06.12.1948
Efri deild: 25. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 310 í B-deild Alþingistíðinda. (541)
14. mál, kyrrsetning og lögbann
Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson):
Herra forseti. Þetta frv. hefur legið fyrir allshn., og hefur hún athugað það. Við höfum gert nokkrar brtt. við frv. Frv. var sent lagadeild háskólans og Lögmannafélagi Íslands til umsagnar. Lagadeild háskólans hefur þegar svarað, en svar frá Lögmannafélaginu hefur enn ekki borizt. Iiins vegar vildum við nm. ekki draga það Iengur, að þetta mál kæmi til 2. umr. En ef ábendingar koma síðar frá Lögmannafélaginu, áður en 3. umr. er lokið, og þær ábendingar virðast vera til bóta, þá er hægt að bera þær breytingar upp við 3. umr.
Það er ekki mikið um þetta frv. að segja, framar en hæstv. dómsmrh. hefur sagt við 1. umr. N. hefur orðið sammála um að telja það mjög þarft og nauðsynlegt. Reglur þær, sem hér er um að ræða, hafa áður verið mjög dreifðar í löggjöf okkar og ekki heldur allar beint lögfestar, en hér eru þær dregnar saman, að því er virðist skýrt og skipulega, og tel ég mikinn feng í því að fá þetta lögfest á þennan hátt.
Brtt. þær, sem n. flytur hér á þskj. 159, eru ekki veigamiklar, og skal ég stuttlega gera grein fyrir þeim. Annars vil ég geta þess, að hv. meðnm. mínir, hv. þm. Seyðf. og hv. 7. landsk., sem er fógeti í einu stærsta lögsagnarumdæmi, eru miklu kunnugri en ég því atriði sérstaklega, er snertir kyrrsetningu og lögbann.
Brtt. við 6. gr. er um það, að í stað orðanna „nægilega veðtryggð“ í 1. málsgr. komi: nægilega tryggð. Og töldum við það nægilegt að hafa það svo. — Um 8. gr. frv. er það að segja, að n. þótti það fullhart að hafa það ákvæði til kyrrsetningar á manni, að afturkoma hans, ef hann fer til útlanda, megi telja óvissa. Við vildum heldur breyta því þannig, að líklegt má telja, að hann hyggi ekki á afturkomu. Það verður mildara. — Brtt. við 11. gr. er aðeins um það, að í stað „veðtryggingu“ í 1. málsgr. komi: tryggingu. — Einnig er örlítil breyting gerð á 13. gr., að orðin „til viðurkenningar á því, að krafan sé réttmæt, og“ í 3. málsgr. falli niður. — Þá er það sérstaklega 18. gr., sem við vildum breyta þannig, að það ákvæði nái einnig til flugvéla. Í 24. gr. viljum við sleppa 2. málsgr., en aftan við gr. bætist ný málsgr., svo hljóðandi: Um aðilaskipti að kröfu um miskabætur eftir l. þessum fer samkv. 3. málsgr. 264. gr. almennra hegningarlaga. — Brtt. við 28. gr. er um það, að 4. málsgr. hennar orðist þannig: Um bætur fyrir miska- og lánstraustspjöll sakir lögbanna fer eftir því, sem mælt er fyrir í 1. málsgr. 24. gr.
Margar af þeim breyt., sem n. leggur til, að gerðar verði á frv., eru eftir ábendingu frá lagadeild háskólans, og töldum við þær frekar til bóta. Við leggjum því til, að frv. verði samþ. með þessum breytingum og afgreiðslu þess verði hraðað eins og hægt er.