09.03.1949
Sameinað þing: 47. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 893 í D-deild Alþingistíðinda. (5377)
937. mál, Skriðuklaustur
Fyrirspyrjandi (Jónas Jónsson):
Það er nú orðinn siður að gefa jarðir, og fylgja þá oft skilyrði, þannig að gjöfin verður minni en búizt var við. Ég veit ekki, hvernig það er með þessa jörð, og vildi ég óska eftir að fá að vita, hvað á að telja jörðina mikils virði, miðað við venjulegt matsverð, um hve miklar skuldir er að ræða og hverjir eru lánardrottnar, svo og hvort jörðinni fylgir bústofn og þá hve mikill og hvað ríkisstj. hyggst fyrir með gjöfina og til hvers hún ætlar að nota hana.