður settur á til að undirbúa framkvæmdir.
Þá er það 2. liður fyrirspurnarinnar: hver aðstaða sé til búrekstrar á Úlfarsá. Varðandi það atriði segir Halldór Pálsson, forstöðumaður landbúnaðardeildar Atvinnudeildar háskólans, að túnið sé rúmir 800 ha að stærð og gefi af sér 350 hestburði af töðu. Mýrlendi sé 6 ha, og þurfi að ræsa það fram. Auk þess má víða koma við ræktunarframkvæmdum. Er það óþrjótandi verk. Fjós er til fyrir 9 kýr og hesthús fyrir 3 hesta. Þessu hesthúsi er auðvelt að breyta í fjós, og fæst þá 12 kúa fjós. Á bænum er og heyhlaða fyrir hendi með tveim votheysgryfjum. Annars tek ég fram, að skv. till. þeirra, sem þessi mál hafa haft til meðferðar, þá verður hér eigi um stórt lækningaheimili að ræða, og segir landlæknir, að gera megi ráð fyrir, að hver vistmaður verði aðeins stuttan tíma og stopult yrði að treysta á vinnu þeirra. Því verði þetta eigi vinnuheimill og heldur ekki um stórt bú að ræða.
Hinni 3. spurningu get ég ekki svarað nú, en vísa að nokkru leyti til svars við 1. spurningu. Þegar málið er komið lengra áleiðis og áætlun liggur fyrir frá landlækni, þá mun hægt að gefa nánari upplýsingar.