16.03.1949
Sameinað þing: 49. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 909 í D-deild Alþingistíðinda. (5426)
940. mál, rafmagnsverð
Atvmrh. (Bjarni Ásgeirsson):
Ég held, að sú ákvörðun Sandgerðisbúa að nota einir sér þessa heimild að hækka gjaldið um 20% sé eingöngu byggð á því, að þeir vilji tryggja þetta fyrirtæki, koma fótum undir það, því að sá afgangur, sem verður af rekstri veitunnar, rennur allur í varasjóð fyrirtækisins, en varasjóðnum á að verja bæði til aukningar og útbreiðslu kerfisins, ef þess þykir með þurfa, og einnig til þess að standa undir fyrningum og uppbyggingu stöðvarinnar, þegar hún eða ýmsir einstakir liðir hennar fara að ganga úr sér. Ég held, að þetta sé m.ö.o. búmannsráðstöfun þeirra í Sandgerði til þess að tryggja rekstur fyrirtækisins í framtíðinni.