16.03.1949
Sameinað þing: 49. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 900 í D-deild Alþingistíðinda. (5395)

160. mál, aðflutningar til Keflavíkurflugvallar o.fl.

Fjmrh. (Jóhann Jósefsson):

Út af þessari aths. hv. 2. þm. Reykv. vil ég segja það að, að svo miklu leyti sem það kann að vera fjmrn. að afla upplýsinga viðvíkjandi fyrirspurninni á þskj. 442, þá er þess að gæta, að þeir menn, sem fjmrn. hefur í því að afla upplýsinga viðvíkjandi fyrirspurnum, eru enn þá í öðrum fyrirspurnum og eru ekki enn búnir að skila til ráðh. svörum við þeim. Meðan þeir eru ekki búnir að ljúka því, hef ég ekki tök á að láta vinna þetta verk. Nú hef ég litið svo á, að þetta snerti fleiri en eitt rn. að afla upplýsinga viðvíkjandi fyrirspurninni á þskj. 442. Mér finnst ekki aðalatriðið, hvað hratt er hægt að svara fyrirspurnum. Aðalatriðið er, að upplýsingarnar, sem koma, séu sem réttastar og ýtarlegastar. Þess vegna er það, að það er ekki alltaf, að sá frestur nægi, sem liður milli þess, að fyrirspurn er leyfð, og þar til hún er tekin á dagskrá, eins og raun hefur orðið á um fyrirspurn frá hv. þm. S–Þ. á þskj. 391,3. Hún var fengin í hendur tollstjóra til athugunar, en hann hefur af skiljanlegum ástæðum verið bagaður frá að sinna sínu embætti nú um tíma, af því að hann er sáttamaður hins opinbera, eins og allir vita. Það er önnur fyrirspurn, sem líka á að svara af þessu rn., fyrirspurn 413,1. Seinast í morgun var ég að ganga úr skugga um, að það er ekki búið að afla allra þeirra upplýsinga, sem þar skipta máli. Þetta vildi ég sagt hafa út af aths. hv. 2. þm. Reykv. út af fyrirspurn hans á þskj. 442. Það eru þegar mjög margar fyrirspurnir komnar á sama rn., og það eru takmörk fyrir, hvað miklu er hægt að afkasta á stuttum tíma með að svara þeim.

Eins og ég sagði áðan, tel ég, að megináherzluna beri á það að leggja, að svörin séu sem ýtarlegust og réttust, en ekki, hvort þau koma viku fyrr eða seinna.