09.03.1949
Sameinað þing: 47. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 893 í D-deild Alþingistíðinda. (5379)
937. mál, Skriðuklaustur
Fyrirspyrjandi (Jónas Jónsson):
Það er furðuleg framkoma í fjármálum, ef ríkisstj. hefur ekki gert sér grein fyrir, hvers virði þessi gjöf er, sem hún hefur tekið á móti, og hefur þó svo mikið verið rætt um Kaldaðarnes og Silfurtún, að hún ætti að geta gert sér grein fyrir því, hvað hér er um að ræða. Ég vil nú spyrja hæstv. ríkisstj., fyrst hún veit ekki, hvað hún ætlar að gera við gjöfina, hvort hún ætli að sýna það lítillæti að spyrja þingið um það, hvað eigi að gera við hana.