09.03.1949
Sameinað þing: 47. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 889 í D-deild Alþingistíðinda. (5356)

934. mál, Úlfarsá í Mosfellssveit

Menntmrh. (Eysteinn Jónsson):

Herra forseti. Ég ætla nú ekki að bæta neinu við. Engan vafa tel ég á því leika, að nóg verkefni liggi fyrir við hið fyrirhugaða lækningaheimili. Rétt er það, að hælið í Kaldaðarnesi var lagt niður, áður en fullar upplýsingar lágu fyrir um Úlfarsá. En raunar var það óþarfi, því að áður vissu menn um, hvernig þar var háttað. Enn hefur þó eigi borizt endanlegt svar um jörðina, en mikil líkindi eru til, að það komi á næstunni, og þá mun unnt að hefja framkvæmdir. Ljóst var, að einhverjar endurbætur þurfti að gera á Úlfarsá, og hef ég lýst því áður.